Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1979, Qupperneq 16

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1979, Qupperneq 16
Göngudeild Kvennadeildar Landspítalans örlítið yfirlit yfir starfsemi deildarinnar Göngudeild Kvennadeildar Land- spítalans er beint framhald af starfi Péturs H. J. Jakobssonar pró- fessors á Fæðingardeild Landspít- alans. Göngudeildin tók til starfa vorið 1974 og var fyrsta deildin sem var opnuð í nýbyggingunni. Starfsemin fer ört vaxandi. 1977 voru 13.795 heimsóknir á deildina, en 1978 voru 16.931 heimsóknir alls. Skoðunum 1978 má skipta þannig: Mæðraskoðun 10.869 Eftirskoðun 3.635 Sérfræðiskoðun 1.326 Barnaskoðun 629 Bráðatilfelli 472 Frá deildinni voru innlagðar um 100 konur. Daglega koma nú að meðaltali milli 70 og 90 konur og hefur fjöldin far- ið vel yfir 100 konur á einum degi. Um það bil 400 konur eru nú í mæðraskoðun á deildinni. Þrengsli eru þegar farin að segja til sín og segja má að deildin sé fullnýtt. Deildin er til húsa í kjallara nýbygg- ingar Kvennadeildarinnar, með inngang í suð-austurenda hússins. Komið er beint inn í biðstofu og afgreiðsluna, síðan er langur gang- ur með þrem skoðunarherbergjum, Rannveig Ólafsdóttir deilarstjóri rannsóknarstofu, kaffistofu starfs- fólks og innst þjálfunarherbergi. Reynt er að skipta starfseminni í tvennt þannig að gynækologiskar skoðanir séu fyrir hádegi og mæðraskoðun eftir hádegi. Starfslið: 1 deildarhjúkrunarkona með ljós- mæðramenntun, 1 ljósmóðir, 1 meinatæknir, 1 1/2 símastúlka. Þetta er hið fasta starfslið deildar- innar, en að auki eru:l ljósmóðir í ca. 1 mán. í einu róterandi frá Fæð- ingargangi, 1 2. árs ljósmæðranemi í 1 mán., 1 1. árs ljósmæðranemi í 1/2 mán., Læknar Kvennadeildarinnar koma alltaf alla daga til að skoða og hafa þeir hver sinn fasta morgun og/eða eftirmiðdag. Verksvið deildarinnar Fyrir hádegi, eftirskoðanir á þeim sjúklingum sem útskrifast af Kven- lækningadeild og eftir fæðingar. Eftir hádegi mæðraskoðun og er hún helst ætluð konum sem eitt- hvað er að, hafa slæma fæðingasögu eða eru sjúklingar sjálfar, svo sem með: Sykursýki, Háþrýsting, Hjartasjúkd., Nýrnasjúkd. .o.s.frv. Að sjálfsögðu er einnig um eftirlit á konum með eðlilega meðgöngu þar sem hér er um kennslustofnun að ræða. Mikið er um tilvísanir til sérfræð- inga deildarinnar frá hinum ýmsu deildum Ríkisspítalanna, t.d. Kleppi, Vífilsstöðum og öllum deildum Landsspítalans. Einnig er mikið um akút skoðanir t.d. vegna vaginal blæðinga, hótandi fósturláts og verkja sem bent geta til bólgu í eggjaleiðurum (salpingitis) eða utanlegsþykktar. Töluvert er einnig um það að konur sem búnar eru að fæða leita til deildarinnar vegna erfiðleika við brjóstagjöf. Barnalæknar Fæðingadeildarinnar hafa aðstöðu (mjög ófullnægjandi) þrjá eftirmiðdaga í viku til að fylgj- ast með börnum sem þurfa eftirlits eftir útskrift. Tvo morgna í viku fer fram skoðun og skýrslutaka þeirra sem sækja um fóstureyðingu. Hjúkrunarlið göngudeildarinnar sér einnig um að aðstoða lækna deildarinnar við legvatnspróf, sem framkvæmd eru á 2. hæð hússins í svokölluðu Sonar-herbergi. Eru það legvatnspróf sem gerð eru á 17.-18. viku meðgöngu til athugun- ar á litningum og A.F.P. (alfafoeto- protein), hjá konum 35 ára og eldri 12 HJUKRUN

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.