Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1989, Page 38

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1989, Page 38
kerfi líkamans. Er þá oft borið seg- ularmband a hendi, eða festi um háls. Þar hefur ekki verið hægt að sýna fram á nein sannanleg áhrif væri að ræða. Svœðameðferð (Zonetherapy) á sér mjög fornar rætur. Hægt hefur verið að sjá í annálum frá indíánum í S-Ameríku að þessari aðferð hafi verið beitt til forna. í byrjun 20 aldar hófst þessi meðferð til vegs á ný vestanhafs. Meðferðin byggir á þeirri kenningu að svæði og líffæri líkamans hafi samsvarandi svæði undir iljum. Sé viðkomandi svæði á einhvern hátt ert á að vera hægt að hafa áhrif á ákveðin líffæri eða líkamssvæði. Þessi aðferð er orðin talsvert útbreidd á íslandi en á öðrum Norðurlöndum og í Evrópu verður hennar ekki eins mikið vart. Þeir sem stunda svæðameðferð finna auma bletti undir iljum með þrýst- ingi eða nuddi sem eiga að svara til óþæginda í ákveðnum líffærum. Meðferðin felst síðan í því að þrýsta eða nudda. Ekki hefur verið hægt að sýna fram á að þessi með- ferð hafi áhrif á gang sjúkdóma. Leysigeislameðferð er afbrigði nýrrar tækni og hefur verið notuð með góðum árangri m.a. í augnlækningum og skurð- lækningum, til dæmis til að nema burt æxli og stöðva bæðingar. Notkun leysigeisla til að hemja sársauka frá stoðkerfi eða til sára- lækninga var fyrst kynnt á miðjum 6. áratugnum. Hér er Ijósgeisla breytt í háorkuljós með sérstökum aðferðum. Til eru háorkuleysar, sem notaðir eru í skurðlækningum og svo lágorkuleysar sem notaðir eru við verkjum frá stoðkerfi. í Svíþjóð hefur slík leysigeislameð- ferð átt talsverðum vinsældum að fagna og á íslandi virðist líkt vera upp á teningnum. Hafa bæði lærðir og leikmenn notað þessi tæki. Nýjar rannsóknir eru sífellt að koma fram en engin vel gerð vís- indaleg rannsókn hefur getað sýnt fram á að þeir hafi nokkur áhrif. Rafmagnsmeðferð hefur verið þekkt lengi og notuð í ýmsu formi. Á seinni árum hafa verið gerðar ítarlegar rannsóknir á notkun rafmagns með mismunandi straumstyrk. Viss tegund straums getur haft jákvæð áhrif og sérstak- lega hafa menn beint rannsóknum sínum að svokallaðri T.E.N.S. (Transcutaneus electrical Nerve Stimulation) meðferð þar sem væg- um rafstraum með ákveðni tíðni er hleypt gegn um líkamssvæði. Hægt hefur verið að sýna fram á tölfræði- legan mun eftir því hvaða straum- styrk er beitt og eru öll góð tæki á seinni árum nú með innbyggðri tíðni. Þessi meðferð er mikið notuð í endurhæfingu og til meðferðar á verkjum frá stoðkerfi. Rannsóknir hafa ennfremur sýnt að hægt er að hafa áhrif á gróningu sára til hins betra og einnig að hægt er að minnka óþægindi af hjartaöng. Öll önnur rafmagnsmeðferð byggir á veikum vísindalegum grunni. Nálastungumeðferð (Acupunkture) er meðferð sem sennilega er mest þekkt af hinum svokölluðu hjálækningum. Þessi meðferð á rætur sínar að rekja til austurlanda fjær og hafa Kínverjar verið þar í fararbroddi. Það er ekki nema u.þ.b. 20 ár síðan að vestur- landabúar fóru að nota þessa að- ferð við meðferð á verkjum frá stoðkerfi. Efitt er að gera góðar vís- indalegar rannsóknir á þessar með- ferð þar sem viðmiðunarhópur er ekki til, þ.e.a.s. samanburðar- hópur sem ekki fær samsvarandi meðferð. Það hefur veri sýnt fram á að hækkun verður á endorfínum í mænuvökva og að um vöðvaslökun getur verið að ræða. Þessi aðferð hefur því öðlast viðurkenningu innan hefðbundinnar læknisfræði sem meðferð við langvinnum verk. Hnykkmeðferð (Chiropraktik) Þessi meðferð hefur verið hvað umdeildust hin seinni ár meðal heilbrigðisstétta. Hún er meiður af handarlækningum (Manu- al medicine), sem margir læknar og sjúkraþjálfar beita til skoðunar og meðferðar í nokkru mæli. Hér er þó gengið öllu lengra og liðir hreyfðir út fyrir mörk hefðbund- innar líffærafræði. Hún á sér þó nokkuð örugga fótfestu á Vestur- löndum. Læknar og sjúkraþjálfar sem þekkja til slíkrar meðferðar hafa bent á hættur sem slíkri með- ferð getur fylgt þegar til lengri tíma er litið, og ekki hefur verið sýnt fram á með öruggum hætti, að hægt sé að hafa áhrif á gang sjúkdóma í stoðkerfi, umfram aðra hefð- bundna meðferð, þó einkennum sé haldið niðri um tíma. Hverju(m) eigum við að trúa? Nútíma læknisfræði er í stöðugri þróun og hefur eins og fram kemur hér að ofan viðurkennt nokkuð af því sem áður þótti teljast til hjá- lækninga. Óhætt er að segja að á seinni árum hafi áhugi fólks aukist mikið á hverskonar hjálækningum. Að hluta til kann skýringarinnar að vera að leita í því að hefðbundinni læknisfræði hefur mistekist að bæta öll mannsins mein og nútíma heil- brigðisþjónusta hefur því miður orðið að nokkuð ópersónulegum iðnaði. Fólki gefst hér færi á að leita annað, er vel tekið, og það er hlustað á það. Það fær oft nána snertingu við viðkomandi meðferð- araðila, nokkuð sem því miður er allt of lítið um á stórum meðferðar- stofnunum. Margar af ofannefndum aðferð- um eiga það sameiginlegt að þær styðjast við engin eða veik vísinda- leg rök. Samt sækir fólk í auknum mæli til hinna ýmsu aðila sem stunda hjálækningar. Geðþóttaáhrif eða hvað? Margt bendir til að þessar aðferðir hafi öðlast sinn sess vegna þess náttúrulögmáls að hluti fólks fær jákvæð áhrif af hverskonar „með- ferðum“ jafnvel þó ekkert sé hreyft við rót vandans. Hér er um að ræða svokölluð geðþóttaáhrif (placebo effect) sem eru upplifuð áhrif og um þriðjungur fólks fær án tillits til 36 HJÚKRUN%?-65. árgangur

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.