Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1989, Side 31
Fyrirlesarar í íslenskri náttúru. „Við látum ekki deigan síga í því að hjálpa börnum og
unglingum". Frá vinstri: Per Skjœlaaen, lœknir á barna- og unglingageðdeildskammtfrá
Osló. Hann er sá aðili sem hefur sinnt þessum málurn hvað mest í Noregi. Kari Killen
Heap, frá Noregi, doktor í félagsvísindum. íslendingurinn Víðir Kristinsson. Hann er
eiginmaður Huldu Guðmundsdóttur félagsráðgjafa á Borgarspitala, en hún var í undir-
búningsnefnd námsstefnunnar.
unarfólks eftir að börn hafa verið
beytt harðræði.
Greint var frá könnun á
aðstæðum 9 ára barna við einn
grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu
sem gerð var 1984-85 og aftur
1986-87. í þessari könnun kom í
ljós að u.þ.b. 40% níu ára barna í
skólanum voru ein allan daginn eða
hluta úr degi eftir að skóla lauk.
Fjögur prósent þessara barna
þurftu auk þess að hugsa um yngri
systkini. í sömu könnun kom fram
að helmingur níu ára barna tóku
sjálf til morgunmat sinn og um tíu
prósent sáu einnig um hádegismat
sinn.
Gerð var grein fyrir athugun á
því hve mörg börn á aldrinum 0-15
ára sem komu í slysadeild höfðu
verið lögð inn í sjúkrahús fyrstu 6
mánuði þessa árs. Það kom í ljós að
5800 börn komu á slysadeild, af
þeim voru 257 lögð inn í sjúkrahús
þar af 3 lögð inn vegna gruns um
eða fullvissu um illa meðferð.
Vitnað var til rannsóknar sem
gerðar hafa verið á svokölluðu
fæðingarþunglyndi en u.þ.b. tí-
unda hver kona fær þunglyndiskast
fyrsta árið eftir barnsburð og teng-
ist þunglyndi móður á þessum tíma
greinilega truflun á persónu- og
greindarþroska barna við 3 ára
aldur.
Fyrstu hættumerki illrar
meðferðar eru meðal annars:
Beinir líkamlegir áverkar:
Ytri áverkar: Húðskaðar, mar.
Aðrir skaðar.
Innri áverkar: Beinbrot. Skaði á
innri líffæri (lifur, milta, þarma,
eyru, augu). Heilahristingur.
Brunasár.
Óbein líkamleg einkenni: Frávik
á vaxtarlínuriti. Fyrstu merki um
illa meðferð eru oft frávik frá eðli-
legum vaxtarmörkum bæði hvað
snertir hæð og þyngd. Allar mæl-
ingar á hæð og þyngd barna ætti að
færa inn á vaxtarlínurit þar sem
vandlega fært línurit gefur góða
mynd af vexti barnsins.
Andleg einkenni: Meira og
minna sífelldar höfnunarkröfur af
hendi foreldra (ef þú hlýðir ekki, ef
þú gerir ekki þá). Frosið bros.
Döpur börn. Sljóleiki. Einbeytinga-
erfiðleikar. Námsörðugleikar.
Leita ekki huggunar eða öryggis
hjá fullorðnu fólki. Treystir ekki
fullorðu fólki.
Hvað fœr fólk til að
beita börn illri meðferð:
Erlendar athuganir hafa sýnt að ill
meðferð á börnum er ekki bundin
við ákveðna stétt, stöðu, persónu-
leika, menningarsvæði eða fjöl-
skyldustærð. Fyrirbærið virðist
geta átt sér stað í flestum fjölskyld-
um. En flestir sem fara illa með
börn sín réttlæta það eftir á með
afneitun eða frávarpi.
- lélegar félagslegar aðstæður
- áfengis- og eða lyfjamisnotkun
foreldra
- greindarskerðing foreldra
- tengslmyndun móðurs og barns
ábótavant.
Úrbóta leitað
I framhaldi af námsstefnunni var
settur á fót starfshópur fulltrúa
hinna ýmsu starfsstétta þ.e. heil-
brigðis- og félagsmála og skólakerf-
isins.
Á hópurinn meðal annars að
beita sér fyrir því að gerðar verði
ítarlegar faraldsfræðilegar rann-
sóknir á illri meðferð á börnum hér
á landi til að vitað sé um umfang og
eðli málsins. Niðurstöðurnar á
síðan að nota til að koma í veg fyrir
og meðhöndla, bæði börnin og fjöl-
skyldur þeirra. Einnig á hópurinn
að koma með tillögur um hvaða
leiðir eru færar til að bæta það sem
ábótavant er í málefnum barna hér
á landi.
Reynt verður að stuðla að meiri
fræðslu um þessi málefni.
HEIMILDIR
Halldór Laxness: Heimsljós I. Helgafell,
Reykjavík 1967.
HJÚKRUN14»-65. árgangur 29