Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.2016, Blaðsíða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.2016, Blaðsíða 46
Helgarblað 29. janúar–1. febrúar 201642 Fólk Sætur, Sætari, SætaStur Fimm ár virka ekki svo langur tími fyrir þá sem eldri eru en fyrir þá yngri virkar hvert ár eins og heil öld. Fólk þroskast, stíll þeirra breytist og alls kyns atburðir í lífinu hefur markandi áhrif á það. Sjáðu hvað þessar sex stjörnur breyttust á aðeins fimm ára tímabili. Eitt er þó víst að þær eiga það allar sameiginlegt að eldast afskaplega vel.  Alltaf myndarlegur Árið 2004 voru allir ennþá skotnir í Leonardo DiCaprio eftir stórmyndina Titanic sem kom út 1997. Hver myndi ekki elska þetta andlit? Fimm árum seinna, 2009, var leikarinn alveg jafn myndarlegur en þroskaðri bæði í útliti og vinnu.  Dökkhærð Montana Áður en hún sleikti hamra og klæddist efnislitlum fötum var Miley Cyrus Hannah Montana. Árið 2008 var poppstjarnan Miley dökkhærð og saklaus Disney-sjónvarpsstjarna.  Barnastjarna í poppið Árið 2010 var Ariana Grande barnastjarna í sjónvarpsþætti á Nickelodeon. Árið 2015 birtist hún aðdáendum sínum sem ein vinsælasta poppstjarna nútímans.  Bless, bless, Potter Þótt Daniel Radcliffe hafi þegar skilið við galdrastrákinn Harry Potter árið 2011 var hann enn gæddur þessum strákslega sjarma sem við féllum fyrir í kvikmyndunum. Daniel hefur heldur betur fullorðnast árið 2016.  Draumarnir rættust Árið 2008 var Taylor Swift ennþá lítil og sæt sveitasöngvastelpa sem átti sér stóra drauma. Árið 2014 hafði hún náð öllum sínum markmiðum og gott betur, setið á vinsældalistum víðs vegar um heiminn og stjórnað sinni eigin stelpusveit.  Krúttið frá Kanada Þótt Justin Bieber hafði skapað sér nafn í poppbransanum árið 2010 var fátt sem minnti á stjórstjörnuna sem hann er í dag. Myndir frá árinu 2015 sýna hversu mikið stíll poppprinsins hefur breyst. Hann er ekki lengur litla krúttið frá Kanada.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.