Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1989, Page 43
verkefni sem hægt sé að nota við
hjúkrunarskráningu,
- að upplýsingatækni eigi að vera
verkfæri sem gæti hjálpað til við
að létta hjúkrunarfræðingum
ýmis vanabundin störf.
Til að ná þessu er nauðsynlegt:
- að hjúkrunarfræðingar taki
virkan þátt í fyrstu undirbúnings-
vinnu í sambandi við fyrirætlanir
um tölvuvæðingu svo og í þróun
tölvukerfa,
- að hjúkrunarfræðingar taki þátt í
framkvæmd áætlana,
- að hjúkrunarfræðingar taki þátt í
þróun og útvíkkun kerfa.
Þegar hjúkrunarfræðingar taka
þátt í að skilgreina þarfir og
markmið leiðir það til:
- að bæði reynslubundin þekking
og hin fræðilega vitneskja eru
tekin inn í tölvukerfin,
- að stefna Alþjóða heilbrigðis-
stofnunarinnar - WHO - „Heil-
brigði allra árið 2000“ eigi að
vera hið endanlega markmið.
Norrænir hjúkrunarfræðingar
vilja standa vörð um hinn mannlega
þátt innan hjúkrunar og vilja því í
sameiningu miðla upplýsingum og
reynslu, m.a. í gegn um SSN.
Ingibjörg Elíasdóttir
Sigþrúður Ingimundardóttir
Póra Sigurðardóttir.
í júní s.l. sumar barst hjúkrunar-
fræðinemum í Háskólanum á
Akureyri bréf frá HFÍ. þar sem
okkur var boðið að senda einn
nema á fulltrúafund SSN sem hald-
inn var í Kaupmannahöfn í sept-
ember s.l.
Ákveðið var að senda einn nema
úr fyrsta árgangnum og varð undir-
rituð fyrir valinu. Vil ég hér með
þakka HFÍ þetta boð. Ég fór síðan
til Kaupmannahafnar ásamt öðrum
fulltrúum frá HFÍ, en flestir þeirra
höfðu farið áður. Mér fannst gott
að geta spurt íslensku fulltrúana
ýmissa spurninga sem upp komu
hjá mér varðandi fundinn sem virt-
ist viðamikill við fyrstu kynni. Sum
málefnin fannst mér vera framandi
en engu að síður áhugaverð. Þar
sem ég hef aðeins lært hjúkrunar-
fræði í 2 ár sá ég málefnin sem tekin
voru fyrir, í öðru ljósi en hjúkr-
unarfræðingar með reynslu í fag-
inu. Þátttakendurnir notuðu hvert
tækifæri sem gafst til þess að ræða
óformlega hin ýmsu mál auk þess
voru margir sem rifjuðu upp fyrri
kynni.
Á fundinum voru einnig hjúkr-
unarfræðinemar frá hinum Norður-
löndunum en þeir fóru í lok fundar-
ins til Roskilde þar sem nemamótið
var haldið. Af óviðráðanlegum
orsökum sá ég mér ekki fært að
sækja það mót, en ég tel nauðsyn-
legt að hjúkrunarfræðinemar geti
skipst á skoðunum og upplýsingum
varðandi nám sitt. Þó svo að námið
sé mismunandi uppbyggt í hinum
ýmsu löndum, tel ég að við nem-
arnir getum lært mikið hvert af
öðru í gegnum aukin samskipti og
haft gagn og gaman af.
Að lokum vil eg geta þess að
stjórn félags Norrænna hjúkrunar-
fræðinema hefur farið þess á leit við
okkur, hjúkrunarfræðinemana í
Háskólanum á Akureyri, að halda
næsta nemamót í september 1990,
eftir SSN ráðstefnuna sem verður
haldið í Reykjavík.
Kristín Ólafsdóttir,
hjúkrunarfrœðinemi
Háskóla Akureyrar.
Orlofsíbúð Hjúkrunarfélags íslands
að Suðurlandsbraut 22
íbúðin er 67 fermetrar að stærð. Stofa, tvö svefnherbergi, annað með þremur
rúmum, hitt með tvíbreiðum svefnsófa. Sex sængur, sex koddar, einnig sængur-
ver, lök og koddaver, og handklæði fylgja.
Þvottavél með þurrkara er í íbúðinni og skal leigjandi skila hreinu því sem notað
hefur verið, áður en hann yfirgefur íbúðina. Óski leigjandi að losna viö þvott,
greiðast aukalega kr. 400.00 fyrir hvern einstakling. Allur eldhúsbúnaður og
ísskápur er í íbúðinni.
Leigjandi ber ábyrgð á öllum búnaði íbúðarinnar, meðan á leigutíma stendur.
íbúðinni sé skilað hreinni.
Ekki er heimilt að hafa húsdýr í íbúðinni.
Síminn er tengdur við svæðisnúmer 91-. Þeir sem þurfa að ná símanúmerum
utan þess svæðisnúmers verða að panta í gegnum 02. Óheimilt er að skrá símtöl
á númer íbúðarinnar.
Leigutími eróbundinn. Vikuleiga erkr. 5.000.00.
Nánari upplýsingar gefur skrifstofa HFÍ sími 68 75 75.
HJÚKRUN - 65. árgangur 41