Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.2016, Blaðsíða 28
Helgarblað 29. janúar–1. febrúar 201624 Fólk Viðtal
einhverjum sniðugum tilgangi.
En hvernig datt Loga í hug að
kaupa sér 300 þúsund króna gull-
bindi? „Ég sá þetta á einhverri síðu
og náði því ekki úr hausnum á mér.
Hugsaði mikið um hvað þetta væri
kúl. Þetta er algjörlega einstakt
bindi. Það myndi líklega engum
detta í hug að kaupa það, nema
mér. Ég keypti það svo í einhverju
hvatvísiskasti eftir miðnætti.“ Logi
fór svo sjálfur út og sótti bindið en
þegar heim var komið þurfti hann
að sjálfsögðu að borga af því hin
ýmsu gjöld og tolla, sem hann hafði
ekki alveg gert ráð fyrir. „Ég hugsaði
ekki alveg svo langt en mér fannst
þetta sleppa, svo erfir litli guttinn
þetta,“ segir hann kíminn og vís-
ar þar til fimm ára sonar síns sem
finnst pabbi sinn mjög svalur.
Tapaði öllum peningunum
En þrátt fyrir að hafa leyft sér kaup
á 300 þúsund króna bindi segist
Logi alls ekki vera ríkur. „Ég myndi
segja að á árunum 2008 og 2009
hafi ég getað sagst eiga pening. En
út af fasteignabraskinu þá hef ég
þurft að vinna mig upp aftur, alveg
frá núlli. Eiginlega úr mínus. Það
fór allt.“ Hann viðurkennir að það
sé ansi súrt að sitja eftir slyppur og
snauður eftir svo mikla velgengni í
atvinnumennskunni. „Ég var búinn
að sjá fyrir mér að ég kæmi heim
með hundruð milljóna á reikningn-
um. Að ég ætti nokkrar íbúðir úti í
Þýskalandi og væri vel stæður eft-
ir tíu ár í viðbót í atvinnumennsk-
unni. Sem ég sá fyrir mér að spila.
En svo var þessu öllu kippt und-
an mér. Allt gerðist á sama tíma. Ég
meiðist og íbúðavesenið byrjar.“
En fátt er svo með öllu illt að það
boði ekki eitthvað gott. Þegar allt
virtist vera að hrynja kom óvæntur
gleðivaldur inn í líf hans. Ástin
bankaði á dyrnar. Hann kynntist
konunni sinni sem reyndist hon-
um stoð og stytta í erfiðleikunum
sem fram undan voru. „Við fund-
um hvort annað og stuttu síðar
ákváðum við að ráðast í barneign-
ir og búa til fjölskyldu. Hún er búin
að standa með mér í gegnum allt
saman. Þegar hún kom með mér út
til Þýskalands fór ég beint í aðgerð.
Ég var í raun ekki handboltamaður
eftir að við kynntumst,“ segir Logi
hlæjandi. „Við erum ofboðslega
ólík. Eins svart og hvítt og það getur
orðið. En þvílíkt jafnvægi sem það
gerir. Hún er eins mikið á jörðinni
og hægt er á meðan það þarf að rífa
mig niður úr skýjunum.“
Mamma hvatti hann til dáða
Logi er mikill fjölskyldumaður og
hefur alltaf verið í góðu sambandi
við fjölskyldu sína. Faðir hans,
Geir Hallsteinsson, var fyrsti at-
vinnumaðurinn í handbolta á Ís-
landi og bæði þjálfaði soninn og
hvatti til dáða. Foreldrar hans voru
hans helstu klappstýrur á atvinnu-
mannsferlinum og komu oft út til
Þýskalands að heimsækja drenginn
sinn. Mamma hans var sérstaklega
dugleg að passa upp á hann og gefa
honum heilræði. „Hún sagði mér
alltaf að vera bara ég sjálfur. Og ekki
láta neinn segja mér að ég gæti ekki
eitthvað. Hún á örugglega stóran
þátt í þessu mikla sjálfstrausti sem
ég hef tileinkað mér og búið til með
tímanum. Það fæðist nefnilega
enginn með sjálfstraust. Það er eitt-
hvað sem maður byggir upp, eins
og viljastyrkinn. Mamma átti risa-
stóran þátt í því að móta mig sem
einstakling.“ Logi talar af mikilli
hlýju um móður sína, sem var frá-
bær listakona og teiknaði og mál-
aði nokkrar myndanna sem prýða
veggi heimilisins. Í orðum Loga
má einnig greina söknuð, þrátt fyr-
ir að móðir hans sé enn á lífi. Hún
glímir hins vegar við alvarleg veik-
indi og er í dag aðeins skugginn af
sjálfri sér.
Með sjaldgæfan heilasjúkdóm
„Ofan á allt saman, þegar ljóst var
að ferillinn væri búinn, og ég kom-
inn heim, þá veiktist mamma. Fyrst
fékk hún krabbamein og svo fékk
hún sjaldgæfan heilasjúkdóm sem
gerir það að verkum að hún lam-
ast öll smám saman. Það eru mjög
fáir með þennan sjúkdóm. Þetta
er hrörnunarsjúkdómur – eigin-
lega systursjúkdómur Alzheimers.
Hún er komin í hjólastól, getur
ekki talað eða tjáð sig með nein-
um hætti. Hún er bara þarna í stól
og getur ekkert gert. Það er ótrú-
lega erfitt að horfa upp á það. Mað-
ur veit ekki alveg hvernig maður á
að vera í svona aðstæðum. Þetta er
svo skrýtið. Ég veit ekki einu sinni
hvort hún skilur mig,“ segir Logi
einlægur.
„Það breytir manni að lenda í
svona áföllum
á lífsleiðinni.
En maður get-
ur svolítið val-
ið hvort það
eigi að breyta
manni til hins
betra eða
hvort maður
sökkvi sér í nei-
kvæðni.“
Faðir Loga
er hins vegar
stálhress og
sinnir konunni
sinni af mikilli
alúð. „Þú ætt-
ir að sjá hann
með mömmu.
Þvílíkt hjarta-
lag. Hann setur
hana ekki einu
sinni á hjúkr-
unarheimili.
Kallinn er sjötugur. Hann er
búinn að breyta öllu húsinu,
stækka hurðirnar og flytja
inn sjúkrarúm. Hann drösl-
ar henni út um allt, gefur henni að
borða og það er engin eftirgjöf. Það
eru allir búnir að segja við hann að
þetta sé algjör vitleysa, en hann er
alveg staðfastur með það að hafa
hana heima.“
Myndi ekki vilja tengjast
liðinu í dag
Þrátt fyrir að Logi hafi kúplað sig út
úr handboltanum hefur hann enn-
þá sínar skoðanir, eins og sést hef-
ur í EM-stofunni. Það er því ekki úr
vegi að lokum að spyrja aðeins út í
slakt gengi íslenska liðsins á mótinu
og hvað hann telji að gerist núna
innan HSÍ. „Það hefur verið ofboðs-
lega lítil endurnýjun í þessu lands-
liði og Aroni Kristjánssyni bara
mistókst sem þjálfara. Ég held að
það þurfi ein-
hvern nagla í
þetta núna.
Einhvern
sem borin er
mikil virðing
fyrir. Besti
kosturinn
væri auð-
vitað gaur
eins og Dag-
ur Sigurðs-
son, en það
er fullt af
körlum sem
geta kom-
ið og tekið
við þessu.
Ég hef meiri
áhyggjur af
því sem er
fram und-
an, við
erum svo
langt á eft-
ir í yngingu
liðsins. Við
fórum með
besta liðið sem við gátum teflt fram
á EM og þetta var lélegt. Punkt-
ur. Þegar menn bregðast svona þá
verða þeir að stíga til hliðar, eins
og Aron gerði. Ég myndi ekki einu
sinni treysta mér í að tengjast þessu
landsliði í dag. En ég held að þessi
lélegi árangur á þessu móti sé það
besta sem gat komið fyrir okkur. Nú
verður allt stokkað upp. Það fer allt
í naflaskoðun. Það er löngu kominn
tími á það.“ n
„Út af
fasteigna-
braskinu þá
hef ég þurft að
vinna mig upp
aftur, alveg frá
núlli. Eiginlega
úr mínus. Það
fór allt.
Niðursokkinn Logi
hefur í nógu að snúast
sem einkaþjálfari og
námsmaður. Þá hefur
hann líka verið að hanna
snjallsímaforrit. Móðir
hans málaði myndina á
veggnum, áður en hún
veiktist. Í dag getur hún
ekki haldið á pensli.
Talar upp sjálfstraustið
Logi talar við sjálfan sig í spegl-
inum á morgnana og líka áður en
hann fer í sjónvarpsviðtöl. Segir
sjálfum sér hvað hann sé frábær.
Útsalan er hafin
30-50% afsláttur af öllum útsölufatnaði
Sjáðu úrvalið á tiskuhus.is
Bæjarlind 1-3
201 Kópavogur
Sími: 571-5464
Stærðir 38-54