Fréttablaðið - 08.04.2017, Page 112

Fréttablaðið - 08.04.2017, Page 112
Á rið 1969 kom út í Frakklandi bókin Papillon eða Fiðr-ildið eftir Henri Charrière. Verkið sló þegar í gegn og tróndi á toppi sölulista í marga mánuði. Sagan var þýdd á fjölda tungumála og kom út á íslensku árið 1976. Þremur árum fyrr var hún kvikmynduð með stórleikurunum Steve McQueen og Dustin Hoffman í aðalhlutverkum. Vinsældir Papillion voru skiljan- legar enda Charrière afbragðssögu- maður og fléttan æsileg. Sagan gerist á fjórtán ára tímabili, frá 1931 til 1945, og byggði að sögn höfundar- ins í öllum meginatriðum á ævi hans sjálfs, allt frá því að hann var handtekinn og ranglega dæmdur fyrir morð árið 1931 þar til hann slapp úr fangelsi fjórtán árum síðar eftir ótal flóttatilraunir, sem margar hverjar gengu upp en enduðu yfir- leitt með nýrri handtöku innan skamms. Ævintýri þessi gerast öll í Frönsku-Gvæjana, fanga nýlendu Frakka í Suður-Ameríku þar sem söguhetjan var vistuð í hverju fang- elsinu öðru rammgerðara. Að lokum var honum komið fyrir á hinni alræmdu Djöflaey, sem útilokað var talið að flýja frá, en það tókst engu að síður. Áhugafólk um æsilegar flótta- bókmenntir verður ekki svikið af sögunni um Papillon, þótt fræði- menn dragi sannleiksgildi hennar í efa. Þannig lýstu frönsk stjórnvöld því yfir skömmu eftir útkomu bók- arinnar að Charrière hefði aldrei verið vistaður á Djöflaey, sem þess utan var ekki nýtt til þrælkunar- vinnu líkt og lýst er í bókinni heldur sem einangrunarfangelsi fyrir fanga sem taldir voru sérlega háskalegir eða þjáðust af geðsjúkdómum. Talið er að Charr ière hafi í raun upplifað fæst þeirra ævintýra sem hann lýsir í sögunni, heldur safnað saman frá- sögnum samfanga sinna og spunnið úr þeim spennandi söguþráð. En þótt umgengni höfundarins við sannleikann kunni að hafa verið frjálsleg, átti bókin stóran þátt í að vekja athygli umheimsins á ljótum kafla í franskri sögu, fanganýlend- unni í Frönsku-Gvæjana. Franska-Gvæjana er rúmlega 80 þúsund ferkílómetra landsvæði með 250 þúsund íbúa á norðvestur- horni meginlands Suður-Ameríku. Hún liggur að Brasilíu til suðurs, en vestan hennar eru tvö smáríki, Súrí- nam og Gvæjana. Þau ríki eru bæði fjölmennari en Franska-Gvæjana og eru fullvalda, þótt tengslin við gömlu nýlenduveldin, Holland og Bretland, séu enn sterk. Franska- Gvæjana telst á hinn bóginn hluti franska ríkisins. Íbúarnir eru Frakkar, kjósa í frönsku þing- og for- setakosningunum, notast við evru í viðskiptum og landið er hluti af Evrópusambandinu. Prettir og plágur Saga Evrópumanna í þessu einangr- aða landi hófst þegar með fyrstu leiðöngrum Kristófers Kólumbusar til nýja heimsins, þegar menn hans sigldu að ströndum Suður-Ameríku og freistuðu landgöngu. Í refskák evrópsku nýlenduveldanna færðist landið milli áhrifasvæða ýmissa ríkja, en snemma fengu Frakkar þó augastað á því. Fyrstu tilraunir til að koma upp frönskum nýlendum á svæðinu voru gerðar á fyrri hluta sautjándu aldar, en fóru út um þúfur vegna árása innfæddra og árekstra við önnur stórveldi. Sjö ára stríðinu (sem raunar stóð í níu ár) lauk árið 1763 með sigri Breta en fullum ósigri Frakka og Spánverja. Í friðarsamningunum misstu Frakkar mikil lönd í Vestur- heimi og var Franska-Gvæjana meðal þess litla sem þeir héldu eftir. Í kjölfarið jókst því áhugi franskra stjórnmálamanna á að nýta þessar lendur sínar með einhverjum hætti. Stjórn Loðvíks fimmtánda freistaði þess að hefja stórfellt landnám og lokkaði þúsundir Frakka vestur um haf með gylliboðum um auðævi og líf í lystisemdum. Það reyndust orðin tóm. Landnemarnir kunnu ekkert á umhverfið, máttu þola árásir indíána og hrundu niður úr hitabeltissjúkdómum. Aðeins nokkur hundruð áttu afturkvæmt til Frakklands og lýstu þar illri vist sinni, með þeim afleiðingum að Franska-Gvæjana fékk á sig illt orð meðal almennings sem lifði ára- tugum saman. Úr því að Franska-Gvæjana var í huga Frakka orðin einhvers konar helvíti á jörðu, var óraunhæft að stofna þar hefðbundna nýlendu með fólki sem flyttist sjálfviljugt, en snemma kviknaði sú hugmynd að þangað mætti senda sakamenn. Þannig var hópur fylgismanna byltingarforingjans Robespierres sendur þangað í útlegð eftir að leið- togi þeirra var fundinn sekur um landráð og tekinn af lífi í hjaðninga- vígum frönsku byltingarinnar. Þá smástyrktist plantekrubúskapurinn í landinu, sem byggðist á svörtum þrælum. Ein helsta framleiðslu- varan var rauður pipar, sem nefnist cayenne-pipar á ýmsum tungu- málum og er einmitt kenndur við Cayenne, höfuðstað og langfjöl- mennasta bæ Frönsku-Gvæjana. Það var þó ekki fyrr en um miðja nítjándu öld að stórfelldir flutning- ar á föngum hófust frá Frakklandi til Frönsku-Gvæjana. Í fyrstu voru það einkum glæpamenn sem fengið höfðu þyngstu dómana sem hlutu þessi örlög, en árið 1885 voru sett lög þess efnis að þeir sem hlytu dóm fyrir sinn þriðja glæp skyldu sendir til fanganýlendunnar óháð því hversu smávægileg afbrotin kynnu að vera. Fólkið sem hlaut þessi örlög skyldi afplána refsingu sína í fanga- búðum en að því loknu vera óheim- ilt að snúa aftur til Frakklands. Í þeirri von að fanga nýlendan yrði með tímanum burðugt samfélag, voru dómstólar sérstaklega duglegir við að dæma konur í útlegðarvist í þeirri von að þær myndu giftast fyrrverandi föngum og eiga með þeim börn. Harðasti dómurinn Fyrirmyndir þessa kerfis voru ýmsar. Þannig höfðu Bretar um langt skeið létt af yfirfullum fang- elsum sínum með því að senda heilu skipsfarmana af fólki til Ástralíu. Ólíku var þó saman að jafna varð- andi möguleika fólks á að bjarga sér í hinum nýju heimkynnum. Í Frönsku-Gvæjana beið fæstra annað en örbirgð, þar sem betl og þjófnaður voru helstu bjarg irnar og hvers kyns sjúkdómar herjuðu á mannskapinn. Útlegðardómur til fanganýlendunnar var því í ansi mörgum tilvikum í raun skjótvirkur dauðadómur. Hörmulegastar eru þó lýsingarnar á þeim fangelsum sem vistuðu geð- sjúka afbrotamenn eða fólk sem sturlast hafði meðan á dvölinni stóð. Það var læst inni í ramm- gerðum byggingum sem fangaverð- irnir sjálfir hættu sér tæpast inn í og þar réði algjört stjórnleysi ríkjum. Fengu fangarnir mat afhentan í gegnum lúgu og varðmenn hirtu í staðinn lík þeirra sem dóu eftirlits- lausir innan múranna. Þrátt fyrir harðneskjuleg viðhorf þessara ára á sviði refsinga, hefði aðbúnaður af þessu tagi aldrei verið liðinn í Evr- ópu en fékk að viðgangast athuga- semdalaust í hinu fjarlæga landi. Dreyfuss-málið sem skók franskt samfélag um aldamótin 1900 beindi athyglinni að aðstæðum á Djöflaey og í öðrum fangabúðum Frönsku- Gvæjana. Alfred Dreyfuss, gyðingur og yfirmaður í franska hernum, var þar ranglega sakfelldur fyrir að selja Þjóðverjum hernaðarleyndarmál. Dreyfuss eignaðist fjölmarga mál- svara úr röðum frjálslyndra Frakka. Honum var haldið föngnum á Djöflaey og varð það til þess að ýmsir blaðamenn tóku að kynna sér ástandið þar. Árið 1906 var Dreyfuss sýkn- aður eftir gríðarlega harðar deilur og í kjölfarið ákvað franska ríkis- stjórnin að stefna að lokun fangels- anna í áföngum. Það tók þó lengri tíma en ætlað var, meðal annars vegna tveggja heimsstyrjalda og heimskreppunnar. Formlega voru fangabúðirnar starfræktar til ársins 1951 og í raun nokkuð lengur, þar sem geðsjúkum föngum var haldið áfram innilokuðum. Þá hirti franska stjórnin ekki um að flytja heim þá fanga sem látnir voru lausir. Því var fjöldi fólks sem ekki gat greitt far- gjaldið til Frakklands strandaglópar í landinu og bjó við sára fátækt. Franska-Gvæjana fékk árið 1946 stjórnskipulega stöðu sína sem hluti franska ríkisins. Tveimur áratugum síðar fluttu Frakkar miðstöð geim- ferðaáætlunar sinnar þangað frá Alsír, en nálægðin við miðbaug gerir landið heppilegt til geimskota. Eru flest geimskot Evrópsku geimferða- stofnunarinnar því framkvæmd í Frönsku-Gvæjana og skapar þjón- usta í tengslum við það allnokkrar tekjur fyrir heimamenn. Þjóðarframleiðsla á mann er nokkru hærri í landinu en gerist og gengur í Suður-Ameríku, en lífs- kjör eru þó miklu lakari en í Frakk- landi sjálfu. Fátækt er útbreidd, um fjórðungur landsmanna er án atvinnu og stór hluti landsmanna hefur ekki tryggan aðgang að raf- magni og heilsusamlegu neyslu- vatni. Þótt franska ríkisfangið tryggi íbúum Frönsku-Gvæjana ýmis rétt- indi, svo sem fría grunnmenntun og heilbrigðisþjónustu, má segja að sambandið við Frakkland sé einn- ig fjötur um fót og komi í veg fyrir að þjóðfélagið og atvinnulífið geti þróast á eigin forsendum. Fram- leiðsla er lítil og samfélagið algjör- lega komið upp á innflutning og opinberan stuðning. Íbúarnir eru ósáttir við kjör sín og afskiptaleysi franskra stjórnmála- manna sem sýna landinu engan áhuga nema rétt í aðdraganda kosninga. Á liðnum vikum hafa kröftug mótmæli og allsherjarverk- föll riðið yfir Frönsku-Gvæjana, þar sem efnahagslegra úrbóta er krafist og stjórnmálamönnum sagt til syndanna. Það var því eins og olía á eld þegar Emmanuel Macron, sem talinn er sigurstranglegastur í for- setakosningunum, tjáði sig um mál- efni Frönsku-Gvæjana og reyndist svo fáfróður um landið að hann hélt að það væri eyja! Íbúar þessarar snauðu gömlu fanganýlendu eygja því litlar breytingar þótt nýr maður flytji í forsetahöllina í París. Strönd útlaganna Úr því að Franska-Gvæjana var í huga Frakka orðin einhvers konar helvíti á jörðu, var óraunhæft að stofna þar hefðbundna nýlendu með fólki sem flyttist sjálf- viljugt, en snemma kviknaði sú hugmynd að þangað mætti senda sakamenn. Stefán Pálsson skrifar um síð- ustu nýlenduna í Suður-Ameríku. Saga til næsta bæjar Fengu Fangarnir mat aFhentan í gegnum lúgu og varðmenn hirtu í Staðinn lík þeirra Sem dóu eFtirlitSlauSir innan múranna. 8 . a p r í l 2 0 1 7 l a U G a r D a G U r48 H e l G i n ∙ F r É T T a B l a ð i ð 0 8 -0 4 -2 0 1 7 0 4 :4 8 F B 1 4 4 s _ P 1 1 7 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 1 1 2 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C A 1 -B F 6 8 1 C A 1 -B E 2 C 1 C A 1 -B C F 0 1 C A 1 -B B B 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 1 4 4 s _ 7 _ 4 _ 2 0 1 7 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.