Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1979, Qupperneq 39
Forgangsverkefni innan
heilbrigðisþjónustunnar
Fulltrúafundur SSN 1979
Fyrir hönd danska hjúkrunarfélags-
ins bauð Annalise Gregersen, for-
maður svæðisdeildarinnar í Vejle,
þátttakendur velkomna og Toini
Nousiainen, formaður SSN, setti
fulltrúafundinn sem er sá 9. sem
haldinn er eftir reglugerðarbreyt-
inguna sem átti sér stað hér á ís-
landi 1970.
Að loknum aðalfundarstörfum
veitti Kirsten Stallknecht, formað-
ur Dansk Sygeplejerád's, fróðlegar
upplýsingar um kröfur þær sem
gerðar eru til hjúkrunarfræðinga frá
löndum innan Efnahagsbandalags
Evrópu (EBE), vegna atvinnuleyfis
í Danmörku.
Á/undi 14.-15. ágúst sl. samþykkti J
Dansk Sygeplejerád athugasemdir
til heilbrigðisyfirvalda varðandi
hjúkrunarfræðinga sem koma frá
viðkomandi löndum og óska eftir
stöðum í Danmörku. Þar sem
greinargerð danska félagsins er um-
fangsmikil, viljum við benda á að
hún var birt í „Sygeplejersken“ nr.
37, 1979 (septemberblað). Grein-
argerðin ber heitið: EF-statsborg-
eres adgang til at virke som syge-
plejersker i Danmark. Það má þó
vekja athygli á því að danska hjúkr-
unarfélagið leggur mikla áherslu á
að umsækjendur uppfylli þær kröf-
ur að hafa nægilegt vald á danskri
tungu. Án þess væri ekki hægt að
hjúkra sjúkum.
Ennfremur kynnti Dorothy C. Hall,
hjúkrunarmálafulltrúi Alþjóðaheil-
brigðismálastofnunarinnar skýrsl-
Fulltrúafundur Samvinnu nor-
rænna hjúkrunarfrœðinga varhald-
inn dagana 11.-14. september sl. á
Hotel Munkebjerg við Vejle í Dan-
mörku. Aðalumræðuefni fundarins
var: Forgangsverkefni innan heil-
brigðisþjónustunnar.
Frá sjónarhóli SSN hefur það úr-
slitaþýðingu, að hjúkrunarfræðing-
ar takiþátt íáætlanagerð og ákvarð-
anatöku, svo að því stefnumarki
innan heilbrigðismála verði náð —
að efla heilbrigði fremur en að með-
höndla sjúkdóma.
Fundinn sátu 69 þátttakendur frá
öllum aðildarfélögunum, en SSN
hefur um 170 þúsund hjúkrunar-
fræðinga innan sinna vébanda.
una „WHO's Medium Program in
Nursing/Midwifery".
í Finnlandi eru þegar hafnar um-
ræður og tilraunir samfara þessari
áætlun sem miðar að sjálfstæðari
hjúkrunarstörfum. Fram kom að 17
heilsugæslustöðvar og 8 sjúkrahús
óskuðu eftir því að vera með í þess-
um tilraunum.
Varðandi menntun hjúkrunarfræð-
inga tók Dorothy C. Hall það fram
að síðan 1973 hafi ísland verið
skrefi á undan hinum Norðurlönd-
unum, en það ár hóf námsbraut í
hjúkrunarfræði við Háskóla íslands
göngu sína. Þetta kemur einnig
fram í nýútkominni danskri hjúkr-
unarsögu sem er kennslubók fyrir
hjúkrunarnema, eftir Inger
Götzsche, forstjóra. Bókin ber heit-
ið: Sygeplejens udvikling og kultur-
historiske baggrund.
Á fundinum var einnig skýrt frá
helstu viðfangsefnum hvers aðild-
arfélags á sl. ári. Þar kom m.a. fram
að í Noregi, en þar hafa stjórnunar-
störf hjúkrunarfræðinga í heilsu-
gæslu verið til margra ára mjög
sjálfstæð, liggur nú fyrir tillaga frá
1.1. 1979 þar sem mjög er gengið á
þennan hefðbundna rétt. Þetta á
sérstaklega við um geðvernd.
Norska hjúkrunarfélagið fór því
fram á stuðningsyfirlýsingu frá
SSN varðandi þetta mál.
„Fulltrúafundur Samvinnu nor-
rænna hjúkrunarfræðinga (SSN)
haldinn á Hotel Munkebjerg í
Vejle, 11.-14. september 1979, er
ákveðið þeirrar skoðunar að hjúkr-
unarfræðingar beri ábyrgð á stjórn-
un og framkvæmd hjúkrunar á öll-
um sviðum innan sjúkrahúsa og
heilsugæslu.
Fulltrúafundur SSN styður tillögu
norska hjúkrunarfélagsins þess efn-
is að eingöngu hjúkrunarfræðing-
um verði falin ábyrgð á stjórnun og
sérhæfingu hjúkrunarþjónustunn-
ar.“
HJÚKRUN
27