Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1989, Page 3
Nóg á sá sem sér nægja lætur, - sagöi hún
Kristín í Súðavíkgjarnan.
- Það eru væntingarnar sem skapa meðvitund
fólks um skort - heyrði ég mannfræðing segja
nýlega.
Þessi ummæli hafa verið mér umhugsunarefni, er
ég kom heim í byrjun aðventu frá því hrjáða landi
Eþíópíu og heyri sífellt hamrað á yfirvofandi skorti
og kreppu hérlendis. Sannarlega hefur harðnað á
dalnum miðað við fyrri ár og nú eru jól í nánd. Trú-
lega rætast ekki allar væntingar okkar um íburð-
armiklar gjafir og veglegar veislur. En verða þá
engin jól?
FORSÍÐA:
„I leynum hjartans" teikning
eftir Elínu Birnu Harðardótt-
ur, unnin í apríl 1989. Elín
Birna var þá sjúklingur á
hjartadeild Landspítalans.
Myndin er ein af þremurtákn-
rænum litteikningum sem
hún gaf hjartadeildinni.
Starfsfólk deildarinnar og
blaðið HJÚKRUN þakkar
gjöfina og birtingarleyfið.
4. tölublað des. 1989
65. árgangur
ÚTGEFIÐ AF HJÚKRUNARFÉLAGI ÍSLANDS
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
INGIBJÖRG ÁRNADÓTTIR, SÍMI 687575
RITSTJÓRN:
ÁSA ST. ATLADÓTTIR, SÍMI 51126
SIGRÍÐUR SKÚLADÓTTIR, SÍMI 43908
RANNVEIG SIGURBJÖRNSDÓTTIR, SÍMI 40187
AUGLÝSINGAR OG BLAÐADREIFING:
INGIBJÖRG ÁRNADÓTTIR, SÍMI 687575
SIGRÍÐUR BJÖRNSDÓTTIR, SÍMI 687575
BLAÐIÐ KEMUR ÚT ÁRSFJÓRÐUNGSLEGA.
endurprentun bönnuð án leyfis ritstjóra.
ÁSKRIFTAGJALD ER KR. 500
Letur: Times 9 pt. á 11 pt. fæti. Millifyrirsagnir 12 pt.
Tyndatextar 8 pt. á 10 pt. fæti.
PaPpir: fincoat 100 gr.
Frentun: Isafoldarprentsmiðja hf.
Svo sannarlega. Jólahátíðin sjálf er ekki bundin
ytra búnaði, þvert á móti, umbúðirnar hamla því
stundum að við njótum sjálfra jólanna. Við náum
ekki að undirbúa okkur sjálf fyrir komu jólanna, en
lendum á kafi í umbúðasköpun.
Allir hjúkrunarfræðingar hafa átt jól á sjúkrahúsi.
Þar ríkir í sjálfu sér afar einfaldur lífsstíll. Samt
koma jólin og margir hafa átt sín eftirminnilegustu
jól á sjúkrahúsi. Þar eru nefnilega litlar umbúðir.
Orðtakið hennar Kristínar í Súðavík stenst líklega
ekki þegar nær til jóla. Sá á ekki nóg sem lætur sér
nægja umbúðirnar og missir þannig af jólunum,
undrinu stóra aö Guð faðir birtist mönnum í barninu
smáa í jötu.
Jólin eru ókeypis, þau standa okkur til boða
hvernig sem efnahagurinn er. Ylur þeirra og birta er
aldrei Ijúfari en þegar dimmir og kólnar í lífinu.
Væntingar skapa skortinn.
Margir segjast vilja tileinka sér einfaldari lífsstíl,
brjótast undan oki neysluhyggjunnar og verða
frjálsara fólk. En þá þarf að losa sig frá vænt-
ingunum sem vekja með okkur hugmyndlr um skort
í neyslusamfélaginu. Og þá er gott að þekkja ráð-
gjöf Kristínar í Súðavík. - Nóg á sá sem sér nægja
lætur. -
Það væri óraunsætt að bera saman kjör í Eþíópíu
og íslandi. Hugtök eins og skortur og kreppa eru
afstæð.
En það er ekki afstætt, að við, fjölskylda þjóö-
anna, verðum að deila kjörum hvert með öðru.
Hjálparstofnun kirkjunnar býður okkur aðstoð sína
til þess með söfnun sinni: Brauö handa hungruðum
heimi. Auðvitað erum við aflögufær, þótt þrengt hafi
að. Það er líka gott til undirbúnings jólum að gefa
þeim sem þurfa. Og því meir sem við gefum, því
meir hljótum við. Svo merkilegt er nú það. Þá
veröum við líka fúsari að þiggja, - þiggja þá gjöf
Guðs sem jólin fela í sér, og þannig eignast frið í
hjarta og gleði í huga á helgum jólum."
Þannig fórust séra Bernharði Guðmundssyni orð.
Undir þau vil ég taka með þakklæti til hans og
kveðjum ásamt jólaóskum til allra lesenda blaðsins.
12/12 1989
HJÚKRUN 4/fe9-65. árgangur 1