Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1989, Page 44
Frá setningu 19. alþjóðaþings ICN í Seoul í Kóreu.
19- alþjóðaþing ICN
Hjúkrun framtíðarinnar
International Council of
Nurses hélt sitt 19. þing í
Seoul í Kóreu dagana 28. maí
til 2. júní s.l. Þátttakendur
voru milli 8.000 og 9.000
hjúkrunarfrœðingar frá 71
aðildarlandi. Meðal þeirra var
8 manna hópurfrá íslandi.
ísland er lítið land séð í samhengi
við stórþjóðir. Þetta fannst okkur
íslensku fulltrúunum á 19. alþjóða-
þingi samvinnu hjúkrunarfræðinga
í maí s.l. Þar voru mættir 8.000
hjúkrunarfræðingar frá 71 landi, en
innan vébanda ICN eru 101 aðildar-
land. Islendingarnir voru átta og
því lítið brot af öllum fjöldanum.
Svipað hlutfall var hjá frændum
okkar á Norðurlöndunum.
Það er stórkostlegt að hitta
hjúkrunarfræðinga alls staðar að úr
heiminum, hvíta, gula, svarta og
finna fyrir samkenndinni. Alls
staðar í heiminum eru hjúkrunar-
fræðingar að fást við svipaða hluti,
þróa hjúkrunarstarfið og reyna að
koma sem best til móts við þarfir
sinna þjóðfélaga fyrir hjúkrun.
Undir þetta gátum við íslensku
hjúkrunarfræðingarnir tekið.
Þingsetning fór fram 29. maí en
daginn áður hófst fulltrúafundur
aðildarfélaganna, ásamt faglegum
fyrirlestrum.
A fulltrúafundinn voru mættir
fulltrúar 71 aðildarfélags ICN hér
voru arabalöndin mætt, en fyrir
fjórum árum þegar þingið var
haldið í ísrael mætti enginn fulltrúi
frá þeim. Fyrir íslands hönd sátu
42 HJÚKRUN 4/íí9-65. árgangur