Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1989, Qupperneq 45
Upplýsingar um lánveitingar
úr Lífeyrissjóði hjúkrunarkvenna
A-lán (langtímalán)
Hverjir eiga rétt á láni?
Greiðandi sjóðsfélagar eiga rétt á A-láni úr lífeyris-
sjóðnum, er þeir hafa greitt iðgjöld til sjóðsins í 21/2
ár, miðað við fullt starf eftir að námi lýkur. Jafnframt
er metinn sátími, sem greitt hefurveri í Lífeyrissjóð
starfsmanna ríkisins.
Hver sjóðsfélagi sem greitt hefur í Lífeyrissjóð
hjúkrunarkvenna af fullu starfi í 10 ár, á lánsrétt þó
að hann sé ekki lengur greiðandi í sjóðinn.
Lífeyrisþegar njóta sama lánsréttar og aðrir sjóðs-
félagar.
Hver sá sjóðsfélagi, sem greitt hefur upp eldra líf-
eyrissjóðslán sitt, á rétt á fullu láni að nýju, þegar
liðin eru 21/2 ár frá uppgreiðslu, hafi hann greitt
iðgjöld til sjóðsins sama tíma, eða hafi tíu ára ið-
gjaldagreiðslu að baki.
Lánsupphæð og lánskjör
Hámark lánsfjárhæðar er nú kr. 1.000.000.00.
Lánin eru veitt til 25 ára og eru vextir af nýjum
lánum nú 5,5% á ári. Lánin eru með fullri verðtrygg-
ingu skv. lánskjaravísitölu og heimild til breytinga á
vöxtum á lánstímabilinu.
Nýjung - B-lán (skammtímalán)
Hverjir eiga rétt á láni?
Greiðandi sjóðsfélagar eiga rétt á B-láni hafi þeir
greitt iðgjöld til sjóðsins í 8 ár eða lengur. Hafi
umsækjandi greitt iðgjöld í aðra lífeyrissjóði, er sá
tími ekki metinn til lánsréttar þegar um B-lán er að
ræða.
Hver sjóðsfélagi sem greitt hefur í Lífeyrissjóð
hjúkrunarkvenna af fullu starfi í 10 ár, á lánsrétt þó
að hann sé ekki lengur greiðandi í sjóðinn.
Lífeyrisþegar njóta sama lánsréttar og aðrir sjóðs-
félagar.
Lánsupphæð og lánskjör
Hámark lánsfjárhæðar er nú kr. 500.000.00. Lánin
eru veitt til 5 ára og miðast vextir við vegið meðaltal
vaxta lánastofnana skv. auglýsingu Seðlabankans
hverju sinni. Lánin eru meðfullri verðtryggingu skv.
lánskjaravísitölu.
A-lán og B-lán
Veðtrygging
Lán er veitt gegn veði í íbúðarhúsnæði. Leyfð eru
önnur lán á undan láni frá lífeyrissjóðnum, en
hvorki fjárnám né lögtak. Þó mega önnur lán og lán
Persónuuppbót í desember 1989 - fyrir
BSRB félaga kr. 22.290.00 skv. staðfest-
ingu launadeildar fjármálaráðuneytis.
frá lífeyrissjóðnum samanlagt aldrei fara fram úr
70% af fasteignamati eignarinnar né 65% af
brunabótamati.
Hús í smíðum telst veðhæft sé lagtfram fokheldis-
vottorð og brunatryggingarvottorð, sem ber með
sér hvert sannvirði hússins er, enda sé það stað-
fest með sérstakri áritun. Að öðrum kosti má láta
framkvæma sérstakt mat á eigninni. Sjóðstjórn má
hverju sinni láta matsmann sinn metafasteign, telji
hún sérstaka ástæðu til þess. Ef stjórnin telur þörf á
frekari upplýsingum umfasteign, erhennijafnframt
heimilt að krefjast fyllri gagna, áður en til lánveit-
ingar kemur.
Lánsumsókn og afgreiðsluháttur
Lánsumsókn skal vera skrifleg. Um það bil 1/2 mán-
uði áður en lánið er afgreitt, skal umsækjandi skila
veðbókarvottorði um þá eign, sem veðsetja skal.
Jafnframt skal fylgja vottorð um fasteignaijiat og
brunabótamat, sé eign ekki metin sérstaklega.
Umsækjandi skal upplýsa hverjar séu eftirstöðvar
veðlána, ef slík lán eru áhvílandi á eigninni. í því
sambandi nægir t.d. að sýna nýjustu afborgunar-
kvittanir eða greiðslutilkynningar frá viðkomandi
stofnun.
Afgreiðslufrestur lífeyrissjóðslána er þrír mánuðir
frá því að umsókn berst til sjóðsins.
Mikilvægt er að lánsumsóknir séu skýrar og grein-
argóðar og veiti fullnægjandi upplýsingar um
umsækjanda, svo sem fullt nafn, heimilisfang,
nafnnúmer og kennitölu.
Uppgreiðsla
Lánþegi má greiða lán sitt upp hvenær sem er á
lánstímabilinu, ef hann óskar þess.
St. Franciskusspítali Stykkishólmi
Hjúkrunarfræðing vantar til starfa strax. Upplýsingar veitir
hjúkrunarforstjóri í síma 93-81128.