Fréttablaðið - 08.04.2017, Side 10
NISSAN MICRA VISIA
ELDSNEYTISNOTKUN 5,0 L/100 KM*
SJÁLFSKIPTUR. VERÐ: 2.090.000 KR.
NISSAN MICRA
NETTUR, ÓDÝR OG HLAÐINN BÚNAÐI
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
Staðalbúnaður er meðal annars: Handfrjáls Bluetooth
símabúnaður, hiti í sætum, aðgerðahnappar í stýri, rafknúið
léttstýri, ESP stöðugleikastýring, AUX tengi fyrir iPod o.fl.
* V
ið
m
ið
un
ar
tö
lu
r f
ra
m
le
ið
an
da
u
m
e
ld
sn
ey
tis
no
tk
un
í
bl
ön
du
ðu
m
a
ks
tri
.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
0
6
4
1
N
is
s
a
n
M
ic
ra
5
x
2
0
e
ld
ri
t
y
́
a
n
t
il
l
b
o
GE bílar
Reykjanesbæ
www.gebilar.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
OPIÐ Í DAG FRÁ KL. 12–16
Bandaríkin Donald Trump, forseti
Bandaríkjanna, fyrirskipaði í fyrri-
nótt árás á herflugvöllinn Shayrat í
Sýrlandi. Bandarísk herskip á Mið-
jarðarhafi skutu 59 Tomahawk-eld-
flaugum á flugvöllinn með þeim
afleiðingum að hann gereyðilagðist.
Að minnsta kosti sex létu lífið
samkvæmt BBC. Þá greinir BBC frá
því að allir hinna látnu og alvarlega
særðu hafi verið hermenn. Sýrlensk-
ir ríkismiðlar segja níu hafa látið
lífið, þar af fjóra almenna borgara.
Ástæða þessara fyrstu beinu
hernaðaraðgerða Bandaríkjanna
gegn ríkisstjórn Bashars al-Assad
Sýrlandsforseta er efnavopnaárás
sem gerð var á bæinn Khan Sheik-
houn fyrr í vikunni. Talið er að sýr-
lenskar þotur hafi lagt af stað frá
Shayrat-flugvelli og varpað saríngasi
á bæinn með þeim afleiðingum að
um áttatíu almennir borgarar létu
lífið.
Þegar Trump ávarpaði þjóð sína,
sem og heim allan, eftir árásina
sagði hann al-Assad einræðisherra
sem hefði „ráðist með hryllilegum
hætti á almenna borgara með efna-
vopnum“.
Hefðbundnir bandamenn Banda-
ríkjanna lýstu stuðningi við árásina.
Í yfirlýsingu frá ríkisstjórn Bretlands
segir meðal annars að hún sé viðeig-
andi svar við villimannslegri árás.
Í sameiginlegri yfirlýsingu Fran-
çois Hollande, forseta Frakklands,
og Angelu Merkel, kanslara Þýska-
lands, segir: „Al-Assad ber alla
ábyrgð á því hvernig málin hafa
þróast. Það má ekki sitja hjá og leyfa
honum að komast upp með endur-
teknar efnavopnaárásir og skelfilega
glæpi.“
Ljóst er að Rússar eru afar ósáttir
við árásina en þeir hafa stutt ríkis-
stjórn al-Assads og meðal annars
fengið að nota Shayrat-flugvöllinn
í loftárásaraðgerðum sínum gegn
uppreisnarmönnum.
Í yfirlýsingu frá utanríkisráðu-
neyti Rússa segir að Bandaríkin hafi
ákveðið að ráðast á ríki sem berjist
gegn alþjóðlegum hryðjuverka-
samtökum án þess að kynna sér
staðreyndir málsins. Rússar, sem og
Sýrlendingar, neita því að sýrlenski
herinn hafi beitt efnavopnum.
„Sjálf viðvera hermanna frá
Bandaríkjunum og öðrum ríkjum
í Sýrlandi án samþykkis ríkis-
stjórnarinnar eða öryggisráðs Sam-
einuðu þjóðanna er augljóst brot á
alþjóðalögum. Slíkt er ekki hægt að
réttlæta,“ segir í tilkynningunni.
„Rússar hafa endurtekið sagst til-
búnir að vinna að því að laga þau
vandamál sem steðja að heiminum,
einkum baráttunni gegn alþjóð-
legum hryðjuverkasamtökum. Við
munum hins vegar aldrei sam-
þykkja einhliða aðgerðir gegn lög-
mætri ríkisstjórn Sýrlands.“
Vladimír Pútín Rússlandsforseti
tók í sama streng. Í yfirlýsingu lýsti
hann aðgerðum Bandaríkjahers
sem árás á fullvalda ríki sem bryti
gegn alþjóðalögum. Árásin væri
mikill skellur fyrir samband Rússa
og Bandaríkjamanna og markmið
hennar hefði verið að draga athygli
frá mannfalli almennra borgara
í loftárásum Bandaríkjanna og
bandamanna þeirra í Írak.
Rússneska fréttastofan TASS
greindi frá því í gær að herfreygátan
Grigorovic aðmíráll væri á leiðinni
á Miðjarðarhaf. Skipið er vopnað
eldflaugum.
Á fundi öryggisráðs SÞ í gær sagði
Nikki Haley, fulltrúi Bandaríkjanna,
að heimurinn biði eftir að Rússar
sýndu ábyrgð í Sýrlandi og endur-
hugsuðu bandalag sitt við al-Assad.
„Al-Assad gerði það sem hann gerði
af því hann vissi að hann kæmist
upp með það. Hann vissi að Rússar
stæðu á bak við hann,“ sagði Haley.
Fulltrúi Sýrlands, Mounzer
Mounzer, sagði árás Bandaríkjahers
senda hryðjuverkamönnum röng
skilaboð. Nefndi hann ISIS sérstak-
lega. thorgnyr@frettabladid.is
Árásin reynir á sambandið við Rússa
Bandaríkjaher réðst á sýrlenskan herflugvöll. Sex hermenn féllu. Gengið er út frá því að ráðist hafi verið á bæinn Khan Sheikhoun frá
flugvellinum og efnavopnum beitt. Rússar bregðast illa við árásinni en Bretar, Frakkar og Þjóðverjar segja hana viðeigandi svar.
Ein Tomahawk-eldflauganna hefst á loft frá herskipi á Miðjarðarhafi. NordicphoTos/AFp
8 . a p r í l 2 0 1 7 l a U G a r d a G U r10 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
0
8
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:4
8
F
B
1
4
4
s
_
P
1
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
1
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
A
1
-C
9
4
8
1
C
A
1
-C
8
0
C
1
C
A
1
-C
6
D
0
1
C
A
1
-C
5
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
B
F
B
1
4
4
s
_
7
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K