Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2016, Side 45
Menning 37Helgarblað 26.–29. febrúar 2016
Vantar þig traustan vinnufélaga?
OPEL ATVINNUBÍLAR
Reykjavík
Tangarhöfða 8
Sími: 590 2000
Reykjanesbær
Njarðarbraut 9
Sími: 420 3330
www.opel.is
www.benni.is
Opnunartími:
Virka daga frá 9 til 18
Laugardaga frá 12 til 16
EIN
NIG
FÁA
NLE
GIR
9 M
ANN
A O
G 17
MA
NNA
Menningarverðlaun DV 2015
LeikList
Dómnefnd: Silja Aðalsteinsdóttir (formaður),
Arngrímur Vídalín, Bryndís Loftsdóttir.
Selma Björnsdóttir og Gísli Örn Garðarsson
fyrir leikstjórn Í hjarta Hróa hattar Leikritið er eftir David Farr sem nýtir sér
gamlar enskar þjóðsögur af útlaganum fræga í Skírisskógi en snýr skemmtilega upp á
þær. Sýningin er einstaklega fagmannleg, flæðir vel og fallega svo hvergi sjást hnökrar.
En um leið er hún innileg og einlæg og kallar fram sanna gleði hjá áhorfendum eins og
ævintýri eiga að gera. Hér ættu margir skilið að fá hrós og rósir auk leikstjóranna, ekki síst
leikmyndahönnuðurinn Börkur Jónsson sem skapaði sannkallaðan ævintýraskóg á stóra
sviði Þjóðleikhússins. Marga leikarana mætti líka nefna, til dæmis Góa í hlutverki þjónsins
Pierre og Láru Jóhönnu Jónsdóttur í hlutverki húsmóður hans, aðalsmeyjarinnar Maríönnu.
Kristín Eiríksdóttir
fyrir leikritið Hystory Kristín
Eiríksdóttir er tilnefnd fyrir leikritið
Hystory sem Sokkabandið sýndi í
Borgarleikhúsinu. Sagan segir frá þrem
konum um fertugt sem hittast um það
bil aldarfjórðungi eftir að hryllilegur
atburður varð í lífi þeirra. Þær hafa aldrei
talast við síðan en ljóst verður í snilldar
lega saminni framvindu verksins að það
sem kom fyrir þær eyðilagði líf þeirra.
Þótt verkið sé átakanlegt og grimmt er
textinn samt sérkennilega fyndinn og
uppsetning Ólafs Egils Egilssonar og
leikur Elmu Lísu Gunnarsdóttur, Birgittu
Birgisdóttur og Arndísar Hrannar
Egilsdóttur drógu fram alla kosti hans.
Leikmynd Evu Signýju Berger, lýsing
Valdimars Jóhannssonar og tónlist
Högna Egilssonar gerðu líka sitt til að
auka áhrif þessa magnaða verks.
Bíó Paradís Heimili kvikmyndanna
stendur svo sannarlega undir nafni. Hefur
aukið breiddina í kvikmyndaúrvali hérlendis til
muna undanfarin fimm ár og aldrei verið betri
en nú eftir að Stockfish hátíðinni var hleypt
af stokkunum. Þýskir dagar, japanskir, pólskir
og rússneskir, barnasýningar og nemenda
fræðsla, svartir sunnudagar og íslensk klassík.
Loksins fá Íslendingar að sjá það besta, og ekki
bara það vinsælasta, sem sýnt er úti í heimi.
Leikarar í sýningunni
≈ [Um það bil] Í verkinu eru
sagðar sögur nokkurra einstaklinga sem hafa
orðið útundan í sænska velferðarsamfé
laginu á okkar dögum, þeir virðast koma hver
úr sinni áttinni en smám saman kemur í ljós
að þeir tengjast allir á einn eða annan veg.
Það var einstaklega gaman að fá að sjá nýtt
og ferskt leikrit eftir eitt athyglisverðasta
leikskáld Svía um þessar mundir, Jonas Has
sen Khemiri, og sjá það líka tekið frumlegum
tökum af Unu Þorleifsdóttur leikstjóra og
leikmyndahönnuðinum Evu Signýju Berger.
Það eru þó leikararnir Þröstur Leó Gunnars
son, Guðrún Gísladóttir, Snorri Engilbertsson,
Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir, Katrín Halldóra
Sigurðardóttir, Oddur Júlíusson og Stefán
Hallur Stefánsson sem tilnefninguna fá, þeir
voru hver öðrum betri og nutu þess greinilega
að fara með fyndinn, róttækan og ögrandi
textann í þýðingu Eiríks Arnar Norðdahl og
brjóta allar leikhúshefðir í leiðinni.
Leikhópurinn og
Eiríkur Örn Norðdahl
fyrir Mávinn Leikararnir Björn Stefáns
son, Hilmir Snær Guðnason, Katla María
Þorgeirsdóttir, Jóhann Sigurðarson, Þuríður
Blær Jóhannsdóttir, Þórunn Arna Kristjáns
dóttir, Hilmar Guðjónsson, Björn Thors, Hall
dóra Geirharðsdóttir, Waraporn Chanse og
Guðrún Snæfríður Gísladóttir hljóta tilnefn
ingu fyrir leik sinn í klassískum gamanleik
Antons Tsjékhovs, Mávinum, sem Yana Ross
stýrði. Ásamt Eiríki Erni Norðdahl hljóta þau
einnig tilnefninguna fyrir viðbótartexta sem
skeytt var inn í verkið með snjöllum og sann
færandi hætti. Hinn svarti, rússneski húmor
náði leiftrandi flugi, sýningin var meinlega
fyndin, full af uppátækjum og ástríðu. Með
breytingum á texta tókst að færa verkið
til nútímans og án efa fjölga aðdáendum
Tsjékhovs hér á landi.
Þorleifur Örn Arnarsson
fyrir leikstjórn Njálu
Þorleifur Örn Arnarsson er tilnefndur fyrir leikstjórn
Njálu í Borgarleikhúsinu eftir snjöllu handriti sem hann
samdi ásamt Mikael Torfasyni. Verkið er saman sett
úr nokkrum sjálfstæðum en samhangandi þáttum
sem blanda saman leik, dansi, söng og húskarlavígum
á rappbardagaformi sem allt myndar eina listilega
kóreógraferaða heild, þar sem hvort tveggja skiptir jafn
miklu máli: gáskafullur leikurinn að miðaldaritinu og virðingin fyrir því. Ekki síður eiga leikararnir
allir sinn hlut í því hversu áhrifamikil Njála er, líka búningahönnuðurinn Sunneva Ása Weiss
happel, leikmyndahönnuðurinn Ilmur Stefánsdóttir og danshöfundurinn Erna Ómars dóttir. Krefj
andi verk hefur verið að halda öllu þessu stórvirki saman og þar á Þorleifur Örn mestan heiður.
kvikmyndir
Dómnefnd: Vera Sölvadóttir (formaður), Valur Gunnarsson, Ísold Uggadóttir.
Fúsi Gunnar Jónsson og Ilmur
Kristjánsdóttir eru eitt hjartnæm
asta par íslenskrar kvikmyndasögu.
Dagur Kári hefur náð fullum tökum á
list sinni, þá ekki síst handritaskrif
unum, og varla er feilnótu að finna.
Hver sena er listilega vel skrifuð og
samræðurnar eru í senn bæði sannar
og skemmtilegar, og tala aldrei
niður til áhorfandans heldur leiða
hann áfram. Mynd sem gerir út á það
sammannlega frekar en séríslenska.
Hrútar Áhrifamikil mynd
sem fjallar um íslenskan veruleika á
ljóðrænan og jafnframt raunsæislegan
hátt. Leikstjóra tekst að gera erfitt
viðfangsefnið bæði fallegt og mannlegt.
Grímur Hákonarson sýnir hér næmni
sína myndrænt sem og í vinnu sinni
með leikurum myndarinnar. Sigurður
Sigurjónsson og Theodór Júlíusson sýna
hvor um sig stórleik og túlka breyskleika
mannsins á trúverðugan hátt. Grímur er
sannarlega á heimavelli og hann hefur
sýnt að hann á fullt erindi út í heim með
þessa séríslensku mynd.
Hvað er svona merkilegt við það? Í þessari kraftmiklu
heimildamynd varpar Halla Kristín Einarsdóttir leikstjóri ljósi á skrautlega og gróskumikla
kvennabaráttu níunda og tíunda áratugarins. Með húmor og hnyttni að vopni tryggja
leikstýran Halla Kristín og framleiðandinn Hrafnhildur Gunnarsdóttir, að saga íslenskra
kvenna sé ekki aðeins áhugaverð, heldur einnig stórskemmtileg. Byltingarandi tímabilsins er
fangaður með einstökum hætti í þessu mikilvæga innleggi inn í íslenska kvennasögu.
Öldin hennar Sögu
íslenskra kvenna og baráttu þeirra fyrir
samfélagslegu jafnrétti eru loks gerð
rækileg skil í örþáttum Hrafnhildar
Gunnarsdóttur sem unnir voru í tilefni
100 ára afmælis kosningaréttar kvenna.
Þættirnir hafa einstakt heimildagildi
fyrir íslenska menningar, samfélags og
stjórnmálasögu, þar sem metnaðarfull
rannsóknar og heimildavinna býr að baki.