Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.2016, Side 27

Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.2016, Side 27
Helgarblað 29. janúar–1. febrúar 2016 Fólk Viðtal 23 mig upp á nýtt. Það var hrikalega erfitt. Ég hugsa oft til strákanna sem eru að hætta og þurfa að fara að fóta sig í lífinu. Þetta er löng brú að fara yfir. Maður hugsar nefnilega ekkert fram í tímann sem íþróttamaður. Maður sér bara næstu Ólympíuleika eða næsta Evrópumót. Þetta er allt öðruvísi en daglegt líf. Það hefur breyst mikið hjá mér.“ Logi stendur skyndilega upp og segist ætla að lækka í útvarpinu. Blaðamaður hafði reyndar ekki tek- ið eftir því að það væri í gangi. En ef lagt er við hlustir heyrist ómur af því einhvers staðar innan úr húsinu. „Ég er í alvöru með svo mikið ADHD að ég heyri allt,“ segir hann hlæjandi og sest aftur niður. Fórnarlamb frægðarljómans „Ég fór úr því að vera „high profile“ í að vera „low profile“. Ég var bók- staflega alls staðar. Það kom ekki út Séð og heyrt-blað án þess að ég væri á forsíðunni. Ég var keyrandi um á mótorhjóli með stelpur í gæsun, var að auglýsa skartgripi, var skemmt- anastjóri í veislum, hélt fyrirlestra úti um allt land undir yfirskriftinni: Það fæðist enginn atvinnumaður. Ég er reyndar mjög stoltur af því og það var gaman. En annars var það fullt starf að gera greiða hér og þar, mæta hingað og þangað. Ég hafði varla tíma til að vinna,“ segir Logi sem virðist, miðað við frásögnina, á einhvern hátt orðið fórnarlamb að- stæðna. Fórnarlamb frægðarljóm- ans sem hann kunni svo vel að meta í fyrstu. Svo varð athyglin of mikil. „Ég fékk bara ógeð á sjálfum mér. Það var ákveðin stund sem var kornið sem fyllti mælinn. Ég stóð í Hörpu og var að kynna tónleika fyrir fullu húsi þegar það rann upp fyrir mér að þetta væri búið. Ég hugsaði með mér hvert ég væri kominn. Ég var kynnir á tónleikum, af hverju í ósköpunum?“ spyr Logi og baðar út höndum til að leggja áherslu á mál sitt. Þar sem hann stóð í Eld- borgarsalnum áttaði hann sig á hve fáránleg sú staðreynd var. Ástandið var orðið svo súrrealískt að það var varla að haldinn væri viðburður án þess að Logi kæmi þar nálægt með einum eða öðrum hætti. „Ég var baksviðs með öllum tónlistar- mönnunum eftir tónleikana, svo fór ég heim þar sem ég ákvað að segja stopp. Þetta var komið gott.“ Í kjölfarið tók hann nafnið sitt úr símaskránni og var hvergi með númerið sitt skráð. Hann hætti að svara fólki nema það væri að spyrja að einhverju sem skipti máli. Það fannst honum mjög frelsandi. Að fá að vera í friði. Ætlar að sigra heiminn með snjallsímaforriti Logi viðurkennir að að sjálfsögðu hafi hann notið þessara gífurlegu vinsælda, hann spilaði með og lét svo sannarlega ekki lítið fyrir sér fara. En öllu má ofgera. Hann segist finna fyrir því um leið og hann gefur kost á sér, eins og núna í EM-stofunni, þá fer allt í gang aftur. Hann fékk til að mynda um 70 til 80 skilaboð á Facebook eftir fyrsta þáttinn. Þar voru boð um ýmislegt og beiðnir um að taka þátt í hinu og þessu. „Ég var bú- inn að hugsa hvað það væri gott að vera svona „low profile“. Þetta er allt öðruvísi líf.“ Þegar blaðamaður spyr hvort honum finnist þá óþægilegt að athyglin beinist að honum aftur, brýst fram glott og hann svarar: „Ég er kannski ekkert að hata það.“ En þótt hann fíli athyglina langar hann ekki að fara aftur á þann stað að vera alltaf á milli tannanna á fólki. Enda sé hann orðinn fjöl- skyldumaður sem sé að sinna sínum verkefnum. Hann sinn- ir fjarþjálfun hjá fyrirtækinu sínu, Fjarform.is, og er að ljúka meistara- námi í forystu og stjórnun frá há- skólanum á Bifröst. Þá er Logi búinn að vera að skrifa snjallsímaforrit síðustu ár og fór meira að segja og hitti fjárfesta í Sil- icon Valley í Kaliforníu. „Ég ætlaði að sigra heiminn og það var mjög eftirminnilegt. Ég fór í höfuðstöðv- ar Google og hitti þar fjárfesta. Ég fór út um allt á mínum eigin verð- leikum. Hafði engar tengingar, svip- að og ég gerði í handboltanum.“ Um er að ræða smáforrit sem Logi segir að komi til með að bæta heilsu fólks í heiminum og hann hefur fulla trú á að ná langt með það. „Ég var bara með söluræðu: „Þetta er ofboðs- lega flott og þetta er að fara að virka, viltu kaupa þetta?“ Þetta var mjög eftirminnileg ferð sem þroskaði mig mjög mikið. Mig langar svo að færa mig yfir í þetta, að vera skap- andi og búa til snjallsímaforrit. En BS-ritgerðin mín fjallaði einmitt um snjallsímaforrit.“ Logi segir allt enn í vinnslu í Kaliforníu. Það er því ekki útséð með að hann sigri heim- inn. „Fólk mun sjá snjallsímaforrit frá mér á þessu ári. Ég er búinn að lofa þessu í tvö ár, en forritið kemur 100 prósent á þessu ári,“ segir hann og þar með er það skrásett. Klúður í markmiðasetningu á ÓL Það stendur ekki á svari hjá Loga þegar hann er spurður hvort hann sé sáttur með sinn feril í handbolt- anum. „Já, minn ferill var fullkom- inn. Gjörsamlega fullkominn. Það heppnaðist allt,“ segir hann dreym- inn á svip og bros færist yfir andlitið. Hann er stoltur af sínu. Toppurinn var að sjálfsögðu að standa á verð- launapalli á Ólympíuleikunum í Peking árið 2008. „Þetta var rosa- legt. Þvílíkt teymi sem við vorum. Alveg ótrúlegir karakterar.“ Hann segist þó vera svekktur yfir því að þeir hafi ekki tekið gullið. Hann er svekktur yfir því að liðið hafi aðeins sett sér markmið um verðlauna- pening, en ekki hreinan og beinan sigur. Verðlaunapeningurinn var í höfn þegar úrslitaleikurinn var spilaður og því fór sem fór, að hans mati. „Við mættum ekkert í leikinn. Þetta var ekki liðið sem var búið að vera að spila alla Ólympuleikana,“ segir Logi og skefur ekkert utan af því. Hann er jafnframt svekktur yfir því að hafa rifið sig úr að ofan eftir undanúrslitaleikinn því slíkt hafði hann bara fyrir venju þegar einhverju markmiði var náð. Hann fagnaði of snemma í Peking. „Að reyna að segja: Gott silfur er gulli betra, það er bara kjaftæði. Það er ekkert betra en gull.“ Þroskaðist af fasteignabraski Logi viðurkennir að auðvitað hafi atvinnumennskan ekki alltaf ver- ið dans á rósum. Það var ýmislegt sem kom upp á. Sumt alvarlegra en annað. En þegar litið er til baka nær ekkert af því að skyggja á raunveru- legu gleðina sem fylgir frábærum árangri. Í Þýskalandi var Logi plataður inn í fasteignaviðskipti í gegnum fé- laga sinn hjá liðinu. Hann fjárfesti í nokkrum íbúðum til útleigu og átti að stórgræða á viðskiptunum. Fljót- lega kom hins vegar í ljós að ekki var allt með felldu. Hann og fjöldi annarra handknattleiksmanna, þar á meðal Íslendinga, höfðu ver- ið sviknir. Logi tapaði miklum fjár- munum í viðskiptunum og við tóku löng málaferli sem lauk ekki fyrr en nýlega. „Ég er búinn að ganga frá öllu mínu. Þetta er búið að vera fimm ára eyðimerkurganga en á heildina litið held ég að þetta hafi þroskað mig. Ég er sá maður sem ég er í dag út af þessu. Auðvitað hefði ég ekki viljað lenda í þessu á sín- um tíma, en eftir á, þá var frábært að þetta gerðist. Ég sé lífið með allt öðrum augum. Ég hef ekki áhyggj- ur af því sem ég get ekki breytt. Eitt- hvað sem ég hafði áður. Ég var alltaf að hafa áhyggjur af einhverju sem skipti engu máli. Ég hugsa ekki einu sinni um þetta mál lengur.“ Vildi bara vinna Eins og Logi segir frá í bók sinni þá varð hann mjög seint kynþroska og það háði honum þó nokkuð. Hann hætti meira að segja að æfa hand- bolta um tíma og vissi ekki alveg í hvorn fótinn hann átti að stíga. En loksins þegar kynþroskinn fór að láta á sér kræla fóru hlutirnir að ger- ast. Hann vissi allt í einu nákvæm- lega hvað hann vildi og ætlaði sér að ná markmiðum sínum. Hann vildi komast til þýska liðsins Lemgo, sem var eitt það sterkasta í Evrópu. Og þangað fór hann. „Það er vinnusemin sem skipt- ir máli. Allir þessir strákar þarna úti sem eru að stefna á að verða at- vinnumenn í fótbolta, þeir geta það. Sama hvort þeir koma úr brotn- um fjölskyldum eða eiga ekki pen- ing fyrir skóm. Ef maður vill eitt- hvað nógu mikið, þá getur maður það. Það er alveg ótrúlegt. Ég er lif- andi dæmi um það. Ég fór gjörsam- lega alla leið,“ segir hann sjálfsör- uggur. „Það var aldrei stefnan hjá mér að verða bestur í heimi, en ég vildi vinna allt. Það snerist allt um að vinna. Sama hvort mitt hlutverk í leiknum væri 60 mínútur eða 30. Ég vildi bara verðlaun. Ég hélt virki- lega að við yrðum heimsmeistar- ar, að við yrðum Evrópumeistarar og Ólympíumeistarar. Ég held að ég hafi öðruvísi hugsunarhátt en margir aðrir. Ég hugsa aldrei til þess að andstæðingurinn sé með sterkt lið,“ útskýrir Logi. „Logi, þú ert frábær“ „Ég er með ofsalega gott sjálfs- traust og tala mig mikið upp. Kon- an mín hlær ennþá af því á morgn- ana þegar ég tala við sjálfan mig í speglinum. Ég geri þetta líka alltaf áður en ég fer í viðtöl í sjónvarpinu. Eins og fyrir EM-stofuna, þá fór ég inn á klósett og sagði: „Logi, þú ert frábær. Þú ert alveg með þetta.“ Við getum talað svona við sjálfið okk- ar og þetta virkar. Þetta veitir mér vellíðan.“ Eftir sex ár hjá Lemgo sneri Logi aftur heim. Þá var öxlin orðin mjög slæm og hann hafði lítið sem ekkert spilað mánuðum saman. „Ég kom heim og vann Íslandsmeistaratitil- inn með FH. Ég var búinn að segja það í viðtali nokkrum árum áður að ég ætlaði að enda ferilinn á því. Það var fullkomið. Ég lokaði þessu og sagðist vera hættur. Þetta var bara eins og í ævintýri.“ Lokamarkmiðið var í höfn og það mátti ekki seinna vera. Meiðslin voru farin að hrjá hann andlega, hann gat ekki sofið og tók mikið af verkjalyfjum til að halda sér gangandi. Verkurinn í öxl- inni var stöðugur. Bindið setti Ísland á hliðina Líkt og áður sagði er Logi þekktur fyrir að fara sínar eigin leiðir. Hann gerir það ekki meðvitað, heldur er það bara hans persónuleiki. „Ég hef aldrei verið talinn eðlilegur. Ég er öðruvísi. Ég geri hlutina án þess að spá í hvað fólki finnst. Eins og að mæta með gullbindi í sjónvarp- ið. Það setti Ísland á hliðina. Ég er búinn að fá að heyra að þetta verði fyrsta atriðið í næsta Skaupi. Svo fékk ég boð um að leika í kvikmynd með Ingvari E. Sigurðssyni,“ seg- ir Logi hlæjandi. Hann hafnaði þó boðinu. Segist ekki hafa tíma fyrir slíkt. En allir ásælast bindið. Vilja fá að prófa eða fá það lánað í Frelsandi að vera i friði Þó að Logi kunni vel að meta athygli þá langar hann ekki að fara aftur á þann stað að vera alltaf á milli tannanna á fólki. Myndir ÞorMar Vignir gunnarsson 300 þúsund króna bindi Logi segist alls ekki vera ríkur þótt hann hafi keypt sér rándýrt bindi. Hann kom út í mínus eftir fasteignabraskið í Þýskalandi og hefur þurft að vinna sig upp.„Ég stóð í Hörp u og var að kynna tónleika fyrir fullu húsi þegar það rann upp fyrir mér að þetta væri búið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.