Fréttablaðið - 08.04.2017, Side 59
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
Við leitum að snillingi í reikningshaldi
Helstu verkefni
• Bókhaldsþjónusta til viðskiptavina, svo sem
launavinnsla, skattskil og gerð ársreikninga
• Þjónusta, ráðgjöf og þjálfun viðskiptavina sem nýta
sér viðskiptahugbúnað félagsins
• Ráðgjöf um þróun og virkni nýs
viðskiptahugbúnaðar félagsins á sviði reikningshalds
• Önnur tengd verkefni
Hæfniskröfur
• Viðurkenndur bókari, háskólagráða í viðskiptafræði
eða sambærileg menntun
• Yfirgripsmikil starfsreynsla og þekking á bókhaldi
• Reynsla af gerð milliuppgjöra og ársreikninga
• Nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð
• Mjög góð íslenskukunnátta og hæfni til að miðla í
rituðu og töluðu máli
• Mjög góð almenn tölvuþekking er nauðsynleg
Ungt, vaxandi þjónustufyrirtæki í viðskiptahugbúnaði og bókhaldsþjónustu óskar eftir snillingi í reikningshaldi.
Í starfinu felst almenn bókhaldsþjónusta, launaumsjón, skattskil og gerð ársreikninga fyrir viðskiptavini, ásamt
almennri ráðgjöf, þjálfun og þjónustu tengdri viðskiptahugbúnaði félagsins.
Mikilvægt er að hafa mjög ríka þjónustulund, elska reikningshald og tölvur og hafa gaman af samskiptum við
annað fólk. Í boði er vel launað og krefjandi starf í skemmtilegu og lifandi umhverfi hjá vaxandi félagi.
Upplýsingar veitir:
Sverrir Briem
sverrir@hagvangur.is
Umsóknir óskast fylltar út á
www.hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og með
18. apríl nk.
Öllum umsóknum verður svarað
þegar ákvörðun liggur fyrir.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
Skrifstofustjóri á skrifstofu sviðsstjóra
velferðarsviðs Reykjavíkurborgar
Helstu verkefni skrifstofustjóra
• Stýrir daglegum rekstri skrifstofu sviðsstjóra og tekur
þátt í stjórnun sviðsins
• Tekur þátt í undirbúningi funda velferðarráðs og situr
fundi ráðsins
• Er samhæfingaraðili og hefur yfirsýn yfir stjórnsýslu
sviðsins
• Styður við eftirlits- og þjónustuhlutverk velferðarsviðs
• Hefur yfirumsjón með rannsóknum og
tölfræðiúrvinnslu, gerð starfsáætlunar og ársskýrslu
• Hefur yfirumsjón með upplýsinga- og kynningarmálum
sviðsins í samráði við upplýsingadeild ráðhúss
• Sinnir sérverkefnum í umboði sviðsstjóra
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi,
meistarapróf nauðsynlegt
• Þekking, reynsla og áhugi á opinberri
stjórnsýslu
• Reynsla af verkefnastjórnun og
upplýsingamiðlun
• Framúrskarandi hæfni í íslensku og
textagerð
• Afar góð færni í notkun á algengum
hugbúnaði sem tengist starfinu
• Lipurð í mannlegum samskiptum
• Skipulagshæfni, metnaður og sjálfstæð
vinnubrögð
Upplýsingar veita:
Katrín Óladóttir
katrin@hagvangur.is
Regína Ásvaldsdóttir
regina.asvaldsdottir@reykjavik.is
Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og með 16. apríl nk.
Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og
kynningarbréf.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun
um ráðningu liggur fyrir. Umsóknir gilda í 6 mánuði
ef staðan losnar á ný.
Laun taka mið af ákvörðun kjaranefndar Reykjavíkurborgar.
Við leitum að skrifstofustjóra og staðgengli sviðsstjóra með mjög góða skipulags- og greiningarhæfni og brennandi áhuga á
stjórnsýslu. Þarf að vera eldsnöggur að skrifa góðan texta og tileinka sér nýjustu tækni á sviði samskipta og upplýsingamiðlunar.
Skrifstofustjóri stýrir skrifstofu sviðsstjóra, sem skiptist í deild gæða og rannsókna og stjórnsýsludeild. Á skrifstofunni fer fram
undirbúningur og úrvinnsla funda velferðarráðs, gæðaeftirlit, söfnun og samhæfing tölulegra upplýsinga, rannsóknir, úttektir og
ýmis greiningarvinna auk upplýsingamiðlunar.
Velferðarsvið Reykjavíkurborgar fer með ábyrgð á velferðarþjónustu borgarinnar, þ.m.t. almennri félagsþjónustu og sértækri þjónustu við
fatlað fólk, aldraða og börn. Í því felst stefnumótun í velferðarmálum, áætlanagerð, samþætting velferðarþjónustu, eftirlit í samræmi við
lög, reglur, samþykktir og pólitíska stefnu í velferðarmálum, mat á árangri, þróun nýrra úrræða og gerð þjónustusamninga við þriðja aðila.
Framkvæmd velferðarþjónustu fer fram á fimm þjónustumiðstöðvum í hverfum borgarinnar og hjá Barnavernd Reykjavíkur.
Á velferðarsviði starfa um 2.500 starfsmenn á um 100 starfseiningum í borginni, sem margar veita þjónustu allan sólarhringinn.
Velferðarsvið þjónustar um 20.000 einstaklinga á ári og eru áætluð útgjöld sviðsins um 26 milljarðar á árinu 2017.
Velferðarsvið starfar með velferðarráði og barnaverndarnefnd.
Nánari upplýsingar um starfsemi velferðarsviðs má sjá á vef sviðsins; www.velferdarsvid.is
Við ráðningar í störf hjá Reykjavíkurborg er tekið mið af mannréttindastefnu borgarinnar.
ATVINNUAUGLÝSINGAR 5 L AU G A R DAG U R 8 . A P R Í L 2 0 1 7
0
8
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:4
8
F
B
1
4
4
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
A
1
-F
5
B
8
1
C
A
1
-F
4
7
C
1
C
A
1
-F
3
4
0
1
C
A
1
-F
2
0
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
4
4
s
_
7
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K