Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2016, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2016, Blaðsíða 8
8 Neytendur Helgarblað 26.–29. febrúar 2016 Tveggja vikna linsur seldar sem mánaðarlinsur n Eigandi Optical Studio segist fyrst og fremst vera að gæta hagsmuna viðskiptavina E igendur Optical Studio, sem rekur þrjár gleraugnaversl- anir hérlendis, eru með um- boð fyrir linsur frá John- son & Johnson. Fyrirtækið selur tegundina Acuvue Oasys sem mánaðarlinsur en samkvæmt upp- lýsingum á heimasíðu Johnson & Johnson er ráðlagður notkunartími aðeins tvær vikur. Augnlæknir segir að ýmsar hættur geti skapast vegna ofnotkunar á linsum, meðal annars svæsnar augnsýkingar auk þess sem sá tími sem notendur geta not- að linsur styttist. Að sögn Kjartans Braga Kristjánssonar, aðaleiganda Optical Studio, eru hagsmunir not- enda hafðir að leiðarljósi hjá fyrir- tækinu. Linsurnar dugi mun lengur en framleiðandi heldur fram. 34% verðmunur Blaðamaður DV fór í verslun Optical Studio í Smáralind og óskaði eftir mánaðarlinsum að ákveðnum styrk- leika. Án nokkurra ráðlegginga var blaðamanni afhentur pakki af Acuvue Oasys. Á pakkanum sjálfum kemur ekkert fram varðandi ráðlagð- an notkunartíma, þær upplýsingar eru aðeins aðgengilegar á heima- síðu Johnson & Johnson. Pakki af Acuvue Oasys kostar 7.000 krónur hjá Optical Studio og eru sex linsur í hverjum pakka. Auðvelt er að skrá sig í netklúbb fyrirtækisins þar sem viðskiptavinir fá 20% afslátt af vör- unni. Endanlegt verð yrði þá 5.600 krónur á hvern pakka. Til saman- burðar kosta sambærilegar linsur Air Optix Aqua um 10.000 krónur hjá samkeppnisaðilum. Hver pakki af þeirri tegund inniheldur einnig sex linsur. Þær verslanir sem DV hringdi í bjóða upp á 25% afslátt gegn skráningu í netklúbb og því er endan legt verð 7.500 krónur. Verð- munurinn er 34% á þessum tveimur tegundum og því má ætla að það sé talsvert samkeppnisforskot sem felst í því að selja tveggja vikna linsur sem mánaðarlinsur. Nokkur alvarleg tilvik á ári Sjóntækjafræðingar sem DV ræddi við eru almennt á einu máli um að linsur séu framleiddar þannig að þær dugi lengur en auglýst er. Ástæð- an er sú að fæstir muna eftir því að skipta um sett af linsum upp á dag. Þess vegna er ekki mjög alvarlegt þó að mánaðarlinsa sé notuð nokkrum vikum eftir að ráðlagðan endingar- tíma. Því ætti ekki að vera mikil hætta á ferðum þó að tveggja vikna linsa, eins og Acuvue, sé notuð í mánuð en öðru gegnir ef slík linsa er notuð í 6–8 vikur. „Ég hef ekki upp- lýsingar um að einhver tilvik tengist þessari linsutegund sérstaklega. Hins vegar koma upp nokkur tilvik á ári þar sem við fáum inn á borð til okkar alvarleg tilvik sem eru tilkom- in vegna rangrar notkunar á linsum. Í sumum tilvikum er skaðinn óaftur- kræfur,“ segir Sigríður Þórarinsdóttir, augnlæknir á Augndeild Landspítala Háskólasjúkrahúss. Sigríður segir það helgast af því að hornhimna augans getur ekki endurnýjað sig án þess að eftir standi ör. „Röng notkun á linsum getur gert augað berskjaldaðra fyrir sýkingum. Það segir sig sjálft að eftir því sem linsan er notuð lengur þá er lík- legra að á hana setjist óhreinindi og að hún rifni. Það getur gert rispur á hornhimnuna sem leiðir til bakt- eríusýkinga,“ segir Sigríður. Röng notkun getur einnig leitt til þess að einstaklingar myndi smátt og smátt óþol fyrir linsunni. „Þá fá þeir strax óþægindi þegar að þeir setja linsuna í augað,“ segir Sigríður. Duga lengur en framleiðandi segir „Þú getur rétt ímyndað þér að ég væri til í að selja helmingi meira magn af Acuvue-linsum. Við erum hins vegar fyrst og fremst að gæta að hagsmun- um viðskiptavina og það er okkar mat að ef viðskiptavinir hlýta ráðlegging- um okkar um að sofa ekki með linsurnar þá dugi þær mun lengur en Johnson & Johnson heldur fram,“ segir Kjartan Bragi Kristjánsson. Að- spurður af hverju Johnson & Johnson mæli aðeins með tveggja vikna notk- un segir Kjartan: „Framleiðandinn er að stuðla að aukinni sölu hjá sér með því að hvetja viðskiptavini til þess að skipta örar um linsur. Johnson & Johnson hefur legið undir gagnrýni fyrir að ráðleggja neytendum að sofa með linsurnar (e. extended use) og hefur dregið talsvert í land undan- farið um hversu lengi linsurnar duga með slíkri notkun.“ Deilir á landlæknisembættið Kjartan gefur lítið fyrir mögulegar af- leiðingar rangrar notkunar á linsum. „Þetta er rökræða fram og til baka. Við höfum átt gott spjall við augn- lækna og teljum að ef notandinn sef- ur ekki með linsurnar þá sé hann í góðum málum,“ segir Kjartan. Hann segir hins vegar að nauðsynlegt sé að taka á því vandamáli að ófaglærðir séu að selja linsur án nauðsynlegrar sérfræðiráðgjafar. „Sjóntæknifræð- ingar eru lögverndað starfsheiti en það er alltof algengt að ófaglærðir einstaklingar séu að selja linsur hér- lendis. Landlæknisembættið á að hafa eftirlit með slíku en það hefur alveg brugðist sínu hlutverki,“ segir Kjartan. n Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Sigríður Þórarinsdóttir augnlæknir Segir nokkur alvarleg tilvik á ári hverju þar sem einstaklingar verði fyrir óafturkræfum skaða vegna rangrar notkunar á linsum. Acuvue Oasys Linsurnar eru seldar í verslunum Optical Studio sem mánaðarlinsur en framleiðandinn mælir með því að þær séu aðeins notaðar í tvær vikur. MyND 123rf.cOM FermingargjöFin í ár! kemur í allar verslanir n1 þann 1. mars nk. Þráðlausu Touch heyrnartólin eru seld á N1 um allt land. Hægt að tengja við síma, ipad og öll bluetooth tæki. Einnig er hægt að svara í símann með þeim.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.