Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.2016, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.2016, Side 4
Helgarblað 29. janúar–1. febrúar 20164 Fréttir Framsóknarmenn vilja Guðna á Bessastaði V angaveltur um að Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráð- herra og formaður Fram- sóknarflokksins, fari í for- setaframboð hafa fengið byr undir báða vængi. DV hefur feng- ið staðfest að hópur manna, tengdur Framsóknarflokknum, vinni nú að því að kanna grundvöll fyrir forseta- framboði Guðna. Hefur þessi hóp- ur verið í sambandi við vel tengda einstaklinga víða um land og beðið þá að taka púlsinn á íbúum kjör- dæmanna gagnvart þeirri hugmynd. Forsprakki hópsins segir Guðna vita af þessari vinnu en sjálfur þvertekur Guðni fyrir að svo sé. Guðni fulltrúi venjulegra Íslendinga „Við erum að skoða þetta, sem áhugamenn um þá lausn. Við erum að taka púlsinn í kringum landið hjá fólki sem við vitum að er vel tengt og hefur gott nef fyrir pólitík. Og við höfum mætt frekar jákvæðum viðhorfum,“ segir Gestur Valgarðs- son, verkfræðingur og fyrrverandi formaður Framsóknarfélags Kópa- vogs, aðspurður um málið en hann fer fyrir þessum hópi stuðnings- manna Guðna sem vildu gjarnan sjá hann taka slaginn. Gestur hefur þó þann vara á að það sé ekki kominn mikill hiti í þessa vinnu en að fram- sóknarmennirnir líti á Guðna sem manninn til að leysa Ólaf Ragnar Grímsson af hólmi á Bessastöðum. „Okkur finnst hann góður full- trúi hins venjulega Íslendings. Hann er frekar málamiðlari í eðli sínu en hitt. Við munum að umræð- urnar fyrir síðustu kosningar voru á þá leið að þær snerust að mestu um „öryggisventilinn“ og á hvaða þrýstingi tiltekinn frambjóðandi myndi blása. Okkur finnst að forset- inn eigi að vera málamiðlari frekar en að taka yfir þessa pólitísku um- ræðu í landinu. En svo er Guðni auðvitað vel þekktur og vel máli far- inn að okkar mati,“ segir Gestur. En er þetta eitthvað sem þeir eru að gera upp á sitt einsdæmi? „Já og nei. Við erum hópur og ég var í gamla daga formaður Fram- sóknarfélags Kópavogs í nokkur ár þannig að þetta kemur kannski úr þeirri átt og það getur kannski unnið á móti okkur, en það verður bara að koma í ljós.“ Segir Guðna fylgjast með Einhver orðrómur, þó ekki mjög hávær, hefur verið á kreiki undan- farnar vikur um að Guðni Ágústs- son kunni að bjóða sig fram til for- seta í kosningunum sem fara fram 25. júní næstkomandi. Hann hefur þó ekkert gefið út um áhuga sinn á slíku. En veit hann af vinnu Gests og félaga og leggur hann blessun sína yfir hana? „Ég myndi kannski ekki segja að hann leggi blessun sína yfir þetta en hann fylgist gaumgæfilega með okkur. En ég vil síður tala fyrir hans hönd og ætla ekki að gera það en hann veit af okkar áhuga,“ segir Gestur. Guðni kveðst ekkert vita DV ákvað að bera málið und- ir Guðna og náði blaðamaður tali af honum þar sem hann var stadd- ur í sólarlandafríi á Kanarí, þar sem hann kvaðst hafa verið allan janúar. Hann vildi ekkert kannast við málið og fór raunar undan í flæmingi eft- ir að blaðamaður bar upp erindi sitt. „Hef ekki heyrt þetta nefnt. Þetta hefur gerst í janúar meðan ég var úti. Ég bið að heilsa þeim kærlega og spila mínigolf áfram,“ sagði Guðni og bjó sig undir að ljúka samtalinu. Blaðamaður skaut inn ítrekun á spurningunni hvort honum væri ekki kunnugt um vinnu hópsins og var Guðni afdráttarlaus í svörum. „Nei, nei. Nei, nei, nei,“ sagði Guðni og hélt áfram að pútta í blíðviðrinu á Kanarí. Eins og fram hefur komið barst holskefla tilkynninga um fram- boð til forseta Íslands eftir að Ólaf- ur Ragnar Grímsson lýsti því yfir í nýársávarpi sínu að hann ætlaði ekki fram í sjötta sinn. Af þeim sjö sem lýst hafa yfir framboði standa sex framboð enn. En ljóst er að til tíðinda fer að draga á næstu vikum ef frambjóðendur sem enn eiga eftir að koma fram ætla að láta til sín taka fyrir kosningar. Fróðlegt verður að sjá hvort þau sem helst eru nefnd, sem og Guðni, taki slaginn. n n Stuðningsmenn taka púlsinn n Guðni kveðst ekki vita af vinnu hópsins„Ég bið að heilsa þeim kærlega og spila mínígolf áfram. Sigurður Mikael Jónsson mikael@dv.is Guðni á Bessa- staði? Hópur áhugamanna um að Guðni Ágústs- son, fyrrverandi ráðherra, fari í forsetafram- boð vinnur nú að því að kanna hvernig landið liggur fyrir fyrir þenn- an fyrrverandi formann Fram- sóknarflokks- ins. Hópurinn er tengdur flokknum. Urðu eldi að bráð Viðbragðsaðilar á höfuðborgar- svæðinu voru kallaðir út eftir að eldur braust út í austurborginni aðfaranótt fimmtudags. Tilkynnt var um eldinn laust fyrir klukkan hálf tvö um nóttina. Lögregla og slökkvilið mætti á vettvang og í ljós kom að kviknað hafði í tveimur strætisvögnum. Vagnarnir voru í geymslu í austurborginni og eru þeir, að sögn lögreglu, taldir ónýtir. Eldsupptök eru ókunn. Lést eftir köfunarslys Kínverska konan sem lá þungt haldin á gjörgæslu eftir köfunar- slys í Silfru á Þingvöllum er látin. Kona var 26 ára gömul og var ásamt eiginmanni sínum að kafa í gjánni á vegum ferðaþjónustufyr- irtækis þegar slysið átti sér stað. Samkvæmt lögreglu sökk kon- an 30 metra áður en henni var bjargað. Konan var þá meðvit- undarlaus og var flutt með þyrlu á sjúkrahús. Slysið átti sér stað um hádegisbilið síðastliðinn þriðjudag. Konan var flutt á gjör- gæsludeild Landspítalans þar sem hún lést á fimmtudag. Síðast varð banaslys í gjánni 2012.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.