Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1989, Síða 32
Ásta Möller hjúkrunarfræðslustjóri Borgarspítala,
Helga H. Bjarnadóttir verkefnastjóri Landspítala,
Margrét Björnsdóttir hjúkrunarframkvæmdastjóri Borgarspítala
Sjúklingaflokkun
á Landspítala og Borgarspítala
Fyrirlestur fluttur 4. nóv. 1988 á ráðstefnu hjá deild hjúkrunarforstjóra
og hjúkrunarframkvæmdastjóra HFI
Umfjöllunarefni þessa
fyrirlesturs er sjúklinga-
flokkunarkerfi á Landspítala
og Borgarspítala. Efninu er
skipt í þrjá þœtti:
Fyrst er fjallað almennt um
sjúklingaflokkunarkerfi (hjúkr-
unarþyngdarkerfi) og nota-
gildi þeirra. Pá verður greint
frá undirbúningi og skipu-
lagningu á sjúklingaflokkun á
Landspítala árið 1987. Að því
búnu eru gerð skil á fram-
kvœmd og núverandi fyrir-
komulagi á sjúklingaflokkun
og að lokum nokkur orð um
framtíðaráform.
Sjúklingaflokkun er hugtak sem
mikið hefur verið rætt meðal
stjórnenda í hjúkrun hin síðustu ár.
Fram til þessa hefur orðið hjúkrun-
arþyngd verið notað yfir hugtakið
sjúklingaflokkun. Hjúkrunarþyngd
er bein þýðing á danska orðinu
„plejetyngde", en ónákvæm þýðing
á enska hugtakinu „patient classifi-
cation“. Margir hafa lýst óánægju
sinni með orðið hjúkrunarþyngd;
það þykir ekki lýsa þeim hugmynd-
um sem að baki liggja.
Vilborg Ingólfsdóttir hjúkrunar-
fræðingur, deildarstjóri hjá Land-
læknisembættinu ritaði fyrir
nokkru íslenskri málstöð fyrir hönd
starfshóps er vinnur að hönnun á
mælitæki til sjúklingaflokkunar
fyrir aldraða. Farið var fram á
aðstoð við íslenskun á hugtakinu
„patient classification“. í bréfi frá
íslénskri málstöð, sem undirritað
er af Baldri Jónssyni (1988) komu
tillögur um að nota orðið sjúkra-
flokkunarkerfi yfir „patient classifi-
cation systems" og „patient classifi-
cation“ gæti þá heitið sjúkraflokk-
un eða flokkun sjúklinga eins og
komist er að orði í bréfinu. Enn-
fremur komu eftirfarandi athuga-
semdir um notkun orðsins hjúkrun-
arþyngd. „Orðið hjúkrunarþyngd
er ýmist notað í samsetningu hjúkr-
unarþyngdarkerfi, hjúkrunar-
þyngdarmat eða eitt sér og haft í
tveimur mismunandi merkingum
eftir því hvort horft er af sjónarhóli
stofnunar eða sjúklings. í fyrra til-
vikinu er hjúkrunarþyngd það
hjúkrunarálag sem á stofnun hvílir,
en í síðara tilvikinu er átt við hjúkr-
unarþörf... til greina kemur að láta
orðið hjúkrunarþyngd eiga sig og
nota í staðinn orðin hjúkrunarálag
og hjúkrunarþörf eftir því hvort á
betur við hverju sinni.
Orðið hjúkrunarþyngd er í sjálfu
sér rétt myndað, en gefur ókunn-
ugum svolítið villandi eða óljósa
hugmynd um þá merkingu sem því
var ætluð. Slitið úr samhengi mætti
ætla að hjúkrunarþyngd væri þyngd
sjúklings fyrir og/eða eftir hjúkrun
eða eitthvað þess háttar. Hér er því
lagt til að hjá því verði sneitt, enda
virðist auðvelt að komast af án
þess. í stað þess að tala um þyngd
hjúkrunar er nákvæmara að tala
um þörf hennar eða álag eftir atvik-
um.“
Við kjósum að nota hugtakið
sjúklingaflokkun, í stað hjúkrunar-
þyngdar í þessum fyrirlestri.
Sjúklingaflokkun,
tílgangur og notagildi
í gegnum tíðina hafa verið notaðar
fastar „formúlur" um hlutfall sjúk-
linga og starfsfólks, ellegar fjöldi
hj úkrunarstunda/sj úkl ,/sólarhring,
við ákvarðanatöku um mönnun á
deildum á hverjum tíma. Gjörgæslu-
deildir miða við u.þ.b. 10,5 hjúkr-
unarstundir/sjúkl./sólarhring en
um 4-5 hjúkrunarstundir/sjúkl./
sólarhring eru notaðar til viðmið-
unar á hand- og lyflækningadeild-
um. Slík „föst viðmið“ leiða til svip-
aðrar mönnunar frá degi til dags,
frá einni vakt til annarrar, án tillits
til raunverulegra hjúkrunarþarfa
sjúklinga. Talað er um að álag á
deild sé mismunandi frá einum
tíma til annars; deildin er ýmist
„létt“ eða „þung“. Það hefur
löngum verið þekkt og viðurkennd
staðreynd að fjöldi sjúklinga á deild
segi næsta lítið um hjúkrunarþörf
þeirra og því síður hve marga
starfsmenn þarf til að annast þá.
Þróun mælitækis sem gerir okkur
kleift að meta og flokka sjúklinga
eftir hjúkrunarþörf þeirra hefur
þótt fýsilegur kostur til að jafna út
30 HJÚKRUN - 65. árgangur