Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.06.1978, Side 32
2.-3. október fór fram allsherjaratkvæða-
greiðsla um tillögu sáttanefndar og var
liún felld nær einróma.
Viðræður hófust á ný en ekki náðist
samkomulag og 11. október hófst verkfall
lijá öllum ríkisstarfsmönnum og flestum
bæjastarfsmönnum.
Urskurður kjaradeilunefndar gagnvart
hjúkrunarfræðingum var á þá leið að
vegna mikils skorts á hjúkrunarfræðingunt
væri allt að neyðarástand á sjúkrastofnun-
um og því ekki mögulegt að þeir fengju
að taka þátt í verkfallinu, að undanteknum
kennurum og skólahjúkrunarfræðingum.
Verkfallið stóð í hálfan mánuð og fóru
engar viðræður fram við ríkisstarfsmenn
fyrri vikuna, en þá var samið við Starfs-
mannafélag Reykjavíkurborgar og mörg
önnur bæjastarfsmannafélög.
25. október var aðalkjarasamningur BS-
RB og ríkisins undirritaður með fyrirvara
og samþykktur í allsherjaratkvæðagreiðslu
9. og 10. nóvember eftir að liafa verið
kynntur um allt land. Gildir hann frá 1.
júlí 1977.
Aðalkjarasamningur HFÍ og Reykjavík-
urborgar var undirritaður 26. október og
samdægurs aðalkjarasamningur HFÍ og
Akureyrar, Samkvæmt samningnum hækk-
uð'u launin frá 13-21%, og var launastig-
inn „réttur af“, þ. e. hækkaði mest um
miðjuna.
Ekki fékkst fram verkfallsréttur um end-
urskoðun á samningstímabilinu, en heim-
ild til að krefjast endurskoðunar verði
röskun á vísitöluákvæðum.
Ekki náðist samkomulag um sérkjara-
samninga milli HFI og fjármálaráðherra,
né heldur HFI og Reykjavíkurborgar, enda
bar mikið á milli. Kröfugerð HFÍ hljóðaði
upp á 9 launaflokka hækkun og breytta
uppsetningu í röðun launaflokka, en tilboð
ríkisins upp á eins launaflokks hækkun.
Sérkjarasamningar fóru í kjaranefnd um
áramótin, og birtist úrskurðurinn 24. febr.
1978.
Uppsagnir hjúkrunarfræðinga
1. október 1976 sögðu 80% hjúkrunar-
fræðinga á Borgarspítalanum og 90% á
Vífilsstöðum upp störfum, og 15. október
95% á Landakoti. Orsök þessara uppsagna
var óánægja með kjör, en allt haustið var
mikil ólga meðal hjúkrunarfræðinga vegna
úrskurðar kjaranefndar. Borgarráð fram-
lengdi uppsagnarfrestinn um þrjá mánuði
á Borgarspítalanum og fjármálaráðherra á
Vífilsstöðum. Lögfræðingur Landakotsspít-
ala fór þess á leit við hjúkrunarfræðingana
þar að þeir ynnu þrjá mánuði til viðbótar.
Uppsagnirnar áttu að taka gildi 1. og 15.
aptíl 1977. Fundir voru með uppsagnarað-
ilum á sjúkrahúsunum, þar sem skýrð var
afstaða stjórnar HFÍ, þ. e. að hún myndi
ekki standa á hak við aðgerðir uppsagnar-
hópanna, og myndi á engan hátt brjóta ný-
fengin lög um kjarasamninga.
Að beiðni stjórnar HFÍ ákváðu upp-
sagnaraðilar að fresta aðgerðum fram yfir
gildistöku sérkjarasamninga. Borgarstjóri
og fjármálaráðherra sendu hverjum hjúkr-
unarfræðingi, sem sagt hafði upp störfum,
bréf þar sem lofað var að sérstakt tillit
yrði tekið til hjúkrunarfræðinga í næstu
samningum. Eins og fram hefur komið
drógust samningar, hæði vegna samkomu-
lags um frestun og vegna ákvæða í lögum
um kjarasamninga. Samningar náðust ekki
um sérkröfur og úrskurður kjaranefndar
kom 24. febrúar 1978.
Hjúkrunarfræðingar úr HÍ
Á síðastliðnu vori fóru fram viðræður
milli bjúkrunarfræðinga brautskráðra frá
Háskóla Islands og stjórnar HFI. Rætt var
um aðild þeirra að HFI á 3 fundum.
Niðurstöðurnar urðu þær að hjúkrunar-
fræðingarnir frá HI töldu sig ekki geta
gengið í HFI að svo stöddu þar sem breytt-
ar kröfur HFI um námsstig í kjarasamn-
ingum kæmi í veg fyrir að nám þeirra yrði
metið til launa á viðunandi hátt.
SSN
Fulltrúafundur SSN 1977 var haldinn í
Finnlandi dagana 13.-16. september. Að-
alviðfangsefni fundarins var: Vinnulýð-
ræði, sem skapað gæti starfsliði heilbrigð-
is- og hjúkrunarþjónustu betri vinnuskil-
yrði. Einnig var fjallað um markmið og
uppbyggingu hjúkrunarfélaga.
SSN liefur nú 113 þúsund starfandi
hjúkrunarfræðinga innan sinna vébanda.
Tii fundarins voru kosnir 37 fulltrúar, en
alls sátu fundinn 74 þátttakendur frá öll-
um aðildarfélögunum. Af hálfu HFI sátu
fundinn: Svanlaug Árnadóttir, Þuríður
Backman, María Pétursdóttir, Ástríður
Tynes, Guðrún Sveinsdóttir og Ingibjörg
Árnadóttir.
Á fundinum kom fram að á komandi
hausti væri fyrirhugað að halda ráðstefnu
varðandi rannsóknir á sviði hjúkrunar, og
verður hún haldin í nóvember 1978. Farið
hefur verið fram á styrkveitingu hjá Norð-
urlandaráði, en svar hefur ekki borist enn.
Á fundinum var Svanlaug Árnadóttir
kosin meðstjórnandi í stjórn SSN í stað
Maríu Pétursdóttur, sem er nú varafull-
trúi í stjórn SSN. Fulltrúafundur SSN
1978 verður baldinn í Stokkhólmi dagana
12.-15. september og á að taka þar til um-
fjöllunar „EDB’s indflydelse pá sygeplej-
erskers daglige arbejdssituation“ svo og
„Praktisk anvendelse av ILO instrumentet
fra 1977 med spesiell henblikk pá nordisk
samordning".
Fulltrúar HFÍ hafa setið 3 stjórnarfundi
í SSN á sl. ári.
ICN
Fulltrúaþing ICN var haldið í Tokio 30.
maí til 3. júní 1977. Enginn fulltrúi frá
HFÍ sótti þingið að þessu sinni.
VerkfallssjóÖur
Þar sem HFI fékk verkfallsrétt með
BSRB 1. júlí 1977 ræddi stjórn félagsins
um það á fundi hversu nauðsynlegt væri
að hafa verkfallssjóð vegna komandi kjara-
deilu. Stjórnin samþykkti einróma að fara
þess á leit við fulltrúana að þeir gæfu
skriflega heimild til stofnunar verkfalls-
sjóðs til bráðabirgða, sem síðan yrði lög-
lega gengið frá á fulltrúafundi vorið 1978.
I sjóðinn var lagt kr. 5.000 - fimm þús-
und — sem innheiint var með félagsgjöld-
um í september 1977, af hjúkrunarfræð-
ingum í starfi.
Við höfum þurft á sjóðnum að halda
svo það sýnir sig að full ástæða var fyrir
stofnun verkfallssjóðs. Greiðslur úr hon-
um vegna verkfalls á sl. ári voru krónur
426.086 til 11 hjúkrunarfræðinga. t sjóðn-
um voru um áramót kr. 2.269.876.
Lífeyrissjóöur hjúkunarkvenna
Að venju hélt stjórn sjóðsins 4 fundi á
árinu. Veitt voru íhúðalán að upphæð 74
millj. 068 þúsund til 65 aðila.
Hámarkslán eru 1,2 millj., og er fjárhag-
ur sjóðsins það þröngur að ekki reyndist
kleyft að hækka lánin á árinu.
Stjórn Lífeyrissjóðsins skipa: Jón Thors
deildarstjóri í dómsmálaráðuneytinu, for-
maður, Svanlaug Árnadóttir formaður HFÍ
og Ólafur Olafsson landlæknir.
BSRB
Samskipti HFÍ og BSRB liafa verið
mjög mikil sl. ár. Haldið var félagsmála-
námskeið í febrúar sem var vel sótt og
26
HJÚKRUN