Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2016, Qupperneq 44
36 Menning Helgarblað 26.–29. febrúar 2016
5 5 2 - 6 0 6 0
Menningarverðlaun DV 2015
Menningarverðlaun DV fyrir árið 2015 verða
veitt miðvikudaginn 9. mars næstkomandi
klukkan 17.00 í Iðnó. 46 verkefni, hópar og einstaklingar eru tilnefndir til
verðlaunanna í ár í níu flokkum; kvikmyndum, leiklist, dansi, tónlist, myndlist,
arkitektúr, hönnun, bókmenntum og fræðum, en auk þess veitir forseti Íslands
sérstök heiðursverðlaun og lesendaverðlaun dv.is verða veitt. Föstudaginn 26.
febrúar hefst netkosning á dv.is sem stendur til miðnættis 8. mars, þar sem
lesendum gefst tækifæri til að kjósa þá tilnefningu sem þeim líst best á – sú
tilnefning sem hlýtur flest atkvæði í netkosningunni hreppir lesendaverðlaun dv.is.
TónlisT
Dómnefnd: Dr. Gunni (formaður), Alexandra
Kjeld, Dana Rún Hákonardóttir.
Misþyrming Misþyrming fer
fyrir svartmálms-bylgju sem skellur nú á
ströndum landsins með vaxandi ákafa.
Hljómsveitin heldur úti Vánagandr
útgáfunni sem er með puttann á púlsi
svartmálmsins og gerði hina hnaus-
þykku plötu Söngvar elds og óreiðu. Hún
hefur verið að vekja athygli innan og
utan landsteinanna með djöfullegum
hamagangi sínum, óreiðukenndum
melódíum og almennu svartnætti.
Úlfur Úlfur Íslenskt rapp var í
mikilli uppsveiflu á síðasta ári. Af mörgu
frábæru listafólki átti tvíeykið Úlfur Úlfur
sterkasta framlagið á hinni ofurþéttu
plötu Tvær plánetur, sem var sneisafull af
góðum hugmyndum, sannfæringarmætti
og kraftmiklum lagasmíðum. Hljómsveitin
hefur verið lengi að og mótað sterkan og
slitgóðan heildartón undir fölskvalausri
tjáningu í íslenskum samtíma.
Stórsveit Reykjavíkur
Stórsveit Reykjavíkur skipar mikilvægan sess
í íslensku tónlistarlífi og verður skemmti- og
menningargildi hennar seint ofmetið. Að
árlegum swing-tónleikum undanskildum lék
sveitin á seinasta ári tónlist Helge Sunde og
Thad Jones, lék tónlist af hinni sögufrægu
plötu Ella and Basie!, hélt magnaða afmælis-
tónleika til heiðurs Frank Sinatra í Hörpu og
Hofi og lék útsetningar Hauks Gröndals á
jólatónleikum fyrir alla fjölskylduna. Síðast en ekki síst átti sveitin stórleik í flutningi sínum á
tónlist Jóels Pálssonar í frábærum útsetningum Kjartans Valdemarssonar.
Stelpur rokka Grasrótarsamtökin Stelpur rokka eru nú á sínu fimmta starfs-
ári. Þessi sjálfboðaliðareknu samtök starfa af feminískri hugsjón við að efla ungar stelpur
í gegnum tónlistarsköpun. Kjarninn í starfinu eru rokksumarbúðirnar, en þar læra stelpur á
hljóðfæri, hvernig það er að spila saman í hljómsveit, kynnast farsælum tónlistarkonum og
fræðast um hinar ýmsu hliðar tónlistar og jafnréttisstarfs. Yfir 60 hljómsveitir hafa verið
stofnaðar í sumarbúðunum. Búðirnar fara sífellt stækkandi og verða settar á stofn búðir á
Grænlandi og í Færeyjum sumarið 2016.
Mengi Menningarsetrið Mengi
hefur á undanförnum árum haldið úti
kraumandi og vandaða dagskrá viðburða
af öllu tagi. Á örfáum fermetrum á
Óðinsgötu hafa verið haldnir árlega hátt
á annað hundrað viðburða; tónleika,
myndlistar-, dans- og leiksýninga, Hvað
tónlist varðar hefur Mengi skapað fágæt-
an vettvang fyrir samtal og sköpun óháð
formi, tíma eða stað, þar sem á einum
mánuði má heyra innlenda sem erlenda
listamenn flytja rokk, raftónlist, barokk,
þjóðlög, samtímatónlist, djass eða allt
í senn. Á nýju ári bættist barnastarf í
tilrauna- og fræðslustarfsemina sem fyrir
var, sem gert hefur Mengi að ómetanleg-
um suðupotti uppgötvunar og upplifunar
fyrir listamenn og neytendur.
bókmennTir
Dómnefnd: Þorgeir Tryggvason (formaður),
Halla Þórlaug Óskarsdóttir, Guðrún Baldvinsdóttir.
Linda Vilhjálmsdóttir fyrir Frelsi
Þrátt fyrir einstaka fágun sem einkennir ljóðin í Frelsi hefur
Linda Vilhjálmsdóttir á engan hátt dregið tennurnar úr
ádeilunni eða mýkt hina ískrandi reiði sem hún miðlar í
þessari tíðarandalýsingu og heimsósómapredikun. Út-
koman er ein sterkasta ljóðabók síðari ára. Þörf áminning
um trylling nánustu fortíðar, illþolandi hlutskipti mann-
kyns í samtímanum og möguleika ljóðsins til að segja
sannleikann á meitlaðan og áhrifaríkan hátt.
Auður Jónsdóttir
fyrir Stóra skjálfta Stóri skjálfti
eftir Auði Jónsdóttur er áhrifarík
áminning um mikilvægi minnisins og
hvernig líf okkar mótast eftir minn-
ingum okkar úr fortíðinni. Í skáld-
sögunni púslast líf aðalpersónunnar
smám saman fyrir augum lesandans
svo úr verður eins konar spennusaga
minninganna. Auður sýnir enn og
aftur einstaka hæfni í sköpun á
trúverðugum og breyskum persónum
á sama tíma og hún lýsir erfiðum
sjúkdómi sem sjaldan er fjallað um.
Halldór Halldórsson
fyrir Hugmyndir: Andvirði
hundrað milljónir Fyrsta ljóðabók
Halldórs Halldórssonar, Hugmyndir: Andvirði
hundrað milljónir, er samtal við samtímann.
Takturinn er hraður og leiftrandi húmor
undirliggjandi. Skáldið hæðist að klisjum
ljóðlistarinnar og hnýtir í það stigveldi sem
listaheimurinn einkennist af. Ljóðmæl-
andinn er oftar en ekki ýkt birtingarmynd
karlmennskunnar sem kemur lesandanum á
óvart með hreinskilni sinni. Þessi frumraun
höfundar á þessu sviði hittir því beint í mark
með nútímalegri nálgun sinni á ljóðformið.
Guðmundur Andri
Thorsson fyrir Og svo
tjöllum við okkur í rallið
Thor Vilhjálmsson var einstakur maður
í þjóð- og menningarlífi Íslendinga
og Guðmundur Andri, sonur hans, er í
einstakri stöðu til að virða hann fyrir
sér. Þegar við bætist stílgáfa sem fáum
núlifandi íslenskum rithöfundum er
gefin fara minningabrot og hugleiðingar
Guðmundar um föður sinn á sjaldgæft
flug. Sérlega falleg bók um föður, son,
skáld, skáldskap, tíðaranda, börn, líf,
fjölskyldu, menningarástand og ást.
Kristín Ómarsdóttir fyrir Flækinginn
Flækingurinn eftir Kristínu Ómarsdóttur er áhugaverð rýni þar
sem samfélagið er skoðað út frá jöðrum þess. Umfjöllunarefnið
er undirheimarnir, heimili ógæfufólks, sem samfélagið keppist
við að fela og bæla – og kallast á einhvern hátt við „undir-
heima“ mannlegs eðlis. Hér fær sögumaður rödd sem sjaldan
hefur fengið að hljóma í íslenskum bókmenntum og velur höf-
undur snilldarlega að gera hann mállausan. Fólk á erfitt með að
skilja hann. Flækingurinn þvingar lesandann í spor lægstu sam-
félagsstiga og til að samsama sig fólkinu sem samfélagið hefur
snúið bakinu við. Leikandi stíllinn heldur honum föngnum.