Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.2016, Síða 19
Umræða 19Helgarblað 29. janúar–1. febrúar 2016
Myndin Hetja í Þýskalandi Með vængbrotið lið kom Dagur Sigurðsson Þjóðverðum í undanúrslit á EM í handbolta í Póllandi. Stórlið Dana var lagt að velli í spennu
þrungnum leik og Dagur varð um leið hetja í heimalandinu – enda bjóst enginn við viðlíka árangri. Þjóðverjar mæta Noregi í undanúrslitum í dag. mynd EPA
Ég er ákaflega
sár yfir þessu
Við erum örugglega
rænd á hverjum degi
Ég er kona sannleikans
og ég þoli ekki meðvirkni
Jóna Sigrún er þakklát þeim sem komu henni til hjálpar í umferðinni. – DV Kári H. Jónsson stendur í deilum við kirkjuna um dúntökurétt. – DV Stefán Árnason, fjármálastjóri IKEA, um þjófnað úr versluninni. – DVVigdís Hauksdóttir gerir sér grein fyrir því að hún sé umdeild. – Hringbraut
Mest lesið
á DV.is
1 Stúlkan sem fór í trekant á almannafæri svarar
fyrir sig Tvítugri stúlku, sem mynduð
var í hópkynlífi með tveimur mönnum
úti á götu í Calgary í Kanada, hefur verið
hampað sem hetju eða hún úthrópuð
drusla vegna myndbands sem birtist af
henni og mönnunum. Hún hefur svarað
fyrir sig.
Lesið: 55.133
2 Aldrei samur eftir þrjú högg: Árásarmaður
titlar sig
„Skullbrea-
ker“ Ólafur
Þór Ólafsson
er fórnarlamb
líkams árásar.
Áverkar hans
voru alvarlegir
og mun hann að
líkindum aldrei
jafna sig.
Lesið: 45.455
Er alveg sjálfsagt að einkavæða bankana?
R
íkið á í dag 98,2% hlut í Lands
bankanum, 22,6% hlut í
Arion banka og fljótlega mun
ríkið eignast Íslandsbanka að
fullu. Þá verður bankakerf
ið í landinu að ¾ hlutum í eigu ríkis
ins. Er það gott eða slæmt? Hver eru
rökin með og á móti einkavæðingu í
þetta sinn?
Það er gjarnan bent á að vaxtagjöld
ríkisins eru mikil og nota mætti and
virði seldra hluta í bönkunum til að
lækka skuldir og vaxtagjöld. Heildar
vaxtagjöld ríkisins árið 2016 eru
áætluð 74 ma. kr. og þar er vaxtakostn
aður vegna framlags ríkisins til bank
anna metinn á 7,6 ma. kr. Með því að
selja hlut ríkisins í bönkunum mætti
vissulega draga úr skuldum og þar
með vaxtagjöldum en um leið hættir
ríkið að fá arð af bönkunum og hlut
deild í hækkandi verðmæti þeirra. Að
meðaltali hefur ríkið fengið 9,4 ma. kr.
í arð sem er 2 ma. kr. hærri en vaxta
kostnaðurinn af framlaginu.
Eigið fé aukist hratt
Á þessu ári gæti Landsbankinn greitt
óvenju mikinn arð, allt að 63 ma. kr. og
þótt arðurinn á næstu árum verði hóf
legri verður hann að öllum líkindum
hærri en vaxtakostnaðurinn. Það virð
ist því koma betur út fyrir ríkissjóð að
eiga bankana áfram.
Eigið fé bankana hefur aukist hratt
frá stofnun þeirra. Hlutdeild ríkisins
í aukningunni hefur numið alls um
116 ma. kr. og þá er stöðugleikafram
lagið ekki meðtalið. Ef bankarnir skila
hagnaði áfram mun eigið fé bankanna
líka vaxa. Söluverðmæti bankana
getur aukist verulega á næstu árum
því nú er verðmat á bönkum almennt
lágt miðað við sögulegt meðaltal og
væntanleg sala Arion banka kemur í
veg fyrir að besta verð fáist fyrir hlut
ríkisins í Landsbanka á sama tíma.
Það getur tekið nokkur ár fyrir mark
aðinn að ná sér á strik aftur og á með
an væri skynsamlegt fyrir ríkið að bíða
með öll söluáform. Að selja við núver
andi aðstæður getur vel leitt til þess
að ríkið fái tugmilljörðum lægra verð
fyrir hlut sinn en ella.
Öruggast að eiga bankana
Í öðru lagi hefur verið nefnt að það sé
áhættusamt fyrir ríkið að eiga stóran
hlut í bönkunum og því liggi á að selja.
Það er vissulega rétt en vandinn er
hins vegar sá að þótt ríkið einkavæði
bankana situr áhættan eftir sem
áður að verulegu leyti á ríkis sjóði.
Bankarnir eru hver um sig of stórir og
mikilvægir til að fá að fara á hausinn
eins og venjuleg einka fyrirtæki. Ríkið
myndi ávallt koma þeim til bjargar á
kostnað skattgreiðenda. Þar til fundin
er lausn á þeim vanda er öruggast
fyrir ríkissjóð að eiga bankana og setja
þeim eigendastefnu sem takmarkar
áhættu þeirra og dregur þannig á
hættu á frekari skakkaföllum ríkis
sjóðs vegna falls bankanna.
Ef bankarnir yrðu einkavædd
ir núna munu nýir eigendur vilja há
marka arðsemi sinnar fjárfestingar.
Þeir myndu setja bankanum stefnu
sem þýddi töluvert meiri áhættutöku
en ríkið hefði gert sem eigandi. Nýir
eigendur myndu einnig vilja hámarka
vaxtamun bankans og hækka þjón
ustugjöld en hvorugt kæmi sér vel fyrir
viðskiptavini bankanna, fyrirtækin
og heimilin í landinu. Vegna þess að
hér ríkir fákeppni á bankamarkaði
er mjög hætt við því að einkavæddir
bankar geti dregið til sín óeðlilega
mikinn hagnað út úr hagkerfinu.
Við slíkar aðstæður virðist betra fyrir
landsmenn og einnig ríkissjóð að eiga
bankana enn um sinn og setja þeim
stefnu um hóflegan hagnað, hóflega
áhættu og hagkvæmni í rekstri.
Liggur ekki á að selja
Sem betur fer liggur ekkert á að
selja bankana og því ætti að gefast
góður tími til að ræða kosti og galla
einkavæðingar á þeim og treysta um
gjörð þeirra. Næstu misseri mætti
nýta til að skipta bönkunum upp í
viðskiptabanka, fjárfestingabanka og
íbúðalánabanka til að draga úr áhættu
þessara ólíku sviða. Peningamyndun
þyrfti að færast alfarið frá bönkum til
Seðlabankans þannig að peninga
kerfið, sem aldrei má bregðast, verði
ekki lengur háð fjárhag einstakra
banka eins og nú er. Eftir þessar
breytingar væru bankarnir áfram
stöndug og verðmæt fjármálafyrirtæki
sem ríkið gæti einkavætt án þess að
sitja áfram uppi með áhættuna. n
„Að selja við nú-
verandi aðstæður
getur vel leitt til þess að
ríkið fái tugmilljörðum
lægra verð fyrir hlut sinn
en ella.
Kjallari
Frosti Sigurjónsson
þingmaður framsóknarflokksins
mynd SAmSEtt