Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1965, Síða 18

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1965, Síða 18
106 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS deildarhjúkrunarkona og svo aðstoðarfólk. Einnig var rætt um að gera kröfur um fleiri stöður yfirhjúkrunarkvenna og fleiri aðstoðarforstöðukonustöður til þess að létta þeim störfin. Umræður hafa orðið um það erlendis að forstöðukonur væru óþarfar og hægt væri að fá hagfræðinga, eða aðra sem kynnu að stjórna í þeirra stað. En hópur- inn var sammála um það, að við þyrftum að vera á verði gegn því að láta taka þess- ar stöður af okkur, það verður að vera hjúkrunarkona, það er hún sem ber ábyrgð á því, á hvaða stigi hjúkrunin stendur á hennar sjúkrahúsi. Er launamismunur réttur milli hinna ýmsu starfshópa? Komist var að þeirri niðurstöðu, að deildarhjúkrunarkonur ættu að vera mun hærri en aðstoðarhjúkr- unarkonur, vegna ábyrgðarinnar og svo fengju þær ekki kvöld og næturvaktar- álag. Einnig að forstöðukonur ættu að hafa háan launatopp, svo einhver fáist til þess að sækja um þessar stöður. Það er svo margt sem á þeim skellur. 1 þriðja lagi eiga launin að vera mismunandi í sama starfi þótt menntun sé misjöfn? Var þar aðallega rætt um deildarhjúkrunarkonur. Það er starfið en ekki menntunin sem um er að ræða, það kom fram að ekkert iand getur fullnægt eftirspurninni um sérnám deildarhjúkrunarkvenna. Á meðan ekki er hægt að fullnægja eftirspurninni er ekki hægt að gera kröfur til sérnáms og því á ekki að vera launamismunur. Annar hópurinn ræddi styttingu vinnu- tímans, hvort nú væri hinn rétti tími til þess að stytta vinnuvikuna, þegar við bú- um við svo mikinn hjúkrunarkvennaskort og óhagstæð launakjör. Þetta mál er til umræðu á öllum Norð- urlöndum. Mörg vandamál eru samfara því að skipuleggja vinnuna á ný. Takmark- ið á að vera að samræma vinnuviku hjúkr- unarkvenna og annarra starfshópa innan sjúkrahúsanna öðrum starfshópum í þjóð- félaginu. Styttinguna á að framkvæma með styttingu vinnutímans en ekki með peningagreiðslum. Eftirfarandi atriða þarf að taka tillit til í sambandi við styttingu vinnuvikunn- ar: Hjúkrunarkvennaskortinn, menntun hjúkrunarkvenna og sérmenntun þeirra, menntun aðstoðarfólks og uppfræðsla starfsfólks sjúkrahúsanna. Einnig var rætt um skipulagningu á vinnu sjúkra- húss og deilda, t. d. hópvinnu, skýrslu- gjafir og þrjár vaktir á sólarhring. Einnig var talað um hjálpargögn sem létta mætti vinnuna, t. d. áhöld sem aðeins eru notuð einu sinni. Gefa skal sem mest frí á sunnu- dögum og hátíðisdögum. Skipulagning þarf að byggjast á tilraunum og við skipu- lagningu vinnunnar megum við ekki gleyma hvað er sjúklingunum fyrir beztu. Þriðja umræðuefnið var um uppbætur á óhagstæðan vinnutíma, eiga þær að greið- ast með aukafríi, álagi eða hærri launa- f lokkum ? Hópurinn var á eitt sáttur með það að þær uppbætur skyldu greiðast í fríi eða peningum, en ekki með hækkun í launa- flokkum. Fjórði hópurinn hafði eftirlaunaaldur- inn til umræðu: Á eftirlaunaaldur hjúkr- unarkvenna að vera lægri en annarra starfshópa ? Á eftirlaunaaldur að vera mis- munandi innan hinna ýmsu starfsgreina hjúkrunarinnar. Er eðlilegt, að samband sé milli lengdar vinnuviku og eftirlauna- aldurs ? Komist var að þeirri niðurstöðu, að hjúkrunarkonur ættu að hafa lengri eftir- launaaldur en almennt væri, vegna þess að vinnan væri svo líkamlega erfið. Allar greinar innan stéttarinnar ættu að hafa sömu aldurstakmörk. Þó var gerð undan- tekning með hærri aldurstakmörkun hjá

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.