Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1979, Page 15

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1979, Page 15
Slökunarœfingar verðandi mæðra. Sú litla á myndinni var með móður sinni og tók þátt i öllum æfingum af miklum áhuga. Ljósm.: Ingibjörg Árnadóttir. 45 mínútur til fræðslu og umræðna, 20 mínútur til líkamsæfinga og 20 mínútur til slökunar eða alls 1 1/2 klst. og er það 25 mínútum lengri tími en ég byrjaði með fyrst í jan. 76. Reynum við að koma af stað um- ræðum á meðal þátttakenda eftir að við höfum fjallað um það efni, sem var á dagskrá og yfirleitt tekst það og gefst vel, þó eru hóparnir nokk- uð misjafnlega opinskáir. í 8. tímanum biðjum við þátttak- endur að koma með athugasemdir og uppástungur varðandi nám- skeiðin og þá auðvitað fyrst og fremst hvað þeim finnist megi betur fara. Höfum við fengið margar góð- ar ábendingar þar á meðal ákveðn- ar óskir um að verðandi foreldrar fái að fara í heimsókn á þá fæðing- arstofnun sem konan ætlar að fæða á. Síðastliðið haust (1978) fór ég þess á leit við forráðamenn Fæðingar- deildar Landspítalans og Fæðingar- heimilis Reykjavíkurborgar, að hinir verðandi foreldrar sem nám- skeiðin sækja, fengju að koma í heimsókn og var mjög vel tekið í þetta á báðum stöðunum. Síðan hafa þeir verðandi foreldrar, sem hafa viljað, farið í heimsókn á ann- an hvorn staðinn og fengið að sjá fæðingarstofu með öllu tilheyrandi ásamt sængurkvennagangi og það sem mikilvægara er, elskulegar móttökur og útskýringar af ljós- mæðrum á staðnum. Foreldrarnir eru mjög ánægðir með þessar kynnisferðir. Erindi Halldórs Hansen, um vöxt og þroska ungra barna, er í 9. tím- anum og þá koma yfirleitt báðir for- eldarnir. Könnun Könnun vargerð í janúar-júní 1976 og náði yfir 3 námskeið. Spurning- arnar voru um gagnsemi fræðslu, æfinga og slökunar í fæðingu og hvað helst vantaði. Einnig voru spurningar um hvort gerðar væru æfingar, farið í gönguferðir og hvernig brjóstagjöf gengi eftir fæð- inguna, hugsaðar sem hvatning. Svörunum var skilað 4-8 vikum eft- ir fæðinguna. Yfirleitt var lítið að græða á svörun- um. Þó komu fram óskir um meiri fræðslu fyrir feður. Óskir um meiri fræðslu sem hugsanlega væri hægt að bæta úr með bókakosti eða bæklingum. Óskir um að fá fjölritað erindi Halldórs Hansen um „Vöxt og þroska ungra barna.“ Til gamans er hér eftirmáli hjá einni ánægðri með námskeiðið: „Hjá mér var erfið fæðing sem tók langan tíma. Það var ennisfæðing. Hefði ég ekki haft þá fræðslu og þjálfun í slökun, sem ég fékk á slök- unarnámskeiðinu, að veganesti, er ég þess fullviss, að ég hefði ekki haldið rósemi minni allan tímann og fæðingin því orðið mun erfiðari. Ég hvet því til að haldið verði áfram með þessi námskeið og sem flestum gefin kostur á að stunda þau. Næst þegar ég á von á mér, mun ég aftur fara á svona námskeið sé þess nokkur kostur.“ Svipaða sögu hafa margar að segja eftir Iangdregnar fæðingar. Þótt aðrar telji sig ekki hafa getað notað slökunina í fæðingunni. Fer það áreiðanlega mikið eftir því hvað konan er viljasterk, hversu vel hún hefur æft slökun og hvort hún er minnt á að slaka á í fæðingunni. Mæting Mæting í tímana er dálítið mismun- andi á veturna. Virðist veður og færð hafa áhrif og er það eðlilegt, þar sem margar koma á Heilsu- verndarstöð Reykjavíkur við Bar- ónstíginn úr öðrum bæjarhlutum. En yfirleitt er mæting allgóð og hef- ur haldist nokkuð jöfn síðan 1976, og aðsókn aukist. Fimm námskeið voru haldin 1976, sex árið 1977ogsjöárið 1978. Flestar verðandi mæður á þessum námskeiðum eru í mæðraskoðun á Heilsuverndarstöð Reykjavíkur og margar þeirra eiga lögheimili utan Reykjavíkur. Til þess að þurfa ekki að mismuna konunum vegna búsetu, var ákveð- ið að allar skyldu greiða ákveðið gjald fyrir þátttöku í námskeiðun- um og er það nú (1979) kr. 5 þús. (eða sem svarar einni hárlagningu). Framhald á bls. 26 HJÚKRUN 1 1

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.