Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1979, Page 24
Ragnheiður Sigurðardóttir deildarstjóri
Starfsemi vökudeildar
Vökudeild Barnaspítala Hringsins,
sem staösett er á þriöju hæð
Kvennadeildar Landspítalans, hóf
starfsemi sína 2. febrúar 1976.
Vökudeildin veitir móttöku öllum
nýburum, sem þurfa á sérmeðferð
að halda. Innlagningaraldur barn-
anna er frá fæðingu til 7 daga aldurs
og að sjálfsögðu eru börnin af öllu
landinu. Á deildinni sjálfri er rúm
fyrir 14 börn, en rúm er fyrir 4 börn
á einangrunardeild, sem staðsett er
á annarri hæð Kvennadeildar. Á
einangrunardeild fara börn með
smitandi sjúkdóma, eða börn sem
talið er að geti valdið smiti.
Deildin skiptist í þrjár sjúkrastofur,
aðgerðarstofu, vaktstofu og fordyri
fyrir aðstandendur barnanna. í
stofu númer I eru 3-4 hitakassar. í
þessari stofu dvelja veikustu börnin
sem þurfa á mestri hjúkrun og gæslu
að halda. í stofu númer II eru 4
hitakassar. í þessari stofu eru börn
sem þurfa minni gæslu og búist er
við, að dvelji skemur í hitakassa. í
stofu númer III eru 6 vöggur fyrir
börn sem ekki þurfa að vera í hita-
kössum.
í aðgerðarstofu er aðgerðarborð
með sjálfvirkum hitastilli, þar sem
aðstaða er til ýmissa smærri að-
gerða, svo sem blóðskipta, vökva-
uppsetninga í naflaæð, lífgana,
Intubationa, mænuholsástunga,
o.fl. Einnig fer þar fram öll vökva-
og lyfjatiltekt. í aðgerðarherbergi
eru: sog og súrefnisáhöld, Intu-
bationsbakki, vökva- og blóð-
skiptabakkar og öndunarvélar til-
búnar til notkunar. Mikilvægt er að
aðgerðaherbergi sé vel útbúið og
allir hlutir þar í góðu lagi, þar sem
það er oft fyrsti viðkomustaðurinn,
við innlögn á deildina.
Helstu tilfelli
1. Fyrirburðir — börn sem fædd
erufyrir 37. meðgönguviku.
2. Börn sem eru lítil fyrir með-
göngulengd — svo sem börn
mœðra með fæðingareitrun.
3. Börn með lágan APGAR.
4. Tangar- eða sogklukkufæðing-
ar.
5. Börn mœðra með sykursýki.
6. Sitjandi stöður.
7. Hafi legvatn verið farið lengur en
í 24 klst. fyrir fæðingu.
8. Tvíburar— oft erseinna barnið í
sitjandi stöðu.
9. Vansköp.
Tœkjakostur deildarinnar
Hitakassar eru 10 talsins, ýmist
með eða án sjálfvirks hitastillis.
Rakagjafi og súrefnisinntak er á öll-
um kössum. Á stofu númer I fylgir
hverjum hitakassa hjarta- og
öndunarmonitorar, sem ekki eru
færanlegir. Súrefnismælir, því
aldrei er börnunum gefið 02 án þess
að % magn sé mælt, og að sjálf-
sögðu er við hvern kassa sog og súr-
efni, ballon og maski.
Á stofu II eru færanlegar hjarta- og
eða öndunarvélar, einnig er þar
öndunardýna, sem börnin liggja á,
en þurfa ekki elektróður. öll þessi
áhöld er hægt að stilla þannig, að ef