Fréttablaðið - 08.04.2017, Page 58
4 ATVINNUAUGLÝSINGAR 8 . A P R Í L 2 0 1 7 LAUGARDAGUR
www.hagvangur.is
Sterk tengsl
í íslensku atvinnulífi
Spennandi störf hjá Vaka
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
Vaki er framsækið og leiðandi fyrirtæki með áherslu á vöruþróun og sölu á tæknibúnaði fyrir fiskeldi. Vörur
Vaka eru þróaðar og framleiddar á Íslandi og seldar í yfir 60 löndum. Starfsmenn eru 30 talsins á Íslandi
og 20 starfsmenn starfa í dótturfyrirtækjum Vaka í Chile, Skotlandi og Noregi. Miklar breytingar í rekstri
fyrirtækisins voru í nóvember 2016 þegar Pentair Aquatic Eco Systems keypti öll hlutabréf í Vaka. Vaki er því
orðinn hluti af stóru fyrirtæki sem ætlar sér mikið á fiskeldissviðinu á næstu árum.
Sjá nánar á www.vaki.is
Sjá nánar á www.pentairaes.com
Samhliða víðtækara vöruúrvali og aukinni þekkingu leitum við nú að öflugum einstaklingum til þess að takast
á við krefjandi verkefni sem framundan eru. Við bjóðum upp á spennandi starfsvettvang í vaxandi alþjóðlegu
umhverfi, góða starfsaðstöðu og árangurstengd launakjör.
Rafeindavirki eða rafvirki
Starfið felst í þátttöku í framleiðsluteymi Vaka.
Rafeindavirki vinnur undir beinni stjórn framleiðslu-
stjóra og ber ábyrgð á eftirfarandi málaflokkum
gagnvart honum og upplýsingaflæði til hans.
Helstu verkefni:
• Prófun, samsetning og viðgerðir á
framleiðslubúnaði Vaka
• Tækniaðstoð og fjarþjónusta við
undirverktaka, notendur og þjónustuaðila
• Viðgerðir rafeindakorta og prófun
• Þátttaka í þróunarverkefnum
• Annað tilfallandi
Menntun og hæfniskröfur:
• Sveinspróf í rafeindavirkjun eða rafvirkjun
• Drifkraftur og metnaður
• Frumkvæði, sjálfstæði og góðir
samskiptahæfileikar
• Jákvæðni og rík þjónustulund
Söluráðgjafi
Um er að ræða nýja stöðu vegna aukinna
verkefna á Íslandi og erlendis. Söluráðgjafi
vinnur undir beinni stjórn framkvæmdastjóra og
ber ábyrgð á eftirfarandi málaflokkum gagnvart
honum og upplýsingaflæði til hans.
Helstu verkefni:
• Sala og ráðgjöf til viðskiptavina
• Tilboðsgerð og eftirfylgni
• Skráning pantana og samningagerð
• Þátttaka í vörusýningum og ráðstefnum
• Mikil samskipti við viðskiptavini víða um heim
Menntun og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Mikill áhugi á sölumennsku
• Drifkraftur og metnaður
• Góð færni í talaðri og ritaðri ensku
• Tölugleggni og nákvæmni
Hugbúnaðarsérfræðingur
Starfið felst í að þróa nýjar lausnir á sviði
gagnabirtingar og úrvinnslu, ásamt því að
gera umbætur á núverandi hugbúnaði.
Helstu verkefni:
• Hönnun, útfærsla og rekstur á hugbúnaðarkerfi
fyrir framleiðslustýringu í fiskeldi
• Umsýsla gagnagrunna og þróun hugbúnaðar til
greiningar gagna
• Þróun á vefsíðu og skýrslugerð
• Þátttaka í þróunarverkefnum
Menntun og hæfniskröfur
• Háskólapróf í tölvunarfræði eða verkfræði
• Þekking á vefforritunarmálum s.s. Javascript,
C#, SQL
• Reynsla af hugbúnaðargerð er mikill kostur
• Frumkvæði, sjálfstæði og góðir
samskiptahæfileikar
Upplýsingar veita:
Þórir Þorvarðarson - thorir@hagvangur.is
Inga S. Arnardóttir - inga@hagvangur.is
Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og með 23. apríl nk.
0
8
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:4
8
F
B
1
4
4
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
7
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
A
1
-E
6
E
8
1
C
A
1
-E
5
A
C
1
C
A
1
-E
4
7
0
1
C
A
1
-E
3
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
4
4
s
_
7
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K