Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1979, Page 33
Reykjavíkurdeild HFÍ afhendir fjár-
upphæð til húsgagnakaupa
Á stjórnarfundi HFÍ19. október sl. afhenti Reykja-
víkurdeild félagsins upphæð að kr. 500.000,- til
húsgagnakaupa í setustofu.
Stjórn félagsins færir Reykjavíkurdeildinni bestu
þakkir fyrir þetta rausnarlega framlag og hvetur
um leið félaga til að notfæra sér þá góðu lestrar-
og fundaraðstöðu, sem nú er hægt að bjóða upp á.
Greiður aðgangur er að fagtímaritum hvaðanæfa
að úr heiminum og einnig eru í bókasafni félagsins
úrval góðra bóka.
Hjúkrunarfræðingar, lítið inn í húsakynni félags-
ins, þarerennfremurkaffi á könnunni.
Kynning
Með danska hjúkrunartímaritinu „Sygeplejersk-
en“ nr. 21. 1979, var sent út fylgirit með mjög
athyglisverðri grein sem ber heitið „Sygeplejersk-
en harenorm betydning som helbredendefaktor".
„Sjúklingsins vegna mætti endurskipuleggja
heilsuvernd og hjúkrun" segja höfundar greinar-
innar, Merry Scheel og Jytte Fröslund-Jensen,
kennarar við Danmarks Sygeplejerskehöjskole.
Greininni fylgja margar ýtarlegar skýringamyndir
og töflur.
Sænskir kennarar í heimsókn
í júni sl. komu 7 kennarar v/hjúkrunarbrautar
Kennaraháskólans í Malmö í stutta heimsókn.
Hjúkrunarfélag íslands skipulagði móttöku kenn-
aranna á þann hátt, að þeir heimsóttu Námsbraut
í hjúkrunarfræðum við Háskóla íslands, Hjúkrun-
arskóla íslands, Nýja hjúkrunarskólann, Borgar-
spítalann og Landspítalann. Einnig tók Kennara-
deild HFÍ á móti gestunum og bauð þeim í ferð til
Þingvalla.
HFÍ vill þakka öllum þessum aðilum fyrir veitta
aðstoð, sem gerði þessa stuttu heimsókn sænsku
kennaranna ánægjulega.
Námskeið
Til bæjarstarfsmannafélaga sendi BSRB upplýs-
ingar og óskir um þátttökutilkynningu varðandi
norrænt námskeið á vegum Nordiska Kommunal-
tjánestemannarádet dagana 27.-31. ágúst 1979 og
var það haldið í Noresund í Noregi.
Meðal verkefna á námskeiðinu voru: Ráðningar-
form og verkfallsréttur, sjálfvirkni og hagræðing,
tölvuöryggi, skyldur opinberra starfsmanna,
stefnumið samtaka norrænna starfsmanna og
launastefna bæjarstarfsmanna.
BSRB átti þess kost að senda allt að fjóra fulltrúa
og samþykkti stjórnin að einn þeirra yrði sérstak-
lega fulltrúi bandalagsins, en auk þess greiddi
BSBR þriðjung ferðakostnaðar vegna annarra
fulltrúa.
HFÍ lýsti yfir áhuga á þátttöku, en á því gafst ekki
kostur að þessu sinni.
Breytingar á barnsburðarieyfi
Á fundi borgarstjórnar Reykjavíkur 22. júní 1979
og bæjarráðsfundi Akureyrarbæjar 26. júlí 1979
voru samþykkt ákvæði um breytingar á barns-
burðarleyfi í reglum um réttindi og skyldur starfs-
manna Reykjavíkurborgar, til samræmis við áður
samþykkta reglugerð ríkisins nr. 129 frá 20. mars
1979.
Reglugerðin ersvohljóðandi:
„Vegna barnsburðar skal kona sem starfað hefur í
þjónustu ríkisins samfellt í 6 mánuði fyrir barns-
burð eiga rétt á að vera fjarverandi með fullum
launum í samtals 90 daga og skal um uppgjör fyrir
yfirvinnu farið eftir ákvæðum 6. gr. Séu lengri frá-
tafir nauðsynlegar að dómi lækna skal meta þær
eftir reglum um veikindadaga sbr. 6. gr.
Réttar skv. grein þessari nýtur kona án tillits til
ráðningarforms.
Kona sem fer í barnsburðarleyfi skal hafa tilkynnt
við upphaf leyfis, ef hún hyggst láta af starfi við lok
leyfisins. Ef breyttar heilsufarsástæður eða aðrar
breyttarfjölskylduaðstæður, sem ekki verðaséðar
fyrir, verða á leyfistímanum skal þó tekið tillit til
slíkra aðstæðna.
Um framkvæmd á barnsburðarleyfi kennara fer
skv. sérákvæðum í samningum fjármálaráðherra
og einstakra kennarafélaga."
Gildir því þessi reglugerð fyrir alla hjúkrunarfræð-
inga.
Námskeið
Landspítalinn gengst fyrir endurhæfingarnám-
skeiði fyrir skurðhjúkrunarfræðinga í byrjun árs
1980, ef næg þátttaka fæst.
Upplýsingar og umsóknir hjá hjúkrunarforstjóra
til 30. janúar, sími 29000.