Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1965, Page 7

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1965, Page 7
TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 95 6/6 1885, skulle have afsluttet sin ud- dannelse i juni 1904.“ 1 bréfi frá forstöðukonu Royal Infirm- ary í Edinborg, dags. 14. sept. 1965 segir um námstíma Þóru J. Einarsson, „period of training 2nd Oct. 1902 to lst Oct. 1903“, ennfremur er þar greint frá umsókn henn- ar til skólans og meðmælum að heiman. námstíma og árangri og störfum hennar i Skotlandi næstu árin og framhaldsnámi. Er vitnisburðurinn um hana mjög lofsam- legur. Samkvæmt þessum heimildum hef- ur hún lokið námi 1. okt. 1903, en Astrid Halldórsson 1. jan. sama ár. Astrid Halldórsson var móðursystir mín, Ástríður Torfadóttir, en ef þessar upplýsingar hefðu ekki komizt í mínar hendur, er óvíst hvort aðrir hefðu áttað sig á því hver Astrid Halldórsson væri. Hún var fædd 11. janúar 1867, dó 23. jan- úar 1949, á Flateyri þar sem hún var fædd. Um tveggja ára skeið var hún í Kaupmannahöfn og stundaði þar nám í ýmsum kvenlegum fræðum. Eftir heim- komuna var hún um stund hjá foreldrum sínum á Flateyri, en fór svo til Akur- eyrar og var hjúkrunarkona sjúkrahúss- ins á Akureyri (árið 1899) undir stjórn dr. Guðmundar Hannessonar. Veitti svo forstöðu sjúkrahúsinu á ísafirði um tveggja ára skeið, en 1902 fer hún til Kaupmannahafnar til framhaldsnáms. Næst gerist hún svo aðstoðarhjúkrunar- kona franska spítalans á Fáskrúðsfirði. Árið 1907 fluttist hún að Hólum í Reyðar- firði til Guðrúnar systur sinnar og var með henni alla tíð upp frá því, en þegar Guðrún missti mann sinn, séra Jóhann Lúter Sveinbjörnsson, fluttust þær vestur til önundarfjarðar og settust að í nábýli við bræður sína að Sólbakka. Guðrún tók að sér símstjórn á Flateyri, en Ástríður var hennar styrka hönd við barnauppeldið og heimilisstörfin. Þóra J. Einarsson. 1 bréfi, sem Ástríður skrifar frá Kaup- mannahöfn Guðrúnu, systur sinni, árið 1902, segist hún gera ráð fyrir að komast inn á Kommunespítalann í Kaupmanna- höfn til að læra hjúkrun, með aðstoð Dr. Bayers?, þess sem hún segir að við eig- um holdsveikraspítalann í Laugarnesi að þakka, og getur þess að hann sé sjald- gæfur íslandsvinur. Ennfremur segir hún að venjulegt nám þar taki 21/2 ár, en einnig sé hægt að fá 6 mánaða námsskeið, gegn því að greiða 30 kr. á mánuði, og hafi henni þá ekki litist á blikuna. En forstjóri stofnunarinnar sagðist mundi gera und- antekningu með hana, vegna þess að hún væri íslendingur! skyldi hún sleppa við þessa greiðslukvöð, og fá einnig ókeypis fæði, en hins vegar yrði hún að leggja sér til föt og búa út í bæ. Læknisvottorð bar henni að leggja fram og fékk það hjá Dr. Bayers, sem skrifaði að hún mundi hafa nægilega krafta og hæfileika til hjúkr- unarstarfa, þótt aldurinn væri 7 árum of hár og vöxturinn of „spinkel". Guðrún Frandsen var íslenzk í móður-

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.