Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.2016, Side 10
Helgarblað 29. janúar–1. febrúar 201610 Fréttir
n Hafði ekki upplýsingar um rétt Borgunar til greiðslna n „Við keyptum ekki þann hluta“
S
tjórnendur Íslandsbanka
höfðu engar upplýsingar
um að Borgun ætti rétt á
hlutdeild í söluandvirði
Visa Europe í júní 2014
þegar bankinn hafnaði tilboði hóps
fjárfesta og stjórnenda greiðslu
miðlunarfyrirtækisins í hlut hans.
Stuttu síðar ákvað bankinn að
kaupa ekki 31,2% hlut Landsbank
ans í Borgun sem var síðan seld
ur fimm mánuðum síðar í lokuðu
söluferli.
„Bankinn var ekki búinn að taka
neina ákvörðun um að selja þenn
an hlut og því var ákveðið að fara
ekki í viðræður um kaup eða sölu
á hlutum í Borgun,“ segir í skrif
legu svari Íslandsbanka við fyrir
spurn DV.
Buðu sama verð
Íslandsbanki átti 62,2% hlut í Borgun
þegar fjárfestahópur samansettur
af eigendum Eignarhaldsfélagsins
Borgunar slf. og æðstu stjórnendum
fyrirtækisins gerðu tilboð í allt hluta
fé þess. Rúmum þremur mánuðum
síðar ákvað Íslandsbanki að hafna
því en stjórnendur Landsbankans
ákváðu að taka 2,2 milljarða króna
tilboði hópsins í 31,2% hlut í greiðsl
umiðlunarfyrirtækinu. Stjórnend
urnir eru harðlega gagnrýndir fyrir
söluna sem gekk í gegn í nóvember
2014 en hún fór fram án þess að
eignin væri boðin út í opnu söluferli
eða fyrirvarar gerðir um hlutdeild í
söluandvirði Visa Europe sem skap
ast við yfirtöku Visa International
Service (Visa Inc.) á því. Söluverðið
á eignarhlutnum í Borgun var 88%
hærra en eigið fé fyrirtækisins en
nú er fullyrt að yfirtakan á Visa
Europe geti fært eigendum þess, og
samkeppnisaðilanum Valitor, vel á
annan tug milljarða króna.
„Við buðum sama verð fyrir hlut
inn í Íslandsbanka og við buðum
Landsbankanum, og Íslandsbanka
bauðst að kaupa Landsbankahlutinn
á sama verði og við keyptum hann
á, samkvæmt samantekt Lands
bankans um söluna,“ segir Magn
ús Magnússon, framkvæmdastjóri
Eignarhaldsfélagsins Borgunar, í
samtali við DV.
Hafði ekki áhrif
Eignarhaldsfélagið Borgun keypti
24,96% í greiðslumiðlunarfyrir
tækinu af Landsbankanum. Hin
6,24% fóru til BPS ehf. sem er í eigu
tólf æðstu stjórnenda Borgunar.
DV greindi á þriðjudag frá sölu
þeirra í ágúst í fyrra á 36% af hlut
BPS í Borgun. Salan fór fram tveim
ur og hálfum mánuði áður en til
kynnt var um kaup Visa Inc. á Visa
Europe. Seljendurnir fullyrtu þá
að þeir hefðu ekki gert neina fyrir
vara um hlutdeild í hagnaði Borg
unar vegna sölunnar á Visa Europe.
Eignarhaldsfélagið Borgun á í dag
29,38% hlut, BPS á 5% en Íslands
banki er stærsti hluthafi Borgunar
með 63,47%.
„Það var ekki verið að verð
leggja Visa Europe inn í þessi kaup,“
segir Magnús, aðspurður hvort
eignarhaldsfélagið hafi greitt hærra
verð á hlut fyrir 2,9% sem BPS seldi
en Landsbankinn rukkaði í nóvem
ber 2014.
Steinþór Pálsson, bankastjóri
Landsbankans, hefur ítrekað sagt
að upplýsingar um að Borgun gæti
átt rétt á hlutdeild í greiðslum vegna
Visa Europe hafi ekki legið fyrir
við söluna. Bankastjórinn hefur
einnig sagt að hann efist um að
kaupendurnir að hlut bankans hafi
vitað af milljarðatækifærunum sem
í þeim fólust. Greiðslumiðlunar
fyrirtækið hafi hins vegar aukið um
svif sín í Visaviðskiptum stórlega
eftir að Landsbankinn fór út úr hlut
hafahópnum. Samið var um valrétt
um kaup Visa Inc. á Visa Europe árið
2007. n
Hvað varð um
0,41% hlutinn?
Landsbankinn eignaðist 0,41%
hlut í Borgun í lok mars 2015 þegar
Fjármálaeftirlitið tók ákvörðun um
samruna bankans
og Sparisjóðs
Vestmannaeyja.
Þann 17. apríl
auglýsti bankinn
eignarhlutinn til
sölu og bárust þrjú
tilboð í hann. Hæsta
tilboðið kom frá
Fasteignafélaginu
Auðbrekku ehf. og
nam það 30 milljónum króna. Guðmundur
Hjaltason, fjárfestir og fyrrverandi
framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Glitnis,
er í forsvari fyrir félagið og samkvæmt
samantekt Landsbankans um söluna á
Borgun staðgreiddi hann kaupverðið.
Samkvæmt upplýsingum frá Borgun
er Fasteignafélagið Auðbrekka ekki
lengur hluthafi í Borgun. Þar að auki
er enginn hluthafi skráður með 0,41%
hlut. Ekki náðist í Guðmund við vinnslu
fréttarinnar.
Magnús Magnússon, framkvæmda
stjóri Eignarhaldsfélagsins Borgunar,
sem er í dag næststærsti hluthafi
greiðslumiðlunarfyrirtækisins á eftir
Íslandsbanka, segir félag sitt ekki hafa
keypt eignarhlutinn af Auðbrekku.
„Við keyptum ekki þann hluta,“ segir
Magnús.
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is
Bankastjórar
Steinþór Pálsson
hefur sagt að ekki
hafi legið fyrir
að Borgun ætti
rétt á greiðslum.
Birna Einarsdóttir
og stjórnendur
Íslandsbanka
vildu ekki selja.
Guðmundur
Hjaltason
Íslandsbanki vissi ekki
af milljarðatækifærinu
Sími 568-5556 www.skeifan.is
Eysteinn Sigurðsson
Löggiltur fasteignasali / Sími: 896-6000
eysteinn@skeifan.is / skeifan.is
Magnús Hilmarsson
Sölumaður / Sími: 896-6003
magnus@skeifan.is / skeifan.is
Sigurður Hjaltested
Löggiltur fasteignasali / Sími: 821-5400
sigurdur@skeifan.is / skeifan.is
Föst
söluÞÓKNuN
Sími 568-
5556 www
.skeifan.is
1% + vsk.Vegna mikillar sölu vantar allar stærðir eigna á skrá