Fréttablaðið - 08.04.2017, Síða 140
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Lífið í
vikunni
02.04.17-
08.04.17
Leikararnir Sigrún Huld Skúladóttir og Kjartan Darri Kristjánsson hafa bæði þurft að leita sér hjálpar við kvíða. „Ég hef verið með óeðlilegan og
stundum sjúklegan kvíða frá því ég
var lítil stelpa.
Ég veit ekki hversu ung ég var
þegar þetta hófst, en ég man ekki eftir
mér öðruvísi. Dómarinn, en það kalla
ég niðurrifsröddina í hausnum á mér,
hefur alltaf fylgt mér fast á hæla.
Þegar ég var lítil þá hélt ég að hnútur-
inn í maganum væri eðlilegt ástand.
Þvalir lófar og lamandi hræðsla við
að vera ekki nógu góður. Ég hélt að
öllum liði svona, alltaf, eins og mér.
Það var ekki fyrr en á fullorðinsárum
sem ég lærði að skilja hvað var raun-
verulega að gerast. Ég var 26 ára þegar
ég leitaði mér fyrst hjálpar og þá tók
við bataferlið sem hefur verið mitt
ferðalag til þessa,“ segir Sigrún og
Kjartan tekur í sama streng.
„Á fyrsta árinu mínu í menntaskóla
drukknaði ég næstum því í sjálfhverf-
um hugsunum. Ég nota hugtakið að
drukkna því tilfinningin var dálítið
þannig, þegar hún náði hámarki
einn daginn þá leið mér eins og ég
gæti ekki andað. Eftir að ég byrjaði
að vinna í mínum málum gerði ég
mér grein fyrir því að maður hefur
aldrei fullkomna stjórn á hugsunum
sínum, en maður getur gert ýmislegt
til að hafa áhrif á þær,“ segir hann.
Sigrún og Kjartan hafa fræðst
mikið um kvíða við undirbúning
verksins. „Stærsti lærdómurinn var
að hitta allt fólkið sem vinnur mikið
með kvíða, og hvað það fer ólíkar
leiðir til að reyna að vinna bug á
honum,“ segir Kjartan.
„Já, við upplifum hann misjafnt
þar sem við erum öll svo dásamlega
misjöfn. Hver og einn verður að finna
sér og jafnvel skapa sér sína eigin leið.
Það var ómetanlegt að fá að kynnast
starfsemi Hugarafls, þar sem við töl-
uðum við sérfræðinga og fólk sem er
að vinna í sinni kvíðaröskun. Hugar-
afl er afar mikilvæg miðstöð sem fólk
getur leitað til,“ bætir Sigrún við.
Kjartan og Sigrún eru sammála um
að fólk sé almennt orðið óhræddara
við að tala opinskátt um kvíða. „Ég
finn að meðvitund og skilningur er
að aukast og fleiri eru að koma út úr
„kvíðaskápnum“ sínum og leita sér
hjálpar. Það er frábær þróun,“ segir
Sigrún.
„Já, ég man t.d. ekki eftir því að það
hafi verið mikið talað um kvíða þegar
ég var í grunn- eða menntaskóla en
mér skilst að það sé verið að bæta úr
þessu í dag. Það er alveg bráðnauð-
synlegt að fræða fólk og þá sérstak-
lega börn um þetta málefni,“ útskýrir
Kjartan.
„Já, ekki spurning, annars værum
örugglega ekki að þessu,“ segir
Kjartan aðspurður hvort hann telji
að Fyrirlestur um eitthvað fallegt
muni hjálpa einhverjum sem glíma
við kvíða. „Ef verkið kveikir á ein-
hvers konar samtali milli fólks eða
jafnvel innra með fólki þá finnst mér
takmarkinu náð.“
Að lokum vill Kjartan minna þá
sem þjást af óeðlilegum kvíða á að
það er von um bata. „Það er erfitt að
ímynda sér það þegar maður er hel-
tekinn af kvíða. Það fer allt vel, og
með þrautseigju og þolinmæði geta
hlutirnir orðið betri en þeir voru
nokkru sinni fyrr.“
Sigrún tekur undir þau orð. „Á
sunnudaginn er ég t.d. að stíga á
leiksvið í fyrsta skiptið frá því ég
útskrifaðist sem leikari. Ég á 10 ára
útskriftarafmæli í vor. Ég hef þurft
að yfirvinna ansi margt, komast yfir
eigin hindranir, til að vera á þeim
góða stað sem ég er á í dag. Ég þekki
það að vera í djúpri holu og sjá ekki
ljósglætu. En það er alltaf von og
ljósglætan er þarna einhvers staðar,
stundum þarf maður bara aðstoð við
að finna hana.“
gudnyhronn@frettabladid.is
Hafa bæði upplifað
lamandi kvíða
Fyrirlestur um eitthvað fallegt er nýtt leikrit um kvíða. Í verkinu
túlka fimm leikarar kvíða og Sigrún Huld og Kjartan Darri eru með-
al þeirra en þau hafa bæði upplifað óeðlilegan kvíða í gegnum tíðina.
frægir í Armeníu
Hljómsveitin
Agent Fresco
spilaði í
Armen-
íu nú á
dögunum.
Talið er
að hún
sé fyrsta
íslenska bandið
sem heldur tónleika
þar. „Jú, það höldum við, það hefur
allavega enginn komið fram og
leiðrétt þetta,“ sagði trommarinn
Hrafnkell Örn Guðjónsson, eða
Keli.
PrjónAr Að meðALtALi
í Sex tímA á DAg
Prjónahönnuðurinn Stephen West
hefur mikla ástríðu fyrir prjóna-
mennsku og hefur stundað hana
frá því að hann var unglingur. Hann
prjónar í marga klukkutíma á dag,
hvar og hvenær sem er, og ferðast
um heiminn til að kenna réttu
handtökin.
reKinn úr
LeiKHóPnum x
Ari Jósepsson var rekinn úr Leik-
hópnum X og sagði frá brottrekstr-
inum í viðtali við Lífið. Hann segir
málið hafa snúist um einelti og þá
staðreynd að hann var ekki tilbúinn
að láta valta yfir sig. Hann ætlar að
gefa leiklistinni smá pásu.
rennt yfir feriL
PoSt mALone
Lífið stiklaði á stóru í gegnum
feril Post Malone sem mun spila
í Hörpu í sumar. Ferill hans hefur
ekki verið ýkja langur en þó hefur
hann verið
ákaflega
storma-
samur.
Kjartan og Sigrún leika í verkinu Fyrirlestur um eitthvað fallegt eftir leikhóp-
inn SmartíLab sem er sýnt í Tjarnarbíói. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ÞegAr ég vAr LítiL
Þá HéLt ég Að
Hnúturinn í mAgAnum væri
eðLiLegt áStAnD.
Sigrún Huld Skúladóttir
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
Á T T U V O N
Á G E S T U M ?
Ítalskur svefnsófi með góðri
dýnu. Fæst dökkgrár, rauður,
ljósbrúnn og röndóttur.
Dýnust.: 140x200 cm.
Q UA D R O
PA L E R M O
C L I O
Ítalskur svefnsófi frá
Natuzzi Edition með góðri
dýnu. Hvítt eða rautt
vandað leður. Dýnust.:
140x200 cm.
FULLT VERÐ: 289.900 KR.
TILBOÐSVERÐ
217.425 K R.
FULLT VERÐ: 389.900 KR.
TILBOÐSVERÐ
292.425 K R.
Svefnsófi með góðri dýnu.
Rautt og dökkgrátt áklæði.
Dýnust.: 140x200 cm.
TILBOÐSVERÐ
277.425 K R. FULLT VERÐ: 369.900 KR.
2 5 % A F S L Á T T U R
A F Ö L L U M S V E F N S Ó F U M
8 . a p r í l 2 0 1 7 l a U G a r D a G U r76 l í f i ð ∙ f r É T T a B l a ð i ð
0
8
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:4
8
F
B
1
4
4
s
_
P
1
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
1
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
A
1
-9
C
D
8
1
C
A
1
-9
B
9
C
1
C
A
1
-9
A
6
0
1
C
A
1
-9
9
2
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
4
4
s
_
7
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K