Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1965, Side 30
TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS
118
þar af leiðandi yrði kaupið minna. Sumar gengu
jafnvel svo langt að vilja ekkert kaup.
Einnig var kennslan tekin fyrir og vildu flest-
ar að vinnutíminn yrði skiptur í 6 klst., en 2
klst. færu í lestur. Þær töldu nauðsynlegt að
meiri kennsla yrði á deildum, en í Danmörku er
tilfinnanlegur skortur á kennurum, engu síður
en hér.
Einn kennsludag í viku vildu þær fá, þar sem
fluttir yrðu fyrirlestrar um sjúklingana á deild-
unum, þ. e. sér fyrir hverja deild.
Þær töldu alls ekki næga kennslu í sálarfræði
og vildu að hún yrði aukin, svo og í félags- og
barnasjúkdómafræði.
Síðast var rætt um vinnutilhögun og þarfir
sjúklings. Töldu þær æskilegt, að nema, sem
byrjaði á nýrri deild fylgdi ákveðinni hjúkrun-
arkonu í vikutíma, þannig að hann kynntist
deildinni.
Sumum fannst heppilegt að skipta sjúkling-
unum á deild niður í smá hópa og að hjúkrunar-
kona, nemi og hjálparstúlka hefðu um einn hóp
að sjá, en neminn færi síðan á stofugang á allri
kynnast sjúklingnum betur og verða honum að
deildinni. Töldu þær að á þann hátt myndu þær
meira gagni.
Sunnudagur rann upp, og er morgunverður
hafði verið snæddur hófust áframhaldandi um-
ræður og aðdáunarvert fannst okkur, hversu
duglegir nemarnir voru að láta skoðanir sínar
í ljósi.
Fyrirlestrar voru fluttir, m. a. um vinnumögu-
leika erlendis og var það svipað og hér.
Eftir hádegi fiutti ritari Hjúkrunarfélagsins
danska, frú Anna Marie Balle, erindi um félagið
og störf þess. Samvinna félagsins við nemana er
mikil og eiga nemar sæti í stjórn þess.
Síðan var mótinu slitið og okkur skipt í hópa
og sýnt .sjúkrahúsið. Er það geysistórt og full-
komið í alla staði. Hópurinn tók að tvístrast og
hélt hver heim til sín.
Um kvöldið vorum við svo heppnar að fá að
sjá geðveikrahælið í Glostrup, en það liggur
skammt frá sjúkrahúsinu.
Þar er mjög vistlegt, allt í einnar hæðar smá-
húsum og fallegir garðar í kring.
Á mánudag hafði verið ráðstafað ferð fyrir
okkur til hjúkrunarskólans í Næstved á Suður-
Jótlandi, en hann er með yngstu skólum Dan-
merkur. Var okkur tekið þar forkunnar vel og
vorum strax spurðar hve lengi við vildum vera.
Því miður höfðum við ákveðið að fara til baka
um kvöldið. Hafði dagurinn verið vel skipulagð-
ur, svo að engin stund færi til spillis. Byrjuðu
tveir kennarar á því að sýna okkur skólann hátt
og lágt og er hann í einu orði sagt yndislegur.
Síðan tóku við okkur tveir nemar, sem sýndu
okkur heimavistina og buðu okkur síðan í kaffi
inn á herbergi, en þær hafa eins manns herbergi
þar eins og hér. Eftir hádegi sátum við í einni
kennslustund hjá skólastjóra. Var hún að fara
yfir námsefnið hjá nýbyrjuðu námskeiði. í nám-
skeiðum byrjaði dagurinn alltaf með morgun-
söng og tvisvar í viku var leikfimi, en þær hafa
leikfimisal í kjallara skólans.
Seinna um daginn var okkur sýnt sjúkrahúsið,
sem er þar skammt frá.
Um kvöldið héldum við til Kaupmannahafnar
en hefðum gjarnan viljað vera miklu lengur.
Næstu daga bjuggum við í húsi hjúkrunar-
félagsins danska í Kaupmannahöfn, en ekki leið
á löngu þar til halda skyldi heim.
Heimferðardaginn var okkur boðið í hádegis-
verð með formanni og ritara hjúkrunarfélagsins
og skýrðu þær okkur frá störfum þess. — Heim
var flogið föstudagsmorgun.
Er við lítum til baka erum við mjög ánægðar
með að hafa fengið tækifæri til að fara þessa
ferð og viljum því þakka þann styrk sem við
fengum frá Hjúkrunarfélagi íslands og úr sjóði
Hjúkrunarnemafél. fsl. Einnig viljum við geta
þess að hjúkrunarfélagið danska bauð okkur allt
uppihald í Danmörku að kostnaðarlausu.
Valgerður Valgarðsdóttir,
Inga Teitsdóttir.
IVÍDnningarsjóðuB'
Guðrúnar Gísladóttur Björns, hjúkrunarkonu.
1. janúar l'UGU:
Peningar í bankabók f. f. ári
í bók no. 6420 ........... 30.262,86
-------- 11027 ............ 5.365,05
Vextir á árinu ............ 2.993,02
Seld minningarspjöld ...... 1.450,00
28. Maí:
Styrkur úr sjóðnum........ 2.500,00
Inneign í banka .......... 37.570,93
Kr. 40.070,93 40.070,93
Halldóra Andrésdóttir.