Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1989, Qupperneq 40
Upplýsingatækni í hjúkrun
verkfæri - hvatning - ógn
Fulltrúafundur SSN 1989
Fulltrúafundur Samvinnu
norrœnna hjúkrunar-
frœðinga SSN var haldinn
að Vilvorde, ráðstefnustað
danska hjúkrunarfélagsins
dagana 20.-22. september s.l.
Samvinna norrænna hjúkr-
unarfrœðinga var stofnuð
1920, aðildarfélög eru samtök
fimm norrœnna hjúkrunarfé-
laga með 221.945.000 félaga
innan sinna vébanda.
Markmið SSN er m.a. að
fylgjast með þróun á öllum
sviðum hjukrunarmála. Hafa
nauðsynlegt frumkvæði í
öllum málum sem varðar
hjúkrunarfræðinga og efla
samvinnu á milli hinna ýmsu
starfsstétta og starfshópa á
sviði heilbrigðis- og félags-
mála innanlands og á alþjóða-
vettvangi.
Ulrica Croné formaður SSN lést
þann 24. júlí s.l. eftir harða baráttu
við krabbamein. Kirsten Stall-
knecht varaformaður SSN og for-
maður danska hjúkrunarfélagsins
minntist Ulricu við upphaf fulltrúa-
fundar, og risu fundarmenn úr
sætum til að heiðra minningu lát-
innar heiðurskonu.
Fulltrúar á fundinum höfðu mörg
mál til meðferðar sem og stjórn, en
að venju sátu formaður og varafor-
maður stjórnarfund daginn fyrir
fulltrúafund, formenn félaganna
mynda stjórn samvinnunnar. Mál-
efni fundarins voru m.a. samnor-
rænn atvinnumarkaður. Norræna
ráðherranefndin ákvað árið 1984
að setja á fót vinnuhóp til að fylgja
eftir samþykkt um samnorrænan
atvinnumarkað. ísland er ekki
ennþá formlega búið að öðlast
aðilda að honum hvað hjúkrunar-
fræðinga viðkemur. Norðurlanda-
ráð ásamt norrænu ráðherranefnd-
inni senda ávallt hin margvísleg-
ustu mál inn til stjórnar SSN hvað
varðar heilbrigðisþjónustu á
Norðurlöndunum.
Alþjóðasamvinna hjúkrunar-
fræðinga, International Council of
Nurses, ICN, hélt sitt 19. þing í
Seoul í Suður Kóreu í maí s.l. Þar
voru Martha Quivey frá Noregi og
Inger Ohlsson frá Svíþjóð kosnar í
stjórn ICN. Á stjórnar'fundum í
SSN situr ávallt norrænn fulltrúi úr
stjórn ICN og greinir frá stöðu mála
innan ICN. Slíka samvinnu telur
stjórn SSN mikilvæga. Sænska
hjúkrunarfélagið greindi frá undir-
búningi að ráðstefnu á vegum
Alþjóða heilbrigðismálastofnunar-
innar, SSN, sænska heilbrigðisráðu-
neytisins og sænska hjúkrunarfé-
lagsins, sem haldin var í Linköping
18.-21. október 1989. Aðalmark-
mið ráðstefnunnar var að fylgja
eftir ályktunum og ákvörðunum frá
Vínarráðstefnunni í júní 1988 -
Heilsa fyrir alla árið 2000.
Eitt er það mál sem mikið hefur
verið unnið með í stjórn SSN, en
það eru fyrirhugaðar breytingar á
uppbyggingu samvinnunnar. Ástæð-
una má rekja til þess að sænska
hjúkrunarfélagið greindi frá því
árið 1987 að breytinga væri að
vænta í uppbyggingu félagsins á þá
lund að öll norræn og alþjóðleg
starfsemi færðist yfir til „Svenska
halso og sjukvárdens tjánstemanna-
förbund" (SHSTF) en sænska
hjúkrunarfélagið ásamt ljós-
mæðrum og röntgentæknum
mynda það samband. SHSTF hefur
lengi haft með að gera öll kjara- og
menntunarmál sænskra hjúkrun-
arfræðinga, og nú á starfsemin þar
einnig að ná yfir norræn og alþjóð-
leg mál. Sænska hjúkrunarfélagið
verður lagt niður sem slíkt, en mun
starfa sem hópur innan SHSTF.
Mörg önnur fag- og félagsleg mál er
snerta hjúkrunarfræðinga á Norður-
löndum voru afgreidd á stjórnar-
fundinum. Á fulltrúafundinum
daginn eftir voru síðan samþykkt
ný lög fyrir SSN er taka mið af hinni
félagslegu uppbyggingu hjá
sænskum hjúkrunarfræðingum.
Jafnframt voru samþykktar miklar
breytingar hvað varðar stjórn-
skipulag og starfsemi SSN. Full-
trúafundur með kjörnum fulltrúum
frá hverju landi er lagður niður, en
stjórn samvinnunnar með sínar
félagsstjórnir á bak við sig fer með
æðsta vald í málefnum SSN.
í stað fulltrúafunda verða
haldnar ráðstefnur árlega þar sem
fagleg og félagsleg mál verða í
brennidepli, svipað snið og þema-
dagar í tengslum við fulltrúafund
hafa verið. Næsta ráðstefna verður
3.-5. september 1990 á íslandi og
ber yfirskriftina „Hjúkrunarfélögin
sem þjóðfélagslegt afl.“ Þá voru
38 HJÚKRUN 4/§9-65. árgangur