Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2016, Page 46

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2016, Page 46
Helgarblað 19.–22. febrúar 201642 Fólk Þótti voðalega kerlingarlegt n Ásgeir opnar förðunarskóla ásamt konu sinni n vill fá fleiri stráka í förðunarnám P lássið við hliðina á okk- ur losnaði og við tókum þá ákvörðun að opna bara fullvaxta förðunarskóla,“ segir hárgreiðslumeist- arinn Ásgeir Hjartarson sem rek- ur hárgreiðslustofuna Hairbrush ásamt konu sinni, Bergþóru Þórs- dóttur förðunarfræðingi. Hún hef- ur um nokkurt skeið haft aðstöðu til að kenna airbrush-förðun á stof- unni, en þeim fannst nú tími til kominn að stækka við sig. Skólinn hefur fengið nafnið MASK – Makeup & Airbrush Academy og til stendur að kennsla hefjist þann 22. febrúar næstkomandi. Þrír karlmenn að kenna „Við munum taka allan pakkann, skólinn er fyrir alla. Líka þá sem hafa aldrei haldið á pensli áður. Begga var í Los Angeles um árabil og tók kennararéttindi í förðun og airbrush-förðun þar. Hún er því vel fullgildur kennari,“ útskýrir Ásgeir, en Bergþóra er einnig skólastjóri skólans. Þá hafa þau hjónin feng- ið hóp af góðu fólki til liðs við sig og það vekur athygli þegar heima- síða skólans er skoðuð að þrír af sjö kennurum eru karlmenn. Þar á meðal Ásgeir sjálfur. Svo jöfn skipt- ing kynja við kennslu í förðunar- námi hlýtur að vera einsdæmi, enda karlmenn í miklum minni- hluta í faginu. „Þetta eru aðallega stelpur en það slæðist einn og einn strákur með. Það þykir ekkert rosalega karl- mannlegt að vera förðunarfræðing- ur þegar maður er gagnkynhneigð- ur. Flest allir þessir frægu „make up artistar“ eru samkynhneigðir. Það loðir svolítið við þetta og auðvitað hárgreiðsluna líka. Þetta hefur samt verið að breytast á síðustu tíu árum.“ Gagnkynhneigðum fjölgar Ásgeir, sem hefur starfað við hár- greiðslu í 25 ár, viðurkennir að þessi staðalímynd af hárgreiðslumann- inum geti verið þreytandi. „Mað- ur vill verja sitt fag og allt það. Ég er frá Akureyri og ég man að þegar ég byrjaði að læra og kom með alls konar gel, sjampó og sprey norð- ur, þá fannst vinum mínum þetta voðalega kerlingalegt. Þeir sögðu að ég hefði breytt rödd minni, sem er auðvitað algjört kjaftæði. En gagnkynhneigðum karlmönnum hefur fjölgað mikið í faginu og ég held að ég sé alveg búinn að sanna að gagnkynhneigðir menn geti ver- ið góðir hárgreiðslumenn. Ekki bara í því að klippa herra heldur í að gera flottar greiðslur og vera list- rænir í þessu fagi.“ Miklir fagmenn Ásgeir ætlar einmitt að miðla þekk- ingu sinni á hári í skólanum, en verður lítið í förðuninni. „Ég gef mig ekki út fyrir að vera „make up artisti“ en ég get vel farðað og hef gert það, en ég mun ekki kenna það í skólanum. Ég mun bara kenna hárið. Það verður reyndar ekki djúp kennsla í því, en ég mun til dæmis kenna að túbera og á notk- un hártækja. Einnig mun ég fara yfir hvaða greiðsla hentar tiltekinni gerð förðunar og fleira í þeim dúr,“ segir Ásgeir sem vill ekki gera of mikið úr sínum hlut. Enda séu hin- ir karlmennirnir miklir fagmenn á sínu sviði, en um er að ræða Haffa Haff, förðunarfræðing, fatahönnuð og stílista, og Stefán Jörgen brellu- förðunarmeistara. „Það er afskaplega gaman að fá Haffa Haff. Hann er auðvitað fyrst og fremst „make up artisti“ en hann fer líka í mannleg samskipti – sam- skipti á milli förðunarfræðings og módels í stúdíói. Svo er það Stefán sem er algjör snillingur með gríðar- lega reynslu. Hann er ekki einungis í því að búa til stór nef eða að láta fólk líta út fyrir að vera eldra en það er. Hann gerði til dæmis allar brúðurn- ar í Latabæ.“ Lengri námskeið Aðspurður um sérstöðu skólans segir Ásgeir hana meðal annars vera lengd námsins, en það sé lengra en gengur og gerist í förðunarnámi. Um er að ræða 12 vikna nám, en 14 vikna með airbrush-námskeiði. Hann segir förðunarskóla gjarnan bjóða upp á átta vikna námskeið, en þau hjónin treysti sér ekki til að útskrifa fólk eftir svo skamman tíma. Vilja frekar að nemendur fái meiri kennslu og öðlist dýpri þekk- ingu á því sem þeir eru að gera áður en þeir ljúka námi. Ásgeir segist finna fyrir tölu- verðum áhuga á skólanum þrátt fyrir að nokkrir förðunarskólar séu starfræktir á Íslandi. „Það er greini- lega pláss fyrir okkur á markaðn- um, en auðvitað vitum við ekki hvernig þetta fer. Við erum kom- in með þó nokkrar skráningar en erum ekki búin að fylla skólann. Ég vona bara að fleiri strákar skrái sig í skólann. Mér þætti það æðislegt,“ segir Ásgeir að lokum. n Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrun@dv.is Opna skóla Ásgeir og Bergþóra ákváðu að stækka við sig og opna förðunarskóla í rýminu við hliðina á hárgreiðslustofunni. Mynd ÞORMaR ViGniR GunnaRSSOn „Þeir sögðu að ég hefði breytt rödd minni, sem er auðvitað algjört kjaftæði.Childs Farm Húð & baðvörur fyrir börn Fæst í Lyf og heilsu, Lyfju, Fjarðarkaupum, stærri Hagkaups og Krónu- verslunum, Heimkaup.is og í sjálfstæðum apótekum um land allt. H E N T A R F Y R I R V I Ð K V Æ M A & E X E M G J A R N A H Ú Ð VI ÐU RK ENN T AF BARNALÆKNUM V I Ð U R K E N N T A F H Ú Ð L Æ K N U M

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.