Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.2016, Blaðsíða 31
Helgarblað 29. janúar–1. febrúar 2016 Fólk Viðtal 27
og skúrir, eins og gengur og gerist, á
þessum rúmu 40 árum. „Kannski höf-
um við bara verið heppin en auðvitað
erum við langt frá því að vera fullkom-
in. Til að svona gangi verður fólk að
eiga skap saman, geta verið ósam-
mála, rifist og umborið aðrar skoðanir
en sínar eigin. Við höfum alltaf verið
góðir félagar og á heildina litið verið
góðir vinir en líka átt í árekstrum, og
við skildum til að mynda í eitt ár. Við
vorum ung og höfðum bara gott af því.
Það var eitthvað sem varð að gerast.“
Þrátt fyrir langt samband hafa
þau aldrei látið pússa sig saman. „Ég
held að við séum ekkert að fara að
gifta okkur. Ekki nema það sé eitt-
hvað praktískara upp á erfðamál. Ein-
hvern tímann vorum við trúlofuð en
eftir að Hulda sturtaði niður trúlof-
unarhringnum höfum við ekkert rætt
það aftur.“
Fimm ár í New York
Eftir þrjú ár í Myndlista- og handíða-
skóla Íslands fékk Jón Óskar nóg og
fór að leita sér að skóla erlendis. „Ég
hugsaði helst um Berlín, London, New
York eða Pólland. Í Póllandi var mikil
hefð í plakatgerð sem var eitthvað sem
ég hafði áhuga á að nýta í myndlist og
fór því í pólska sendiráðið þar sem
mér var sagt að það væri galin hug-
mynd svo ég hætti við það. Mér fannst
Berlín líka spennandi en London ekki
eins, og þar sem ég hafði lært frönsku
en ekki þýsku í menntaskóla var þægi-
legra að fara til enskumælandi borgar.
Það var því lógískt að velja New York,“
segir hann en þau Hulda skráðu sig í
nám í School of Visual Arts í New York
og dvöldu í borginni í fimm ár.
„Þetta voru miklir umbrotatímar
í borginni; þegar nýja málverkið var
að koma fram. Svo náðum við í rass-
inn á því sem á undan hafði verið.
New York er svo furðulegur suðu-
pottur. Einhvern veginn eru allir
útlendingar. Þessi borg er ekkert lík
Ameríku. Maður tekur eftir því þegar
maður kemur þarna aftur að allt
það fólk sem maður þekkti er farið.
Þetta er svæði ungs fólks. Í New York
hefurðu aðgang að öllu því sem er
mest spennandi. Ef það er ekki kom-
ið kemur það fljótlega.“
Bowie stærstur
Tónlist hefur alltaf skipað stóran
sess í lífi Jóns Óskars. „Ég hef alltaf
öfundað tónlistarmenn en held að ég
sé ekki með þetta eyra sem þarf. Ég
var í barnamúsíkskóla og vildi alltaf
verða eins og John Lennon en fann
fljótt að tónlist var ekki mitt „game“.
Ég hlusta gríðarlega mikið en vinn-
an hjá mér er þannig að ég er aldrei
stöðugt á vinnustofunni heldur vinn
ég í skorpum. Undanfarnar tvær vik-
ur hef ég hlustað á plötur frá morgni
til kvölds og punktað niður. Svo kem-
ur að því að ég tek vinnutörn. Ég hef
aldrei verið góður í níu til fimm ritma.“
Einn af þeim tónlistarmönnum
sem hafa haft hvað mest áhrif á Jón
Óskar er David Bowie. „Ég hef verið
mikill aðdáandi alveg síðan hann
kom fyrst fram. Ég man hvað ég var
hissa þegar ég heyrði fyrst í honum.
Hann bjó til nýjan heim. Þessi dauð-
dagi er líka alveg ótrúlegur – hvernig
hann kemur með lokaplötu þar sem
hann slúttar öllu, eins og þessu hafi
verið leikstýrt,“ segir Jón Óskar og
viðurkennir að hann syrgi stjörnuna.
„Algjörlega og ég hef verið mjög hissa
hvað margir virðast hafa verið Bowie-
aðdáendur. Hér áður fyrr fannst mér
ég eini maðurinn sem hafði áhuga á
þessu. Það virðast allir hafa verið „pri-
vate“ í þessum áhuga á honum,“ segir
hann. Jón Óskar sá goðið flytja tónlist
sína. „Ég var meira að segja í áhorf-
endahópi með honum að horfa á Iggy
Pop. Þá hnippti félagi minn í mig og
sagði mér að kíkja aftur fyrir mig. Þar
var hann. Að hlusta á vin sinn. Svo sá
ég hann náttúrlega í Laugardalshöll.
Þetta hefur verið mikið „obsession“.
Hann er allra stærstur í mínu lífi,
hann og Bítlarnir. Bowie og Ringo
Starr og Kinks – ég er mikill aðdáandi
Ray Davies.“
Búa á vinnustofunni
Jón Óskar og Hulda hafa alla tíð deilt
verkstæði en tóku skrefið lengra fyrir
stuttu og búa nú á vinnustofunni. „Við
eigum íbúð á Hverfisgötu en leigjum
hana út. Þetta gekk ekki lengur. Við
vorum alltaf að draga heim með okk-
ur alls kyns dót. Íbúðin leit út eins og
vinnustofa. Þess vegna ákváðum við
að fá okkur vinnustofu á Granda og
flytja þar inn. Í einu horninu er sófa-
sett og í öðru eldhús en að öðru leyti
er þetta vinnustofa. Þetta hefur gefist
mjög vel og maður þarf ekkert að af-
saka þótt það sé drasl því þetta er bara
vinnustofa. Plássið niðri er fyrir grófa
vinnu og sóðaskap en efri hæðin fyrir
fíngerðari vinnu.
Við vinnum þó aldrei á sama tíma.
Það hentar okkur ekki því þá erum við
fyrir hvort öðru. Hulda vinnur mikið
í gips og það er mikið ryk sem fylgir
því. Ég er með olíu og terpentínu. Það
verður allt undirlagt hjá okkur. Þetta
er spurning um „físík“. Við eigum líka
vinnustofu í Vestmannaeyjum sem er
mun stærri og þar getum við unnið
bæði í einu.“
Lítil fjölskylda hentaði
Burkni, einkasonur Jóns Óskars og
Huldu, hefur ekki fetað í fótspor for-
eldra sinna og lagt listina fyrir sig. „Ég
hef tekið eftir því með börn kollega
minna að þau hafa tilhneigingu að
fara í öruggara starfsumhverfi. Burkni
er forritari og með eigið fyrirtæki og
var með mér í Gagarín á sínum tíma.
Í dag býr hann til leiki sem reyndar er
áhættusamur bransi. Kannski hefur
hann aðeins smitast af okkur. Hann
gæti alveg fengið sér vinnu enda þörf
á tölvufólki, en hann hefur frekar kos-
ið að vinna sjálfstætt.“
Burkni á þrjá syni og Jón Óskar er
því kominn í afahlutverkið sem hann
segir leggjast vel í sig. „Ég er sífellt að
reyna að átta mig á því hvernig mað-
ur á að vera sem afi. Þetta eru flottir
strákar. Við eignuðumst bara einn son
og einhvern tímann sá ég fyrir mér
að maður gæti bara dáið út. Ég varð
því kátur þegar ég áttaði mig á því
að Burkni og hans kona vildu eign-
ast stóra fjölskyldu. Enda er eilífðin
fólgin í því að halda áfram í öðru fólki.
Smæð okkar fjölskyldu stafar örugg-
lega af vinnunni. Ég veit ekki hversu
vel það hefði hentað okkur að eiga
mörg börn, verandi bæði myndlist-
arfólk. Við settumst þó aldrei niður
og ræddum það. Ætli þetta hafði ekki
verið ómeðvituð ákvörðun.“
Listamannalaun nauðsynleg
Listamannalaun hafa verið ofarlega
á baugi í samfélaginu upp á síðkastið
– rökdeilur sem koma Jóni Óskari
ekki á óvart. „Þessi umræða kemur
upp á hverju ári og hefur gert síðustu
20 árin. Ég er fylgjandi listamanna-
launum og tel að þau séu nauðsyn-
leg en fólk getur auðvitað endalaust
deilt um af hverju þessi og ekki hinn
fær þau. Þetta helst ekkert endi-
lega í hendur við árangur. Sum árin
fær maður ekki en fær svo seinna
þótt verkefnaskráin sé ekkert stærri.
Þetta virðist fara eftir því hverjir eru
í nefndinni í það og það skipti. Ég
held samt að það séu allir að vinna
þetta eftir bestu samvisku en það er
ekki hlaupið að því að velja úr öllum
umsóknum. Auðvitað er það þannig,
meðvitað eða ómeðvitað, að maður
veit meira um þá sem maður þekkir.
Maður er ekkert endilega að fara að
hampa þeim en maður þekkir betur
til þeirra en yfirsést kannski eitthvað
annað af því að maður þekkir það
ekki nógu vel.“
Hann neitar því að orðræðan sé
grimmari núna en oft áður. „Það er
hasar út af Andra Snæ. Menn virðast
telja að það sé verið að taka á honum
vegna væntanlegs forsetaframboðs.
Ég held að það sé ekki þannig. Andri
Snær, og hópurinn í kringum hann,
er of viðkvæmur fyrir þessu. Í umfjöll-
un um árangurstengd laun er aðeins
verið að tíunda statík. Ég held að því
sé ekkert beint gegn Andra. Þetta eru
bara tölur á blaði. Sjálfur vil ég Andra
Snæ sem forseta. Ég held að hann
yrði alveg frábær.“
Stofnaði Gráa köttinn
Þótt myndlistin hafi verið ævistarf
hans hefur Jón Óskar verið mikið við-
loðandi útgáfu dagblaða og tímarita.
Hann er höfundur Loka sem hefur
prýtt baksíðu DV árum saman. Í dag
fagnar Loki endurfundum. „Ég hef
þörf fyrir að vera innan um annað fólk,
því eins fínt og það er að vera á vinnu-
stofu er það frekar einmanalegt. Það er
gefandi að vinna á fjölmiðli og skynja
þannig það sem er í gangi í samfé-
laginu. Sú vinna hefur aflað mér tekna
af og til auk þess sem við Hulda stofn-
uðum Gráa köttinn, auk annarra fyr-
irtækja, til að hafa eitthvert bakland.
Þótt það gangi vel í listinni eitt árið
getur næsta verið alveg dautt og þá
þarf maður að hafa einhverja bak-
tryggingu. Við eigum kaffihúsið enn-
þá en erum með fólk sem sér um það
fyrir okkur en dettum þar inn ef það
eru veikindi. Þá stekkur maður til og
fer á pönnuna.“
Smitast af ungu fólki
Inntur eftir því hvernig það er að vera
kominn yfir sextugt segir hann það
líkt því að vera á sjötugsaldri. „Þetta
er sérstakt. Maður er hissa. Ég man í
gagnfræðaskóla þegar kennari talaði
um aldamótin 2000 og að þá yrðum
við 46 ára. Mér fannst það hrikalegt
og gat ekki séð mig í þeirri stöðu en
svo kemur þetta. Þegar hetjur manns
fara að falla frá, eins og Bowie og
Lennon, og með þeim þau viðmið
sem maður hafði, finnur maður að
það saxast á. Ég hef verið heppinn og
unnið með ungu fólki í gegnum tíð-
ina, sérstaklega á fjölmiðlunum. Svo
hef ég farið á „reunion“ og hitt gömlu
skóla félagana og fengið allt aðra
mynd af mér. Það er svo gott að vinna
með ungu fólki og smitast af því.“
Það eina sem heillar
Hann viðurkennir að hafa oft velt því
fyrir sér hvort það væri sniðugra að
starfa við eitthvað annað en listina.
„En þetta er það eina sem ég hef
áhuga á. Þessi vinna getur verið erfið
því hún yfirgefur þig aldrei. Ég öfunda
stundum fólk sem sinnir sinni vinnu
og fer svo heim og geymir vinnuna
á meðan. Ég er alltaf með vinnuna
með mér. Ekki endilega „físískt“ séð
heldur er ég alltaf að velta henni fyrir
mér. Stundum hef ég hugsað hvort
það væri ekki þægilegt að geta farið
í golf eða sund eins og annað fólk og
gleymt bröltinu. En svo hverfur sú
hugsun fljótt aftur.“ n
Myndlistarmaður Jón Óskar er sonur myndlistarkonunnar Ragnheiðar Jónsdóttur. MYNd ÞorMar ViGNir GuNNarSSoN
Saman í rúm 40 ár Myndlistarfólkið var einu sinni trúlofað en eftir að Hulda sturtaði
niður trúlofunarhringnum hefur sú umræða legið í dvala. MYNd SiGtrYGGur ari
„Andri Snær, og
hópurinn í kringum
hann, er of viðkvæmur
fyrir þessu.
Sími 555 3100 www.donna.is
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Skjót fyrstahjálp, hjartahnoð
og hjartastuðtæki björguðu lífi mínu
Ég lifði af