Fréttablaðið - 08.04.2017, Blaðsíða 102
Salan hefur farið mjög vel af stað núna fyrstu þrjá mánuðina og er mun meiri en í
fyrra og árið þar á undan,“ segir
Tómas J. Gestsson, framkvæmda
stjóri Heimsferða sem bjóða upp á
þrettán sólaráfangastaði í ár.
„Við höfum aukið framboð
okkar undanfarið og bætt við
áfangastöðum á Ítalíu og í Króatíu
ásamt Slóveníu en við höfum
fundið að fólk er áhugasamt um
þessi svæði.“
Góður kynningarafsláttur
„Núna um þessar mundir erum við
með allt að 20.000 kr. bókunar
afslátt fyrir fullorðna og allt að
30.000 kr. bókunarafslátt fyrir
börn á ferðum til Bibione á Ítalíu,
Króatíu og Portoroz í Slóveníu,“
segir Tómas.
25.000 kr. staðfestingargjald
Almennt þarf aðeins að greiða
25.000 kr. staðfestingargjald við
bókun ferða en þá er m.v. að meira
en fjórar vikur séu í brottför. Þann
ig er unnt að bóka og staðfesta
ferð og greiða síðan eftirstöðvar
ferðarinnar síðar eða jafnt og þétt.
Ef brottför er innan fjögurra vikna
þá þarf að greiða alla ferðina.
Spennandi nýir áfangastaðir
Þeir staðir sem Heimsferðir bjóða
upp á eru Krít, Gran Canaria,
Costa de Almería, Albir, Madeira,
Mallorca, Costa del Sol, Tenerife,
Benidorm, Salou og Altea. Nýjustu
áfangastaðirnir eru Bibione á Ítalíu,
Króatía og Portoroz í Slóveníu og
nú einnig Alicante. „Salan á þessa
staði gengur vel enda eru þeir afar
spennandi kostir,“ segir Tómas.
Heimsferðir bjóða nú beint flug í allt sumar á einn vinsælasta áfangastað
við Adríahafið, Bibi one á Ítalíu.
Bibione er einstök strandperla
við norðanvert Adríahafið, miðja
vegu milli Feneyja og Trieste og
er örstutt frá Lignano sem margir
þekkja.
Staðurinn býður allt það sem
fólk óskar sér í sumarleyfinu; ein
stakar strendur, frábæra veitinga
staði, fjölbreytta afþreyingu og
gott úrval gististaða. Bibione er
sannkölluð paradís fyrir fjöl
skyldur jafnt sem einstaklinga.
Strandlíf og skemmtun
Ströndin við Bibione er án efa
ein af allra bestu sólarströndum
á Ítalíu. Hún er átta kílómetra
löng og mjög breið og falleg með
fínum sandi. Ströndin og lífið
á henni leikur stórt hlutverk á
Bibione en þar er einnig að finna
skemmtanir og uppákomur af
ýmsu tagi.
Matur og drykkur
Mikið úrval veitingastaða er á
Bibi one og þar má bæði finna
ítalska og alþjóðlega staði. Hvort
sem leitað er að skyndibita eða
sælkeramáltíð, stað fyrir morgun
verð eða nætursnarl, allt er til
staðar. Allir ættu að prófa dæmi
gerðan mat frá svæðinu, til dæmis
hið frábæra úrval sjávarfangs
eða hrá skinku, osta og ávexti frá
Friulihéraði. Þekkt vínræktar
svæði eru allt í kring sem enginn
víngæðingur ætti að láta fram
hjá sér fara. Enginn kemst heldur
hjá því að koma við á dæmi
gerðum ítölskum ísbar. Ekki má
heldur gleyma því að ítalskt kaffi
er ómissandi hluti matarmenn
ingarinnar.
Ævintýri fyrir börnin
Bibione er frábær staður fyrir
barnafjölskyldur. Ströndin er
einstök og þar líður dagurinn
hratt hvort heldur er við leik
eða afslöppun. Í næsta nágrenni
Bibi one er mikil afþreying í
boði fyrir fólk á öllum aldri; m.a.
skemmtigarðurinn Luna Park
Adriatico, dýragarðurinn Zoo of
Lignano, vatnsskemmtigarðurinn
Aqua splash og sædýragarðurinn
Gulliver landia.
Gott að versla
Á Bibione er mikið úrval versl
ana og eins í nágrannabænum
Lignano. Einnig eru vikulega
haldnir markaðir á svæðinu.
Skemmtilegt er að kíkja og skoða
í búðirnar, hvort sem leitað er
eftir fæði, klæði, minjagripum
eða öðru. Á sumrin eru margar
verslanir opnar fram eftir kvöldi.
Einnig má skreppa til Udine eða
til Trieste.
Notalegt veður
Yfirleitt er mjög notalegt loftslag
á Bibione yfir sumartímann, að
jafnaði um 25 stiga hiti, sólríkt og
þægileg hafgola flesta daga.
Við höfum aukið
framboð okkar og
bætt við áfangastöðum á
Ítalíu og í Króatíu en við
höfum fundið að fólk er
áhugasamt
um þetta
svæði.
Tómas J. Gestsson
Menning Króatíu er heillandi blanda, sem
Grikkir, Rómverjar, Slavar, Frakkar, Ítalir og
Austurríkismenn hafa sett mark sitt á. Strandlengja
Adríahafsins er sú fegursta í Evrópu með vogskornum
ströndum, eyjum og skerjum.
Heimsferðir
bjóða upp á
beint flug til
Bibione á Ítalíu í
sumar.
Bibione – Ein glæsilegasta sólarströnd Ítalíu!
Bibione á Ítalíu er einstök strandperla við norðanvert Adríahafið.
Sólarupplifun Heimsferða
Heimsferðir bjóða upp á 13 sólaráfangastaði í ár sem er mesta úrval sólaráfangastaða ferðaskrif-
stofu á Íslandi. Nú má einnig njóta sólarinnar í strandbæjum á Ítalíu, í Króatíu og Slóveníu.
Króatía er einn
eftirsóttasti
áfangastaður
ferðamanna í
Evrópu.
Króatía er einn eftirsóttasti áfangastaður ferðamanna í Evrópu, enda er landið stór
kostleg náttúruperla sem státar af
fegurstu ströndum og tærasta sjó
Evrópu, heillandi menningu og
glæsilegum gististöðum. Heims
ferðir bjóða beint flug vikulega í
allt sumar til þessa einstaka áfanga
staðar sem heillar alla sem þangað
koma.
Menning Króatíu er heillandi
blanda, sem Grikkir, Rómverjar,
Slavar, Frakkar, Ítalir og Austur
ríkismenn hafa allir sett mark
sitt á. Strandlengja Adríahafsins
er sú fegursta í Evrópu með
vogskornum ströndum, eyjum
og skerjum þar sem aldagamlir
bæir skaga út í hafið. Mannlífið í
Króatíu er engu líkt og þeir sem
þangað koma eru sammála um
að þar sé að finna Evrópu eins og
hún var og hét.
Sólaráfangastaðurinn Porec
er á Istriaskaganum en skaginn
er nyrsti hluti Króatíu og þar eru
margir þekktustu sumardvalar
staðirnir, svo sem Porec, Umag og
Rovinj. Aðaláfangastaður Heims
ferða í Króatíu er Porec á Istria
skaganum ásamt Umag þar sem er
að finna glæsilega gististaði með
frábærri aðstöðu.
Fagri bærinn Porec
Bærinn í Porec er stórkostlega fal
legur og geymir aldagamla sögu á
hverju götuhorni, frábæra veitinga
staði og iðandi mannlíf jafnt að
nóttu sem degi. Það er yndislegt að
ganga um bæinn og snæða á góðum
veitingastað við sjávarsíðuna.
Staðsetningin er frábær, á miðjum
skaganum, og því stutt að fara,
hvort sem er í kynnisferð til Pula,
Rovinj eða til Feneyja.
Í Porec eru einnig toppaðstæður
fyrir þá sem vilja hafa nóg að gera
í fríinu og aðstæður til hvers konar
íþróttaiðkunar á mörgum gistival
kostunum eru frábærar.
Strandbærinn Umag
Strandlengjan við Umag er um
20 kílómetra löng en Umag er
mjög vinsæll sólarstaður og gamli
bærinn afar aðlaðandi með sínum
þröngu götum. Þekktustu strend
urnar í Umag eru Katoro, Aurora,
Kanegra og Laguna Stella Maris en
Katoro er allra vinsælust og býður
fjölbreytta þjónustu.
Gott verðlag
Verðlag í Króatíu er hagstætt og
enn sem komið er ódýrara en á
Ítalíu og Spáni. Hér er gott að gera
vel við sig í mat og drykk og ódýrt
er að ferðast um landið.
Einstakt veðurfar
Veðrið er einstakt á þessum stað,
sem liggur við Adríahafið. Sumrin
eru hlý en ekki of heit því hafgolu
gætir alltaf. Gróðursældin er ein
stök og sólríkt yfir sumarmánuðina.
Króatía – strandbæirnir Porec og Umag
10 KYNNINGARBLAÐ 8 . A P R Í L 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R
0
8
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:4
8
F
B
1
4
4
s
_
P
1
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
A
1
-E
B
D
8
1
C
A
1
-E
A
9
C
1
C
A
1
-E
9
6
0
1
C
A
1
-E
8
2
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
1
4
4
s
_
7
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K