Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2016, Blaðsíða 46
Helgarblað 19.–22. febrúar 201642 Fólk
Þótti voðalega
kerlingarlegt
n Ásgeir opnar förðunarskóla ásamt konu sinni n vill fá fleiri stráka í förðunarnám
P
lássið við hliðina á okk-
ur losnaði og við tókum
þá ákvörðun að opna bara
fullvaxta förðunarskóla,“
segir hárgreiðslumeist-
arinn Ásgeir Hjartarson sem rek-
ur hárgreiðslustofuna Hairbrush
ásamt konu sinni, Bergþóru Þórs-
dóttur förðunarfræðingi. Hún hef-
ur um nokkurt skeið haft aðstöðu
til að kenna airbrush-förðun á stof-
unni, en þeim fannst nú tími til
kominn að stækka við sig. Skólinn
hefur fengið nafnið MASK –
Makeup & Airbrush Academy og til
stendur að kennsla hefjist þann 22.
febrúar næstkomandi.
Þrír karlmenn að kenna
„Við munum taka allan pakkann,
skólinn er fyrir alla. Líka þá sem
hafa aldrei haldið á pensli áður.
Begga var í Los Angeles um árabil
og tók kennararéttindi í förðun og
airbrush-förðun þar. Hún er því vel
fullgildur kennari,“ útskýrir Ásgeir,
en Bergþóra er einnig skólastjóri
skólans. Þá hafa þau hjónin feng-
ið hóp af góðu fólki til liðs við sig
og það vekur athygli þegar heima-
síða skólans er skoðuð að þrír af
sjö kennurum eru karlmenn. Þar á
meðal Ásgeir sjálfur. Svo jöfn skipt-
ing kynja við kennslu í förðunar-
námi hlýtur að vera einsdæmi,
enda karlmenn í miklum minni-
hluta í faginu.
„Þetta eru aðallega stelpur en
það slæðist einn og einn strákur
með. Það þykir ekkert rosalega karl-
mannlegt að vera förðunarfræðing-
ur þegar maður er gagnkynhneigð-
ur. Flest allir þessir frægu „make up
artistar“ eru samkynhneigðir. Það
loðir svolítið við þetta og auðvitað
hárgreiðsluna líka. Þetta hefur samt
verið að breytast á síðustu tíu árum.“
Gagnkynhneigðum fjölgar
Ásgeir, sem hefur starfað við hár-
greiðslu í 25 ár, viðurkennir að þessi
staðalímynd af hárgreiðslumann-
inum geti verið þreytandi. „Mað-
ur vill verja sitt fag og allt það. Ég
er frá Akureyri og ég man að þegar
ég byrjaði að læra og kom með alls
konar gel, sjampó og sprey norð-
ur, þá fannst vinum mínum þetta
voðalega kerlingalegt. Þeir sögðu
að ég hefði breytt rödd minni, sem
er auðvitað algjört kjaftæði. En
gagnkynhneigðum karlmönnum
hefur fjölgað mikið í faginu og ég
held að ég sé alveg búinn að sanna
að gagnkynhneigðir menn geti ver-
ið góðir hárgreiðslumenn. Ekki
bara í því að klippa herra heldur í
að gera flottar greiðslur og vera list-
rænir í þessu fagi.“
Miklir fagmenn
Ásgeir ætlar einmitt að miðla þekk-
ingu sinni á hári í skólanum, en
verður lítið í förðuninni. „Ég gef
mig ekki út fyrir að vera „make up
artisti“ en ég get vel farðað og hef
gert það, en ég mun ekki kenna það
í skólanum. Ég mun bara kenna
hárið. Það verður reyndar ekki
djúp kennsla í því, en ég mun til
dæmis kenna að túbera og á notk-
un hártækja. Einnig mun ég fara
yfir hvaða greiðsla hentar tiltekinni
gerð förðunar og fleira í þeim dúr,“
segir Ásgeir sem vill ekki gera of
mikið úr sínum hlut. Enda séu hin-
ir karlmennirnir miklir fagmenn á
sínu sviði, en um er að ræða Haffa
Haff, förðunarfræðing, fatahönnuð
og stílista, og Stefán Jörgen brellu-
förðunarmeistara.
„Það er afskaplega gaman að fá
Haffa Haff. Hann er auðvitað fyrst
og fremst „make up artisti“ en hann
fer líka í mannleg samskipti – sam-
skipti á milli förðunarfræðings og
módels í stúdíói. Svo er það Stefán
sem er algjör snillingur með gríðar-
lega reynslu. Hann er ekki einungis í
því að búa til stór nef eða að láta fólk
líta út fyrir að vera eldra en það er.
Hann gerði til dæmis allar brúðurn-
ar í Latabæ.“
Lengri námskeið
Aðspurður um sérstöðu skólans
segir Ásgeir hana meðal annars vera
lengd námsins, en það sé lengra en
gengur og gerist í förðunarnámi.
Um er að ræða 12 vikna nám, en
14 vikna með airbrush-námskeiði.
Hann segir förðunarskóla gjarnan
bjóða upp á átta vikna námskeið,
en þau hjónin treysti sér ekki til
að útskrifa fólk eftir svo skamman
tíma. Vilja frekar að nemendur fái
meiri kennslu og öðlist dýpri þekk-
ingu á því sem þeir eru að gera áður
en þeir ljúka námi.
Ásgeir segist finna fyrir tölu-
verðum áhuga á skólanum þrátt
fyrir að nokkrir förðunarskólar séu
starfræktir á Íslandi. „Það er greini-
lega pláss fyrir okkur á markaðn-
um, en auðvitað vitum við ekki
hvernig þetta fer. Við erum kom-
in með þó nokkrar skráningar en
erum ekki búin að fylla skólann. Ég
vona bara að fleiri strákar skrái sig
í skólann. Mér þætti það æðislegt,“
segir Ásgeir að lokum. n
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrun@dv.is Opna skóla Ásgeir
og Bergþóra ákváðu
að stækka við sig og
opna förðunarskóla
í rýminu við hliðina á
hárgreiðslustofunni.
Mynd ÞORMaR ViGniR GunnaRSSOn
„Þeir sögðu að ég
hefði breytt rödd
minni, sem er auðvitað
algjört kjaftæði.Childs Farm
Húð & baðvörur fyrir börn
Fæst í Lyf og heilsu, Lyfju, Fjarðarkaupum, stærri Hagkaups og Krónu-
verslunum, Heimkaup.is og í sjálfstæðum apótekum um land allt.
H E N T A
R F Y R
I R
V I Ð K V
Æ M A
& E X E M
G J A R N
A H Ú Ð
VI
ÐU
RK
ENN
T AF
BARNALÆKNUM
V
I Ð U R K E N N T A F H
Ú Ð
L Æ
K N
U
M