Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.11.1980, Blaðsíða 17

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.11.1980, Blaðsíða 17
Námskeið Námskeið um hjúkrunarferli verður haldið dagana 5.,6. og 7. febrúar 1981, í HSÍ. Upplýsingar um námskeiðið verða gefnar á skrif- stofu HFÍ. Námskeið um vökvajafnvægi líkamans verður haldið í mars 1981. Lesefni: Mitchell, P.: Grunnleggende sykepleie 2 (Con- cepts Basic to Nursing), 75 Universitetsforlaget, Oslo. Flatberg, P. og Næss, K.: Legemidler og bruken av dem, 74, Fabritius Forlag, Oslo. Valdir kaflar. Nánar auglýst síðar. Frædslunefnd HFÍ. Greiðslutilhögun vegna ferðakostnaðar Sl. vor var skipuð nefnd til að gera tillögur um greiðslutilhögun á ferðakostnaði hjúkrunarfræð- inga, sem ferðast erlendis á vegum HFÍ. Nefndarmenn ræddu við fulltrúa frá ýmsum fé- lagasamtökum um tilhögun á greiðslum til sinna félagsmanna, sem ferðast erlendis. Flest þessara félaga greiða eftir dagpeningakerfi ríkisins, þó eru einstaka félög, sem gefa kost á að velja á milli dagpeninga eða greiðslu samkvæmt reikningi. Tillaga nefndarinnar er að greiða skuli fasta dag- peninga eftir dagpeningakerfi ríkisins auk far- seðla. Hlutverk nefndarinnar náði ekki til umfjöllunar á greiðslum vegna ferðalaga innanlands, en nefnd- in taldi rétt að hafa einnig fastar reglur þar að lútandi. I nefndinni sátu: Björg Einarsdóttir, Fanney Jónasdóttir og Sigríður Guðmundsdóttir. Á stjórnarfundi HFÍ 4. nóvember 1980 var tillaga nefndarinnar samþykkt. Ennfremur var ákveðið að sömu reglur skuli gilda vegna ferðalaga innan- lands. Vestfjarðadeild HFÍ10 ára Vestfjarðadeild HFÍ efndi til hátíðarfundar 31. október sl. í tilefni af 10ára afmæli deildarinnar og bauð fulltrúa úr stjórn HFÍ að sitja hófið. Því miðurvarekki unnt að þiggja boð deildarinnar en stjórn HFÍ sendi henni bestu árnaðaróskir og þakkir fyrir giftudrjúg störf. Námsstyrkur The National Cancer Institute og The Nursing Department, The Clinical Center, National Institut- es of Health, Bandaríkjunum, munu á næsta ári gefa íslenskum hjúkrunarfræðingi kost á sex mánaða námsdvöl í hjúkrun krabbameinssjúkl- inga (Oncology Nursing) á Clinical Center, National Institutes of Health í Bethesda, Maryland, sem er í útjaðri Washingtonborgar. Mjög góð námsskrá. Ferðir greiddar og laun meðan á námsdvöl stend- ur. Umsóknirþurfa að berast fyrir 15. apríl 1981. Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu HFÍ. Námssjóður hjúkrunarfræðinga hjá Akureyrarbæ eða stofnunum bæjarins. Eins og kunnugt er var við gerð sérkjarasamnings milli Akureyrarbæjar og HFÍ, 18. mars 1978 sam- þykkt ákvæði um námssjóð, sem varið skyldi til að styrkja hjúkrunarfræðinga til framhaldsmennt- unar. Iðgjöld til sjóðsins hafa verið 0.25% miðað við föst laun hjúkrunarfræðinga. Reglur fyrir sjóðinn voru samþykktar vorið 1980, og eru þær birtar á öðrum stað í blaðinu (fréttir og tilkynningar). Stjórn sjóðsins skipa: Þóra G. Sigurðardóttir hjúkrunarfræðingur, Rósa Gunnarsdóttir hjúkrunarfræðingur, Þorsteinn Jónatansson og Sigurður J. Sigurðsson frá launa- deild Akureyrarbæjar og Ásgeir Höskuldsson framkvæmdastjóri FSA, sem jafnframt er formað- ur sjóðsstjórnar. Áskorun til forráðamanna heilbrigðisstofnana Deild heilsuverndarhjúkrunarfræðinga skorar á forráðamenn heilbrigðisstofnana að virða og taka tillit til eftirfarandi samþykktarfráfulltrúafundi HFÍ 1978: „Fulltrúafundur Hjúkrunarfélags íslands, haldinn 3.-4. apríl 1978, samþykkir að mælast til þess við stjórn HFÍ, að hún hlutist til um, þegar auglýst er eftir hjúkrunarfræðingi á heilsugæslustöðvar, að tekið sé fram í auglýsingunum, ef óskað er eftir heilsuvemdarhjúkrunarfræðingi."

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.