Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1989, Side 5

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1989, Side 5
Höfundar greinarinnar, Sigurbjörg, til vinstri, og Stefanía. Myndin er tekin á vakther- bergi hjúkrunarfrœðinga á hjartadeild Landspítalans. Ljósm. Ingibjörg Árnadóttir. Áhœttuþœttir Helstu áhættuþættir hjarta- og æðasjúkdóma eru sígarettureyk- ingar, hár blóðþrýstingur, há blóð- bta (kólesterol), sykursýki, erfðir/ fjölskyldusaga, kyn/aldur, offita, kyrrseta og streita. Það er stað- reynd að orsakir kransæðasjúk- dóma eru margar og vissir áhættu- þættir geta haft mismunandi áhrif á einstaklinga. Fer það meðal annars eftir ættgengi og hvernig orsaka- valdurinn sameinast samfélags- legum aðstæðum í daglegu lífi hvers og eins. Reykingar Rannsóknir hafa sýnt að beint or- sakasamband er milli reykinga og sðakölkunar. Áhættan af völdum reykinga hefur verið tengd bæði nikótíni og kolmónoxíði (Co) í vindlingareyknum. Margar athuganir benda til að v'ð að hætta að reykja minnkar h^tta á kransæðastíflu og skyndi- dauða um helming á einu ári. Háþrýstingur kannsóknir hafa sýnt fram á að hækkaður blóðþrýstingur er einn sterkasti áhættuþátturinn fyrir kransæðasjúkdómi í fólki á Vestur- löndum. Þættir er geta valdið háþrýstingi eru: Offíta, streita, rangt mataræði, S s- fituríkur matur, saltaður og *)ryddaður. Óhófleg notkun afengra drykkja, hreyfingarleysi og j'eykingar. Oftast ’ eru orsakir dþrýstings þó óþekktar. ^áblóðfita/hátt kólesterol annsóknir hafa sýnt fram á að hátt ólesterol í blóði er sjálfstæður 4 ættuþáttur fyrir æðakölkun, þ.e. kj^kasamband milli kólesterols í óði og æðakölkunar. Æðaskemmdir eða vefjabreyt- •ngar í æðaveggnum orsakast að verulegu leyti af kólesterol átfellingum úr blóði. ) Hnnt er að framkalla æðakölk- un í dýrum svipaðri þeirri er ðnnst í manninum með fæði er hækkar kólesterol í blóði. 3) Einstaklingum með hátt kólest- erol í blóði er hættara en öðrum við kransæðasjúkdómi. 4) Kólesterol ásamt öðrum fitu- efnum s.s. þríglyseríðum í blóði finnst sem hluti af svokölluðum lipópróteinum. I mönnum er mestur hluti kólesterols í svo- kallaðri lágþéttnifitu (low-den- sity-lipó-prótein eða LDL) og hefursterk jákvæðfylgni fundist á milli LDL kólesterols í blóði og tíðni kransæðasjúkdóma. Þessu virðist öfugt farið með háþéttnifitu (high-density-lipó- prótein eða HDL) því að rann- sóknir síðustu ára benda til þess að aukið HDL-kólesterol í blóði minnki líkurnar á æðakölkun. Kólesterólmagn hvers og eins ákvarðast af erfðum og umhverfisþáttum s.s. mataræði, hreyfingu og líkamsþyngd. Erfðir/fjölskyldusaga Hækkaður blóðþrýstingur og hækkað kólesterol eru oft taldir bundnir erfðum. Einnig eru venjur s.s. mataræði og almennir lifnaðar- hættir oft svipaðir meðal skyld- menna. Ekki er þó útilokað að aðrir erfðaþættir geti verið til staðar sem sérstaklega stuðla að kransæðastíflu. Flestum rann- sóknum ber saman um að nánum aðstandendum sjúklinga, sem fengið hafa kransæðastíflu sé hætt- ara en öðrum að fá sama sjúkdóm. Kyn/aldur Aldur er einn af sterkustu áhættu- þáttum hvað varðar tíðni kransæða- sjúkdóma. Einnig eru kransæða- sjúkdómar mun algengari í körlum en konum en sá munur minnkar með hækkandi aldri. Rannsóknir frá Bretlandi hafa sýnt að konur er tekið hafa P-pill- una er u.þ.b. fimm sinnum hættara við að fá kransæðasjúkdóm. Hættan eykst verulega ef konur reykja. Hafa ber í huga að raunveruleg áhætta kvenna á hjarta- og æða- sjúkdómum á ungum aldri er ekki mikil, því fram að tíðahvörfum eru konur tiltölulega verndaðar fyrir æðakölkun. Þetta er tengt samspili kvenhormónanna östrógens og prógesteróns. En eftir tíðahvörf eru konur fljótar að ná körlum. Offita og hreyfingarleysi Offita er ekki sterkur sjálfstæður áhættuþáttur en stuðlar verulega að öðrum áhættuþáttum og eykur þannig áhættuna óbeint. Streita Streita er ekkert nýtt fyrirbæri, við þekkjum hana öll. Við hlaupum á eftir strætisvagni og missum af honum, þurfum að borga af lánum og höfum fjárhagsáhyggjur eða erfiðleikar eru á heimili og vinnu- stað. Allir þessir þættir eru daglegt brauð og valda streitu. Viðbrögð HJÚKRUN - 65. árgangur 3

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.