Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1989, Page 20
Atvinnuleysi veldur sjúkdómum
og er heilsuspillandi. Þörf okkar
fyrir vinnu er lærð og hluti af menn-
ingararfi. Atvinnuleysi er oftast hjá
ungu fólki og öldruðum.
Hjúkrun er m.a. að fyrirbyggja
sjúkdóma og það að aðstoða ein-
staklingana að aðlagast aðstæðum
eiús og þær eru.
Hjúkrunarfræðingar geta stefnt
að því að bæta heilbrigði við líf
fólks með því m.a. að reka meiri
áróður fyrir því að fólk finni sér
áhugamál áður en það kemst á efri
ár ef það hefur þau ekki fyrir.
Hægt væri að hugsa sér að öldr-
unarfræðsla væri rekin frá heilsu-
gæslustöðvum.
Það væri t.d. hægt að bjóða öll-
um 60 ára einstaklingum í heim-
sókn á heilsugæslustöðvarnar þar
sem boðið væri upp á ráðgjöf og
vangaveltur hvað varðar framtíð-
ina með tilliti til breytinga sem
fylgja vaxandi aldri.
Fræðsla um slysahættu er hægt að
koma á framfæri t.d. með því að
framfylgja í verki þeim upplýs-
ingum og þekkingu sem við höfum.
Það er víður akurinn sem er
óplægður þar sem stuðla má að því
að fólk eigi fleiri starfssöm ár, fái
færri sjúkdóma og verði fyrir færri
slysum.
Þriðja sviðið í því höfuðmark-
miði að stuðla að og bæta heilbrigði
einstaklingsins er sett fram í
íslenskri heilbrigðisáætlun á þessa
leið:
„5. Að bæta lífi við árin. Þetta
þýðir að heilbrigði aukist og að
fleira fólki en nú finnist það vera
hraust og stjórna starfsdegi sín-
um þannig að því finnist lífið ríkt
af reynslu og breytilegum verk-
efnum.
Heilbrigði er hluti af vellíðan
einstaklings og þjóðfélags.
Menning og fjárhagur getur haft
mikil áhrif á heilsufar einstak-
linganna. Sjúkdómar eru hluti af
lífi hvers manns og fötlun er hluti
af lífi margra en hinir sjúku og
fötluðu geta einnig notið ánægju
lífsins.
í heilbrigðisþjónustunni á
fólkið ekki að líta á sig eingöngu
sem neytendur. Hugmyndin er
að maðurinn verði þátttakandi í
heilbrigðisþjónustunni og
honum sé ljóst, hvað hann getur
gert fyrir sig og hvað heilbrigðis-
þjónustan getur gert fyrir hann.
Fullkomin heilbrigðisþjónusta
næst aðeins með því móti að
þjóðfélagsþegnarnir nýti sér
hana og geri til hennar kröfur.
Heilbrigði er í dag að hluta til
ákvörðunaratriði einstaklings og
fjölskyldna.
Heilbrigðisþjónustan getur
veitt mikla hjálp en án samvinnu
við einstaklinginn er hún lítils
virði og einstaklingurinn verður
að gera sér ljóst að hann er sam-
verkamaður og ekki aðeins neyt-
andi.“ (tilvitnun lýkur)
Það þjónustuform og yfirskipan í
rekstri heilbrigðisþjónustu sem
boðið er upp á í dag verður að
endurskoða og íhuga möguleika til
breytinga sem gætu leitt af sér eðli-
legra líf fyrir sjúka, aldraða og fatl-
aða. Kostnaður gæti orðið minni og
um leið skilað því að lífi sé bætt við
árin.
Þróunin í þjóðfélaginu í þá átt að
fólk geti verið lengur heima og í
eðlilegu umhverfi, fer vaxandi.
Ánægjulegt framtak sem vitna
má í er húsið fyrir fjölfatlaða sem
verður í tengslum við Reykjalund.
18 HJÚKRUN 4Á9 - 65. árgangur