Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2016, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2016, Blaðsíða 17
Helgarblað 26.–29. febrúar 2016 Fréttir 17 Minnistöflur www.birkiaska.is Bætir skammtímaminnið. Nýtist fólki sem er undir álagi og fæst við flókin verkefni. Hentar vel eldri borgurum, lesblindum og nemendum í prófum. Dregur úr streitu, eykur ró og bætir skap. Netlu-, túnfífla- og birkilaufs töflur örva brennslu og meltingu og eru bjúglosandi. Sérstaklega er mælt með vörunni til að hreinsa líkamann. Colonic Plus Kehonpuhdistaja Bodyflex Strong Bodyflex Strong mýkir liðamót og dregur úr verkjum í þeim og styrkir heilbrigði burðarvefja líkamans. Inniheldur hvorki laktósa, ger, glúten né sætuefni.  Birkilaufstöflur Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á vökva- jafnvægi bæði líkama og húðar og örvar starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar efnaskiptum, losar vatn úr líkamanum og dregur úr bólgum. Evonia færir hárrótinni næringu og styrk til þess að efla hárvöxt. Evonia er hlaðin bætiefnum sem næra hárið og gera það gróskumeira. Bætiefni ársins í Finnlandi 2012. Evonia Var að glíma við andleg veikindi Bowe Bergdahl gekk í burtu af herstöð og var handsamaður af talíbönum H ermaðurinn Bowe Bergdahl hefur verið greindur með geðklofa- líka persónuleikaröskun (e. schizotypal personality disorder) og mun hafa verið að glíma við einkenni hennar þegar hann vék frá stöðu sinni sem her- maður í Afganistan árið 2009. Bergdahl er fyrsti bandaríski her- maðurinn sem talíbanar hand- sömuðu og var fangi þeirra í fimm ár. Hann var látinn laus í maí 2014 í fangaskiptasamningi, en hans hafði þá verið leitað með miklum tilkostnaði allan tímann. Bíður dóms Bergdahl bíður nú herréttarhalda, sem eiga að úrskurða um hvort hann hafi brotið af sér í starfi þegar hann gekk í burtu frá herstöðinni í Afganistan í júní 2009. Hann fór án þess að vera með farangur eða byssu og sagðist, eftir að hann kom heim til Bandaríkjanna aftur, hafa viljað mótmæla meðferð yfirmanns síns á herdeildinni. Hann taldi viðkom- andi stefna lífi sínu og annarra her- manna í mikla hættu og taldi líklegt að hann myndi senda þá í aðstæð- ur þar sem þeirra biði bráður bani. Berghdal var hins vegar handsam- aður fljótlega af talíbönum og var fangi þeirra. Hann mátti þola mikl- ar pyntingar og erfiðleika og fengu bandarísk stjórnvöld og fjölskylda Bergdahl litlar upplýsingar um hagi hans. Miklu var til kostað við leitina í fyrstu, en fljótlega fór að draga úr viðbúnaði hersins vegna málsins. Það hefur sætt mikilli gagnrýni. Mikil umfjöllun Bandarískir fjölmiðlar hafa mikið fjallað um Bergdahl og nú hefur út- varpsþátturinn og podcastið Serial gert sérstaka þáttaröð um Bergdahl og sögu hans. Í þætti í síðustu viku kom fram að Bergdahl hefði glímt við andleg veikindi, eitthvað sem áður hafði ekki verið staðfest. Þá var einnig greint frá því að hann hafði, áður en hann gekk til liðs við herinn, reynt að komast í raðir bandarískra varnaraðila. Þá vildi hann verða starfsmaður land- helgisgæslunnar, en var ekki talinn geta sinnt starfinu. Það hefði því að líkindum ekki átt að leyfa hon- um að ganga í herinn síðar meir en þar sem mikil áhersla var lögð á að fá nýja aðila til að ganga í herinn árið 2008 þegar hann hóf störf var ákveðið að hleypa Bergdahl inn, þrátt fyrir veikindi og líkur á því að hann ætti erfitt með að aðlagast. Getur breytt miklu Washington Post greinir frá því að þessi greining á veikindum hans geti haft mikil áhrif á væntanleg réttarhöld. Bergdahl hefur verið ákærður fyrir liðhlaup og slæma hegðun. Margir segja að vistin hjá talíbönunum ætti að hafa verið næg refsing og mun þessi greining eflaust vera vatn á myllu þeirra. Aðrir telja að hann hafi sýnt af sér vítavert gáleysi sem beri að refsa, án undantekn- inga. Það var sál- fræðingur hjá hernum sem greindi Bergdahl og segir að fyr- ir vikið hafi hon- um ekki ver- ið sjálfrátt. Veikindin líkast geðklofa, en einkennin vara ekki eins lengi og endurtaka sig ekki eins oft og eru ekki eins alvarleg og geðklofi. Þeir sem greinast með sjúkdóminn geta oftar en ekki gert greinarmun á raunveruleika og þeim ranghugmyndum sem veik- indunum fylgja, ólíkt þeim sem eru með geðklofa. Gekk í burtu Liðsforingi hjá hernum sem yfir- heyrði Bergdahl segir að æska hans hafi orðið til þess að hann á erfitt með að setja sig í spor annarra, dæmir aðra harkalega og sér hluti í fari annarra sem aðrir sjá ekki. Bergdahl ólst upp í smábæ í Idaho í Bandaríkjunum og átti erfiða æsku. Hann var meira og minna á eigin fótum frá 14 ára aldri. Hann var einfari og á erfitt með að tengjast öðru fólki. Hafi Bergdahl verið veikur þegar hann gekk í burtu frá herstöðinni útskýrir það án efa hvers vegna hann óttaðist að hans biði bráð- ur bani, en aðrir hermenn eru ekki sammála því að yfirmaður þeirra hafi viljað gera þeim mein. Réttarhöldin fara fram í ágúst, en Serial heldur áfram að fjalla um málið, aðra hverja viku. n Ásta Sigrún Magnúsdóttir astasigrun@dv.is Með forsetanum Bowe er hér með forseta Bandaríkjanna, nokkru eftir að hann var látinn laus úr haldi talíbana. Mynd EPA Bíður dóms Bowe glímdi við andleg veikindi. Mynd EPA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.