Fréttablaðið - 08.04.2017, Page 99

Fréttablaðið - 08.04.2017, Page 99
Þarna er á ferðinni sama frábæra formúlan og áður enda halda yfir 80 prósent notenda tryggð við merkið. Sólar- vörnin þolir sjó, sund og rennur ekki af við leik og íþróttaiðkun,“ segir Anna Björg Hjartardóttir, framkvæmdastjóri Celsus. EVY sólarvörnin er upprunnin frá Sví- þjóð en hún byggir á einkaleyfis- skráðri húð varnarformúlu sem er læknisfræðilega skráð. Langvirk sólarvörn EVY sólarvörnin smýgur hratt inn í húðina, þornar fljótt og er ekki klístruð. „Formúlan EVY techno- logy myndar rakafyllta verndandi himnu í hornlagi húðarinnar sem líkir eftir varnareiginleikum húðarinnar sjálfrar en rannsóknir hafa sýnt fram á að sólarvörnin hafi langvirka vörn gegn UVA- og UVB-geislum og sé afar vatns- þolin. Hún verndar húðina einnig gegn þornun af sjó og vindi. Húðin verður ekki glansandi eða klístruð og því festist sandur ekki við hana.“ Húðlæknar mæla með EVY Allar sólarvarnarvörurnar frá EVY eru ofnæmisprófaðar og sérstak- lega þróaðar fyrir viðkvæma húð sem þolir illa sól. EVY er með hæstu mögulegu vörn gegn skað- legum UVA-geislum, eða yfir 90% UVA-vörn, og er merkt með viður- kenndu fimm stjörnu UVA-merki. „EVY ver húðina því eins vel og hægt er gegn sólskaða, húðöldrun og blettum en UVA-geislarnir eru taldir valda húðkrabbameini,“ segir Anna. Hún bendir á að UVA- vörn í sólarvörnum þurfi sam- kvæmt ESB-reglum ekki að vera meira en 33 prósent af uppgefnum varnarstuðli sólarvarna. Hún segir húðlækna mæla með EVY fyrir allar húðgerðir en einnig hafi sænsku Vitiligo húðsamtökin útnefnt EVY sem öruggustu sólar- vörnina fyrir sína meðlimi. Valin besta sólarvörnin Anna greinir frá því að óháð prófun hafi verið gerð á viður- kenndum sólarvörnum sem seldar séu í apótekum í Skandínavíu. Niðurstaðan var sú að EVY var valin besta sólarvörnin. Kostir EVY séu enda margir. „Engin glansáferð verður og vörnin teppir ekki húðina. Það myndast ekki hvít slikja á húðinni eins og oft vill verða og auk þess er blandan ilmefnalaus. Það má bera vörnina í kringum augu og varir og einnig er gott að nota EVY í hársvörðinn og verndar hárenda fyrir þurrki, sól og sjó.“ Umbúðir EVY eru bakteríuheldar og sleppa engu súrefni inn þegar froðan þrýstist út. Innihaldið þránar því ekki og helst ferskt þar til flaskan er tóm, því þarf ekki að henda afgöngum. „Froðan er sérlega drjúg og endingargóð og mörgum dugar einn brúsi í viku á sólarströnd.“ Mjúk rakafyllt húð EVY sólarvörnin, spf20, spf30 og spf50 ,inniheldur silkiextrakt og kollagen auk C- og E-vítamína sem byggir upp húðina og hindrar ótímabæra öldrun af völdum sólarinnar. Fólk verður laust við húðþurrk og flagnar ekki. Fyrir börn frá 6 mánaða EVY Kids er mild og ofnæmisprófuð barnaformúla með hæstu mögu- legu UVA-vörn auk UVB-varnar. Sólarvörnin er langvirk. „Mjúk froðan er hlý og þægileg og börnin hreinlega elska að láta bera hana á sig enda þornar hún fljótt,“ segir Anna. Sólarvörnin er vatnsþolin enda elska börn að leika sér í vatni og því þurfa þau sólarvörn sem þolir flest. Nota má EVY Kids fyrir börn frá sex mánaða aldri. EVY Kids teppir ekki húðina og hún andar þvi og svitnar eðlilega. Engar nanóeindir eru í EVY sólar- vörnunum en það myndast engin hvít slikja á húðinni. EVY Kids er sérstaklega mild fyrir húð barna og auðvelt að bera hana á. Hin vinsæla Pro- derm sólarvörn hefur fengið nafnið EVY. Nýtt - EVY sólarvörn Proderm sólarvörnin sem þúsundir Íslendinga hafa notað í nær tuttugu ár hefur fengið nýtt nafn, EVY. Uppáhald förðunarmeistaraAnna segir marga húð- og förð-unarfræðinga velja EVY. „ EVY er langvirk sólarvörn sem þolir smink, er laus við klístur og þar sem áferðin er mött gengur vel að farða yfir. Íslenskir förðunarfræð- ingar í fremstu röð nota EVY við útikvikmyndatökur uppi á jöklum, og í löngum útisenum.“ Fyrir afreksíþróttafólk EVY er afar vinsælt meðal íþrótta- fólks sem stundar allt frá sundi, golfi og fótbolta til hlaupa og siglinga. Þannig notar sænska golf- og hjólreiðalandsliðið EVY við íþróttaiðkanir. „Í mörgum erfið- ustu siglingakeppnum heims, þar sem seltan, sjórinn og brennandi sólin mynda erfiðar aðstæður, má húð þátttakenda alls ekki brenna, til að keppendurnir geti haldið áfram keppni. Þeir sem hafa notað EVY við þessar aðstæður segja: „Við verðum að nota þá sólarvörn sem þolir erfiðustu aðstæðurnar og það er EVY.“ EVY fæst í apótekum, Fríhöfninni, Hagkaup, Fjarðarkaupum, Nettó, Grænni heilsu og Melabúðinni. Engin litarefni, ilm- eða rot- varnarefni er að finna í EVY. Vinsælt aftersun Aftersun frá EVY hefur slegið í gegn og hefur verið valið af fjölda tímarita sem besta aftersun-varan að sögn Önnu. Aftersun dregur úr roða og gefur nær- andi raka í allt að tólf tíma. Blandan hefur matta áferð, froðan er mjúk og smýgur hratt inn í húðina. Þá má setja farða beint yfir. Aftersun er mikið endurbætt formúla og inniheldur nú Ginkgo biloba sem dregur úr roða og bólgum og melon sem mýkir, frískar og stinnir húðina. Aftersun er kælandi og græðandi og inniheldur Aloe vera. Einnig húðuppbyggjandi silkiextrakt og kollagen gegn sólskaða og húðöldr- un ásamt C- og E-vítamíni. Aftersun viðheldur fallega sólbrúnum húðlit. KYNNINGARBLAÐ 7 L AU G A R DAG U R 8 . A P R Í L 2 0 1 7 0 8 -0 4 -2 0 1 7 0 4 :4 8 F B 1 4 4 s _ P 0 9 9 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 9 4 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C A 2 -0 4 8 8 1 C A 2 -0 3 4 C 1 C A 2 -0 2 1 0 1 C A 2 -0 0 D 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 1 4 4 s _ 7 _ 4 _ 2 0 1 7 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.