Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.2016, Qupperneq 11
Fréttir 11Helgarblað 29. janúar–1. febrúar 2016
H
ópur fjárfesta hefur á síð
ustu vikum sýnt því áhuga
að kaupa meirihluta í Fáfni
Offshore. Ekki hafa fengist
upplýsingar um hverja er
að ræða né hvaða hluthafa þeir vilja
kaupa út. Samkvæmt heimildum DV
eru eigendur danska sjávarútvegsfyr
irtækisins Sirena A/S, sem á 2,8% hlut
í Fáfni í gegnum dótturfélag sitt Opt
ima Denmark ApS, óánægðir með
samskipti sín við stjórnendur Fáfn
is. Fyrirtækið rekur sérútbúna fimm
milljarða króna olíuþjónustuskip
ið Polarsyssel, dýrasta skip Íslands
sögunnar, og er með annað í smíðum.
Jóhannes Hauksson, stjórnar
formaður Fáfnis og framkvæmdastjóri
Akurs, stærsta eiganda fyrirtækisins,
vildi ekki svara því hvort tilboð í ráð
andi hlut í fyrirtækinu hefði borist.
Boe Spurré, framkvæmdastjóri
Sirena, vildi heldur ekki svara spurn
ingum blaðsins. Aftur á móti hafn
aði Jóhannes því ekki að tilboð hefði
borist og Boe ekki að fyrirtæki hans
hefði lýst áhuga á að auka hlutafé sitt
í Fáfni.
Lífeyrir í hlutafé
Framtakssjóðurinn Akur, sem er í
eigu þrettán lífeyrissjóða, Ís
landsbanka og VÍS, er stærsti
eigandi Fáfnis með 30%
hlut. Sjóðurinn fór inn í
hluthafahópinn í nóvem
ber 2014 þegar hann lagði
fyrirtækinu til 1.260 millj
ónir króna í hlutafjáraukn
ingu. Framtakssjóðurinn
Horn II, sem er í eigu
lífeyrissjóða, fjár
málafyrirtækja
og fagfjárfesta,
er næststærsti
hluthafinn
með 23% hlut
samkvæmt
nýjasta árs
reikningi
Fáfnis. Þar
á eftir kem
ur Fafnir
Holding ehf.
með 21% en það er í eigu Steingríms
Erlingssonar, stofnanda og fyrrver
andi framkvæmdastjóra Fáfnis. Hin
ir fimm hluthafarnir, þar á meðal
Sjávarsýn ehf. sem er í eigu Bjarna
Ármannssonar, fjárfestis og fyrrver
andi forstjóra Glitnis, og Hayvard
Ship Invest AS, sem eru í eigu norsku
skipasmíðastöðvarinnar Hayvard,
eiga minna en 10%.
Olíuverð hrunið
Steingrímur Erlingsson var rekinn
frá Fáfni í desember síðastliðnum en
hann hafði fram að þeim tíma verið
andlit fyrirtækisins út á við. Jóhannes
Hauksson tók við stöðu stjórnar
formanns nokkrum vikum síðar
af Bjarna Ármannssyni sem hafði
þá sinnt hlutverkinu í rúma fimm
mánuði. Þeir hafa ekki viljað tjá sig
um stöðu fyrirtækisins sem sérhæfir
sig í þjónustu við olíu og gasborpalla
auk annarra verkefna á norðlægum
slóðum. Mikil lækkun olíuverðs hefur
leitt til verkefnaskorts hjá mörg
um fyrirtækjum sem þjónusta olíu
iðnaðinn og samkvæmt fréttaflutn
ingi, sem stjórnendur Fáfnis hafa ekki
gert athugasemdir við, er fyrirtæk
ið einungis með eitt verkefni í hendi.
Þar er um að ræða samning við
norska ríkið um að Polarsyssel sinni
gæslustörfum við Svalbarða.
Fáfnir tilkynnti í apríl 2014 að fyrir
tækið hefði samið um smíði á öðru
skipi, Fáfni Viking. Áform þess
gerðu þá ráð fyrir að flotinn ætti
eftir að stækka enn frekar þannig
að hann teldi þrjú til fjögur skip.
Afhendingu Víkingsins hefur
verið frestað nokkrum sinnum
en upphaflega stóð til að Fáfnir
fengi skipið í mars á þessu ári.
Tunna af Norðursjáv
arolíu (e. Brent Cru
de) kostaði um 109
Bandaríkjadali
þegar skipið var
pantað. Hún hef
ur síðan þá fallið
um 70% í verði
og síðustu vikur
kostað um 30
dali. n
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is
vilja meiri-
hluta í FáFni
M
ál nígerísks hælisleitanda
sem handtekinn var þann
23. júlí í fyrra, grunaður um
að hafa smitað konur vís
vitandi af HIVveirunni, er enn í
rannsókn og er óljóst að svo stöddu
hvenær henni lýkur. Þetta segir
Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlög
regluþjónn hjá rannsóknardeild lög
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu,
sem staðfestir að gögn, sem óskað var
eftir erlendis frá vegna rannsóknar
málsins og beðið hafði verið eftir, séu
komin. Ekki er gefið upp hvers eðlis
þessi gögn voru að öðru leyti en að
þau tengist rannsókn málsins.
Maðurinn, sem er á þrítugsaldri,
var úrskurðaður í mánaðarlangt
gæsluvarðhald, einangrun og far
bann í sumar eftir að upp komst
um málið. Hann kom til landsins í
september 2014 og óskaði eftir hæli
hér á landi en þeirri beiðni hans var
hafnað í mars í fyrra. Samkvæmt
gæsluvarðhaldsúrskurðinum hafði
maðurinn verið í sambandi við tvær
konur hér á landi en málið komst
upp tveimur vikum fyrir gæsluvarð
haldsúrskurðinn þegar kona frá
Sviss hringdi í fyrrverandi kærustu
mannsins og upplýsti hana að mað
urinn væri smitaður af HIV. Konan
fór í próf og reyndist smituð af HIV.
Við rannsókn á manninum fékkst
staðfest að hann væri kominn með
annað stig sjúkdómsins, alnæmi.
Hin kærastan reyndist einnig smituð
en niðurstöður mannsins bentu til
að hann hefði verið smitaður í fimm
til tíu ár og viðurkenndi hann að
hafa átt samneyti við fleiri konur en
þessar tvær.
Þess ber að geta að maðurinn
ber því við að hafa ekki vitað að
hann væri smitaður. Fram kemur
í gæsluvarðhaldsúrskurðinum að
meðal gagna sem lögreglan þurfi að
afla erlendis frá varði manninn og
heilsufarssögu hans. Þá þurfi að hafa
uppi á þeim konum sem tengist mál
inu og taka af þeim skýrslur. Friðrik
Smári vildi ekki gefa upp hvort stað
fest væri hversu margar konur væru
smitaðar. Maðurinn hefur verið frjáls
ferða sinna síðan í sumar. n
mikael@dv.is
Erlend gögn í HIV-máli komin
Rannsókn ekki lokið í máli nígerísks hælisleitanda sem sakaður er um að hafa smitað konur
Engin niðurstaða Óljóst er hvenær
rannsókn lýkur.
Danskur hluthafi ósáttur við samskipti við stjórnina
Jóhannes
Hauksson
Polarsyssel Skip Fáfnis sinnti meðal
annars verkefnum fyrir Gazprom í Rúss-
landi og Shell í Bretlandi áður en lækkun
olíuverðs setti strik í reikninginn.
Plast, miðar og tæki ehf. Krókhálsi 1 110 Reykjavík s. 567 8888 www.pmt.is
gæði – þekking – þjónusta
Umhverfisvænir pokar
sem brotna niður í umhverf inu
Nánari upplýsingar á www.pmt.is
eða í síma 567 8888
• Umhverf isvænu plastpokarnir f rá PMT eru ekki maíspokar
• Þe ir eru með skaðlaust d2w íblöndunarefni
• d2w breyt ir plastpokunum að líf tíma
þe irra loknum svo að þe ir samlagist
nát túrunni á sama hát t og laufblað
Við bjóðum uppá alls kyns gerðir af
umhverfisvænum plastpokum. Íslensk plastfyrirtæki
sem vilja gerast umhverfisvænni geta jafnframt
fengið hjá okkur íblöndunarefni.
Pokar í
s töðluðum stærðum
eða
séráprentaðir
Er skipulagið í lagi...?
Lausnir fyrir heimili og fyrirtæki
Brettarekkar
Gey
mslu
- og
dekk
jahi
llur
Mikil burðargeta
Einfalt í uppsetningu
KÍKTU VIÐ Á WWW.ISOLD.IS OPIÐ 08:00 - 17:00
Nethyl 3-3a - 110 Reykjavík
Sími 53 53 600 - Fax 567 3609