Fréttablaðið - 08.04.2017, Page 144
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir
Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
mest lesna dagblað landsins.
ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF
FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ.
Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu.
Ódælir og athafnasamir ungir menn eins og Grettir Ásmundsson hafa alltaf
verið hluti af veruleika þjóðarinn-
ar. Testósterón gelgjunnar fyllti
þá ævintýraþrá og löngun eftir því
að gera sig gildandi. Þeir voru eins
og ótamdir graðfolar sem stöðugt
koma á óvart með uppátækjum
sínum. Þetta hefur nú gjörbreyst.
Framleiðendur tölvuleikja
hafa nefnilega hannað leiki með
þennan markhóp í huga. Iðkand-
inn fer af einu borði á annað í leit
sinni að nýjum ævintýrum. Leikur-
inn er eins og vísindaskáldsaga
þar sem alls konar karakterar og
furðuverur skjóta upp kollinum.
Margir leikir einkennast af ofbeldi
og grófu kynlífi. Leikandinn tekur
áhættu, drepur, nauðgar og stelur
og kemur sér undan á hættulegum
flótta. Tölvuleikurinn verður eins
og raðfullnæging þar sem öllum
þörfum og löngunum fyrir spennu,
trylling og ævintýri er sinnt. Af
einhverjum ástæðum hafa ungar
konur ekki sama áhuga á tölvu-
leikjum og ungir karlmenn svo að
sennilega er um testósterónáhrif
að ræða.
Í starfi mínu hef ég haft afskipti
af fjölmörgum strákum sem voru
algjörlega týndir í þessari furðu-
veröld. Ungir menn sem áður
vildu kanna heiminn og leita nýrra
ævintýra, sitja nú bergnumdir
fyrir framan tölvuskjáinn. Þetta
hefur haft margs konar sam-
félagsleg áhrif. Ungar stúlkur
blómstra sem aldrei fyrr í skóla
og starfi enda þurfa þær ekki að
óttast samkeppni frá tölvuleikja-
fíklunum. Margir strákar fara ekki
lengur úr húsi nema til að leika sér
í tölvuleiknum Pokemon-Go. Nú
þarf ekki lengur að hafa áhyggjur
af óróanum í blóði þessara ungu
manna. Ótemjurnar sitja stilltar
og prúðar í tölvuleik eins og geltir
góðhestar.
Tölvuleikir
Óttars
Guðmundssonar
Bakþankar
Margt smátt ...
Páskablað Hjálparstarfs
kirkjunnar fylgir
Fréttablaðinu í dag!
OPIÐ ALLAN SÓLARHRINGINN
Í ENGIHJALLA,
VESTURBERGI
OG ARNARBAKKA
0
8
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:4
8
F
B
1
4
4
s
_
P
1
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
1
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
A
1
-7
5
5
8
1
C
A
1
-7
4
1
C
1
C
A
1
-7
2
E
0
1
C
A
1
-7
1
A
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
4
4
s
_
7
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K