Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.2016, Blaðsíða 40
36 Menning Helgarblað 29. janúar–1. febrúar 2016
Rafport ehf • Nýbýlavegur 14 • 200 Kópavogur • S: 554-4443 • rafport.is
Fækkaðu
hleðslu-
tækjum á
heimilinu
með því að
hlaða snjall-
símann og
stærri raftæki
á einum og
sama staðnum
Tengill með USB
Sniðug lausn fyrir hvert heimili og fyrirtæki
Hafðu
samband
við okkur
eða næsta
löggilda
rafverktaka
Hugarvíl Önnu
Fram hjá
er fyrsta
skáldsaga
Jill Alex-
ander Ess-
baum,
en hún
er bók-
mennta-
prófessor.
Aðalpersóna
bókarinnar er Anna,
heimavinnandi húsmóðir,
sem á í ýmsum kynlífs-
samböndum utan hjóna-
bands sem færa henni enga
hugarró.
Nýjar bækur
Lágstemmd
saga
Nóvella
Halldóru
Thoroddsen,
Tvöfalt gler,
fékk Fjöru-
verðlaunin
2016 og þar
er gamalt fólk
í forgrunni.
Í rökstuðningi dómnefnd-
ar Fjöruverðlaunanna er sagan
sögð lágstemmd og fögur.
Prettir og svik
Hin hollenska Ida Simons er
höfund-
ur skáld-
sögunnar
Fávís mær.
Hin tólf
ára gamla
Gittel
kynnist
á milli-
stríðs-
árunum
ættingj-
um sín-
um í
Antwerpen og kemst
einnig í kynni við pretti og svik.
Bókin kom fyrst út árið 1959
en hefur verið endurútgefin og
þýdd á fjölmörg tungumál.
Tónlistarævintýri
um öðruvísi kóng
Glænýtt verk Báru Grímsdóttur frumflutt í Hörpu
Æ
vintýrið af Sölva og
Oddi kóngi er glænýtt
tónlistarævintýri eftir
Báru Grímsdóttur.
Verkið verður frum-
flutt í Norður ljósasal Hörpu næst-
komandi laugardag klukkan 12
og er dag skráin hluti af Myrkum
músíkdögum. Það var Töfrahurð,
tónlistar útgáfa sem hefur að mark-
miði að auka framboð af tónlistar-
efni fyrir börn, sem pantaði verkið
af Báru.
Auk þess að semja tónlistina við
verkið skrifaði Bára söguna sem er
byggð á íslenskum ævintýrum og
þjóðsögum. Helgi Zimsen er höf-
undur söngtexta. Níu manna hljóm-
sveit sér um flutning og meðal hljóð-
færa sem leikið er á eru saxófónn,
flauta, fagott, fiðlur, lágfiðla, selló,
harmon ikka og ásláttar hljóðfæri.
Magnús Ragnarsson stjórnar
hljómsveitinni. Verkið tekur tæpan
klukkutíma í flutningi og söngkonan
Margrét Eir er sögumaður. „Ég hafði
Margréti í huga þegar ég var að
vinna verkið, hún bæði segir söguna
og syngur,“ segir Bára. „Stúlkur úr
stúlknakór Neskirkju syngja með
henni í viðlögum og stúlkur úr List-
dansskóla Íslands sjá um dansinn
sem Guðmundur Helgason samdi.
Þar sem sagan sem er sögð er nokk-
uð flókin ákvað ég að hafa tónlistina
létta og grípandi og henni svipar að
nokkru leyti til stílsins sem einkennir
rímnalög, hvað varðar ritmann.“
Karlmaður og álfkona
Um söguþráð verksins segir Bára:
„Sagan segir frá sagnamanninum
Sölva sem fær vinnu hjá Oddi kóngi.
Þegar Sölvi kveður móður sína segir
hún honum að hún hafi eitt sinn
verið sótt til að taka á móti barni
í álfheimum og fengið að launum
lukkustein sem var huliðs steinn.
Hún gefur syni sínum steininn sem
kveðjugjöf. Sölvi fékk vinnu hjá
kóngi með því skilyrði að hann verði
að segja kónginum á sumardaginn
fyrsta á hvaða hátt hann sé öðruvísi
en aðrir. Sölvi gengur að því en fer
fram á að fá að sofa í sama herbergi
og kóngurinn. Á jólanótt fer Oddur
út úr herberginu og Sölvi nýtir sér
töfra huliðssteinsins og læðist á eftir
honum. Kóngurinn fer inn í álfa-
borg og Sölvi sömuleiðis. Sölvi sér
þá að Oddur er ekki lengur kóngur
heldur álfadrottning og það eru
álfa kóngur og börn sem bíða hans.
Veisla er haldin í höllinni og Sölvi
heyrir á tali þeirra hjóna að mikil-
vægt sé að gátan um Odd sé leyst
því annars muni Oddur deyja. Sölvi
hverfur á braut og er lagstur upp í
rúm þegar Oddur snýr aftur í karl-
mannsklæðum. Á sumardaginn
fyrsta segir Sölvi við Odd að honum
fari best rauði drottningarkjóllinn.
Þá er álögunum létt. Allt fer því vel
á að lokum.
Þetta er meginsagan en inn í
hana eru fléttaðar alls konar sögur.
Ævin týrið um Odd kóng er til í
ýmsum gerðum en það er einungis
í einni þeirra sem karlmaður er álf-
kona í álfheimum. Vinkona mín,
Rósa Þorsteinsdóttir þjóðfræðingur,
hefur rannsakað sagnafólk og
komist að því að líf þess endur-
speglast oft í þeim ævin týrum sem
það segir. Sú eða sá sem sagði frá
sögunni af Oddi hefur kannski upp-
lifað sig sem annað kyn og um leið
varð þessi útgáfa til.“
Söng uppi á réttarvegg
Bára, sem er tónmenntakennari
að mennt, er tónskáld, kórstjóri
og söngkona og er meðal annars
þekkt fyrir flutning sinn á íslenskum
þjóðlögum. Hún er formaður
Kvæðamanna félagsins Iðunnar.
Ævintýrið af Sölva og Oddi kóngi
er fyrsta stóra verkið sem hún semur
fyrir börn. Hún er spurð um áhuga
barna á tónlist og segir: „Börn eru
afar áhugasöm um tónlist. Þau
eru auðvitað mismunandi og sum
greinilega mun áhugasamari en
önnur og byrja að dansa og syngja
með þegar þau heyra tónlist.“ Bára
var sjálf kornung þegar tónlistar-
áhugi hennar kom í ljós. „Mamma
sagði mér að ég hefði farið að syngja
áður en ég fór að tala. Í sveitinni
í Vatnsdalnum var mér snemma
stillt upp á réttarvegginn og ég látin
syngja fyrir fólkið og pínulítil fór ég
á kirkjukórsæfingar með foreldrum
mínum. Eitt sinn sat ég á gólfinu
heima og hlustaði á útvarpið og fór
að leika stjórnanda og þá vildi afi
minn meina að ég ætti eftir að verða
kórstjóri.“ – Sem hún seinna varð.
Töfrahurð gefur út Ævintýrið
um Sölva og Odd kóng á bók í júní
með myndum eftir Höllu Sólveigu
Þorgeirsdóttur, en þeim myndum
verður einmitt varpað á vegg á tón-
leikunum í Hörpu. Geisladiskur
með flutningi á verkinu mun fylgja
bókinni. n
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
Bára Grímsdóttir
„Í sveitinni í Vatns-
dalnum var mér
snemma stillt upp
á réttarvegginn og
ég látin syngja fyrir
fólkið.“ Mynd ÞorMar ViGnir
GunnarSSon
„Þar sem
sagan sem er
sögð er nokkuð
flókin ákvað ég
að hafa tónlistina
létta og grípandi