Fréttablaðið - 08.04.2017, Page 8
Tilboðin gilda 07.04-09.04 2017
SP
A
R
IÐ
2
5%
A
F
Ö
LL
U
M
T
R
A
M
P
Ó
LI
N
Ú
M
FR
Á
F
Ö
ST
U
D
E
G
I T
IL
S
U
N
N
U
D
A
G
S
Sérfræðingar í sumarfríum
Hoppufrí
22.499
OUTRA EXERCISE 396 CM
29.999
OUTRA STANDARD 366 CM
59.999
OUTRA PRO 426 CM
99.999
Hoppufrí
44.999
Hoppufrí
74.999-25% -25% -25%
MENNTAMÁL Rynni skráningargjald-
ið í heild sinni til Háskóla Íslands
myndi það þýða að skólinn fengi
tæplega 700 milljónum meira í sinn
hlut en honum er nú ætlað. Aðeins
um fjórðungur þess fjár sem stúd-
entar borga rennur til Háskólans.
„Það sem ráðuneytið gerir er að
það dregur frá skráningargjöld þess
fjölda nemenda sem gert er ráð fyrir
í fjárlögum. Sá fjöldi er nú um það
bil 9.000. Við fáum síðan að halda
eftir mismuninum,“ segir Jón Atli
Benediktsson, rektor HÍ.
Skráningargjöld í Háskóla Íslands
eru nú 75 þúsund krónur fyrir árið
og nemar skólans um 12 þúsund.
Af skráningargjaldi hvers nemanda
renna því tæplega 20 þúsund krónur
til Háskólans. Með öðrum orðum, af
þeim 900 milljónum sem nemendur
greiða í skráningargjald renna um
225 milljónir til skólans. Afgangur-
inn fer til ríkissjóðs. „Það myndi
breyta miklu ef gjaldið í heild rynni
til skólans,“ segir Jón Atli.
Til að ná meðaltali OECD-ríkja,
yfir meðaltalsframlag á hvern nem-
anda, þá áætlar hann að miðað við
óbreyttan nemendafjölda þyrftu
framlög til skólans að hækka um
sjö milljarða.
„Við vitum að þetta eru stórar
tölur. Því hafa tillögur okkar hljóm-
að upp á að hækka framlög til kerf-
isins um tvo milljarða á ári, í fjögur
ár, í tröppugangi. 1,5 milljarðar
aukalega á ári til Háskóla Íslands
myndi breyta ofboðslega miklu.“
Mörg undanfarin ár hefur skólinn
verið í niðurskurði. Fjöldi nem-
enda við skólann tók kipp í kjölfar
hrunsins og fjárframlög minnkuðu.
Margar deildir við skólann hafa
verið reknar með viðvarandi halla. Í
þeim hópi má nefna ýmsar raunvís-
indagreinar, stærðfræði, eðlisfræði
og efnafræði. Sömu sögu er að segja
af lagadeild og tannlæknadeildinni.
Ef þessi þróun heldur áfram er fyrir-
séð að skera þurfi niður.
„Við þyrftum að minnka náms-
framboð og fækka námsleiðum. Þá
yrði ekki hægt að endurnýja tækja-
kost og nýliðun myndi minnka þar
sem ekki væri hægt að ráða inn nýtt
fólk,“ segir Jón Atli. Ekki liggur fyrir
hvaða deildir það yrðu sem myndu
lenda í slíkum niðurskurði.
Háskólinn hefur löngum horft á
lista Times Higher Education (THE)
yfir bestu háskóla heims en undan-
farin ár hefur hann vantað lítið upp
á að komast í hóp topp 200. Í næsta
nágrenni er Háskólinn í Björgvin.
„Árið 2005 gerði Ríkisendurskoðun
úttekt á Háskóla Íslands og bar
okkur saman við skólann í Björg-
vin. Þá höfðum við tvöfalt minna
fjármagn. Nú er staðan sú að við
höfum þrefalt minna fjármagn.
Við þurfum að hafa öflugt
háskólakerfi til að geta haft gott
samfélag á Íslandi. Við þurfum að
hafa öflugan alþjóðlegan rannsókn-
arháskóla því við erum í alþjóðlegri
samkeppni um fólk og nemendur,“
segir Jón Atli. johannoli@frettabladid.is
Allt skráningargjaldið skref í rétta átt
Ár hvert greiða stúdentar um 900 milljónir í skráningargjald til Háskóla Íslands. Fjórðungurinn fer til skólans en afgangurinn til ríkis-
ins. Skólinn fær mun minna fjármagn frá hinu opinbera en sambærilegir skólar. Ekki hægt að búa lengur við niðurskurð, segir rektor.
Jón Atli Benediktsson, rektor HÍ, segir að frekari niðurskurður blasi við ef framlög aukast ekki. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Nágrannaháskólar
Tölurnar sýna framlög í milljónum
króna á hvern nemanda árið 2015
og sæti á lista THE sama ár.
l Karolinska 16,8 m.kr. – 44. sæti
l Háskólinn í Lundi 4,2 m.kr. -
119. sæti
l Århus 4,4 m.kr. - 153. sæti
l Köbenhavn 5,9 m.kr. – 160.
sæti
l Göteborg 3,8 m.kr. – 170. sæti
l Aalto 4,9 m.kr. - 229. sæti
l Bergen 5,8 m.kr. - 207. sæti
l Háskóli Íslands 2,0 m.kr. - 242.
sæti
21 milljarður 28
milljarðar
Framlag á hvern nemanda lægra
Mælikvarðinn fjárframlag á hvern nemanda er oft notaður þegar háskólar bera sig saman.
Miðað við óbreyttan nemendafjölda vantar töluvert upp á að skólinn nái OECD-meðaltalinu.
n Fjármagn HÍ núna n Til að ná meðaltali OECD n Til að ná meðaltali Norðurlandanna
35
milljarðar
8 . A p r í L 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r8 F r é T T i r ∙ F r é T T A B L A ð i ð
0
8
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:4
8
F
B
1
4
4
s
_
P
1
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
1
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
A
1
-B
5
8
8
1
C
A
1
-B
4
4
C
1
C
A
1
-B
3
1
0
1
C
A
1
-B
1
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
4
4
s
_
7
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K