Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1979, Blaðsíða 18
Guðrún B. Sigurbjörnsdóttir,
Guðrún S. Zophaníasdóttir ljósmæðranemar
Eftirlit á meðgöngutíma
Tilgangur mæðraverndar er: að
viðhalda eðlilegri heilsu hjá móður,
svo hún geti fætt heilbrigt barn. Að
finna afbrigði og vandkvæði á frum-
stigi og leiðbeina móður um hlut-
verk og skyldur móðurinnar og
eyða hræðslu og ótta við meðgöngu
og fæðingu.
Þess skal getið, að í flestum tilfell-
um gengur meðganga eðlilega fyrir
sig, en í fáum tilfellum koma upp
sjúkdómar á meðgöngu.
Fengnar eru helstu upplýsingar um
móður. Skráð er félagssaga, fjöl-
skyidusaga og heilsufarssaga kon-
unnar.
Áherslu ber að leggja á eftirfarandi:
Langvarandi ófrjósemi
Getur bent á litningagalla hjá öðru
eða báðum foreldrum. Einnig getur
verið um sköpunargalla á kynfær-
um. Þar af leiðandi er aukin hætta á
utanlegsfóstri.
Fósturlát
Fósturlát snemma á meðgöngu,
stafa oftast af göllum á fóstri eða
fylgjuvef, en seint á meðgöngu af
sjúkdómum móður.
Utanlegsfóstur
Ef kona hefur fengið utanlegsfóstur
einu sinni er aukin hætta á því aftur.
Einnig er nauðsynlegt að greina
þetta snemma til að það valdi móð-
urinni sem minnstum skaða.
Mola hydatidosa
Aukin tíðni er á molu (blöðrufóst-
ur), ef þetta fyrirbrigði hefur einu
sinni komið upp. Best er að greina
þetta sem fyrst, til að það valdi
móðurinni sem minnstum skaða.
Sonar er öruggastur til greiningar
molu.
Áðurfœtt barn með litningagalla
Bendir á nauðsyn þess að greina
arfgerð fósturs í móðurkviði.
Áðurfœtt vanskapað barn
Getur bent á dulda sykursýki hjá
móður. Einnig getur ófullnægjandi
nýrnastarfsemi fósturs leitt af sér
oligohydramnion sem síðan leiðir
af sér vanskapað fóstur, vegna
skertrar hreyfigetu. Nauðsynlegt er
því að fylgjast vel með líðan fósturs,
legvatnsmagni, svo og líðan móður.
Áðurfœtt barn með vatnshöfuð
Hægt er að greina þetta ástand með
röntgenmynd og með sonar. Aukin
tíðni, ef þetta hefur einu sinni kom-
ið upp.
Áðurfætt barn með anecephalus
Aukin tíðni er á þessu afbrigði, ef
það hefur einu sinni komið upp,
hægt að greina í legvatni. Leiðir oft
af sér hydramnion.
Áðurfœtt barn með spina bifida
Aukin tíðni, ef kona hefur áður fætt
barn með þennan galla, hægt að
greina í legvatni ef hryggur er op-
inn. Leiðir oft af sér hydramnion.
Hydramnion
Getur bent á dulda sykursýki hjá
móður. Einnig fylgir það oft ein-
hverjum vansköpunum hjá fóstri.
Oligoh ydramnion
Legvatnið er spegilmynd af starf-
semi placentu (fylgju), á fyrri hluta
meðgöngu, en spegilmynd af starf-
semi nýrna á seinni hluta með-
göngu. Oligohydramnion er því af-
leiðing, annað hvort lélégrar starf-
semi fylgju og belgja, eða ófullnægj-
andi nýrnastarfsemi fósturs. Of lítið
legvatn skerðir hreyfingargetu fóst-
urs og veldur oft vanskapnaði hjá
fóstri.
Léleg starfsemi fylgju getur orsak-
ast af mikið hækkuðum blóðþrýst-
ingi hjá móður, eða einhverjum
æðasjúkdómum hjá henni.
Áður fætt andvana barn
Athuga þarf hver var orsök dauða
barnsins í móðurkviði, ef hún hefur
fundist. Margt getur valdið dauða
fósturs, svo sem rhesus-ósamræmi,
fylgjuþurrð, fylgjulos, grindar-
þrengsli, sem leitt hafa af sér súr-
efnisskort, svo eitthvað sé nefnt.
14
HJÚKRUN