Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1979, Side 6

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1979, Side 6
Afmœlisins minnst Ráðstefna — Síðdegisboð Svanlaug Árnadóllir formadur HFÍ Ráðstefna í TILEFNI 60 ára afmælis Hjúkrunarfélags íslands gekkst félagiö fyrir ráðstefnu um hjúkrunarmál sem fram fór að Hótel Loftleiðum 2.-3. nóvember 1979. Fyrri daginn var aðalumræðuefnið „hjúkrunarferlið", fyrirlesarar voru hjúkrunarfræðingarnir Þóra Arn- finnsdóttir, Guðrún Ragnars, Þóra KarlsdóttirogÓlöf Hafliðadóttir. Síðari daginn var tjallað um menntunarmál stéttarinn- ar. Fyrirlesarar voru: Svanlaug Árnadóttir formaður HFÍ, Sigurhelga Pálsdóttir, hjúkrunarkennari, Sigrún Ásta Pétursdóttir hjúkrunarkennari. María Finnsdóttir fræðslustjóri HFÍ, opnaði ráðstefn- una og Svanlaug Árnadóttir formaður félagsins flutti ávarp og sagði þá m.a.: „Stjórn félagsins ákvað, að minnast þessara merku tímamóta með því að halda tveggja daga ráðstefnu, er tæki til umfjöllunar málefni er hjúkrunarstéttina varðar miklu. Það er vissulega ánægjuefni að félagarnir hafa sýnt svo mikinn áhuga með góðri þátttöku. Fyrir hönd stjórn- arinnar er mér því sérlega ljúft að bjóða ykkur öll innilega velkomin. Fyrri daginn er hjúkrunarferlið á dagskrá, en um það hafa hjúkrunarfræðingar fjallað í ræðu og riti, hlotið fræðslu um það í skólum og á námskeiðum — en einnig öðlast reynslu af því í eigin starfi og það vegur e.t.v. hvað þyngst á metaskálunum að þar takist vel til. Hjúkrunarfræðingar mun hér segja frá reynslu sinni af að koma þessum nýju starfsháttum á. Að því loknu verður fjallað um hjúkrunarferlið í umræðuhópum, þar sem tækifæri gefst til að skiptast á skoðunum og koma fram með efasemdir, ef einhverjar eru, spurn- ingar og ábendingar og þannig öðlast betri skilning. Síðari daginn verða menntunarmálin rædd. Formaður rakti síðan þróun hjúkrunarmenntunar hérlendis frá upphafi og sagði m.a.: „Hin öra þróun á sviði heilbrigðisvísinda, tæknivís- inda, samfara vaxandi kröfum til heilbrigðisþjónustu, hafa orðið til þess að hjúkrunarmenntunin er í stöð- ugri endurskoðun. Það markverðasta sem gerst hefur á þessu tímabili er án efa tilurð Námsbrautar í hjúkrunarfræði við Há- skóla íslands." í nýútkominni hjúkrunarsögu eftir Inger Götzsche, sem er kennslubók í dönskum hjúkrunarskólum segir í kaflanum um ísland að frá árinu 1973 sé ísland skrefi framar hinum Norðurlandaþjóðunum, en þá opnaði Háskóli íslands dyr sínar fyrir hjúkrunarmenntun. I lok ræðu sinnar sagði Svanlaug Árnadóttir. „Ég hef hér stuttlega drepið á það er varðar þau málefni sem rædd verða á þessari ráðstefnu. Þótt ekki sé hér staður né stund til að rekja 60 ára sögu félagsins, þá get ég ekki látið hjá líða að nefna nafn heiðurskonu sem ekki getur verið með okkur þessa daga, en það er Sigríður Eiríksdóttir. Hún var formaður félagsins í 36 ár frá 1924-1960. Sigríður Eiríksdóttir er heiðursfélagi í Hjúkrunar- félagi íslands, heiðursfélagi í SSN — Samvinnu hjúkr- unarfræðinga á Norðurlöndum, í danska, norska og sænska hjúkrunarfélaginu og bæði sænsk-finnska og finnska félaginu, en þessi tvö félög hafa nú verið sam- einuð. Enn njótum við íslenskir hjúkrunarfræðingar þess samstarfs sem Sigríður lagði grundvöllinn að meðal frændþjóðanna. í virðingar og þakklætisskyni sendum við henni blóm og vinarkveðju frá þessari ráðstefnu. 2 HJÚKRUN

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.