Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1989, Síða 48

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1989, Síða 48
Breytingar á menntunarmálum hjúkrunarfræðinga Námsbraut í hjúkrunarfræði við Háskóla (slands (HÍ) stendurnúátímamótum í menntunarhlutverki sínu. Eins og flestum er kunnugt um verður Nýi hjúkrunarskólinn (NHS) lagður niður um næstkom- andi áramót, og mun námsbrautin þátaka við þeim verkefnum sem skólinn hefur sinnt um 17 ára skeið. Námsbrautin hefur ennfremur tekið þá stefnu að skipuleggja skuli sérstaka námsleið við námsbrautina, fyrir þá hjúkrunarfræðinga sem Ijúka vilja BS prófi í hjúkrunarfræði. Þá hefur Félag háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga margítrek- að beiðni sína um skipulagða viðbótar- og endur- menntun fyrir háskólamenntaða hjúkrunarfræð- inga. Af framansögðu er Ijóst að framtíðarverkefni námsbrautar í hjúkrunarfræðí eru viðamikil og vandasöm. Um er að ræða brautryðjendastarf innan Háskóla Islands og gott er að hafa í huga að lengi býr að fyrstu gerð. Það er því samdóma álit þeirra er um þessi mál hafa fjallað að mikilvægt sé að gera ítarlega athugun á þörf fyrir viðbótar- og endurmenntun meðal hjúkrunarfræðinga og innan heilbrigðisþjónustunnar og vanda allt undirbún- ingsstarf sem best. Nú þegar hafa verið auglýstar stöður við náms- brautina sem ætlaðar eru til þess að sinna þessu hlutverki. Dómnefndir, sem fjalla um hæfni um- sækjenda, hafa þegar tekið til starfa en Ijóst er að ekki verður ráðið í þessar stöður fyrr en í byrjun næsta árs. Á þessu stigi er illmögulegt að spá fyrir um hvenær kennsla hefst en ekki er óeðlilegt að ætla þeim, er taka við stöðum í viðbótar- og endur- menntun, eitt ár til undirbúnings. Tuttugu og fimm hjúkrunarfræðingar stunda nú nám við NHS, 12 í skurðhjúkrun og 13 í svæfinga- hjúkrun. Nám þeirra mun flytjast í Háskóla íslands í janúar 1990. Vert er að taka fram að kennsla til þeirra hefur verið á háskólastigi og hafa náms- kröfur í öllum námskeiðum verið miðaðar við það. í desember 1988 var, að beiðni Sigþrúðar Ingi- mundardóttur formanns skólanefndar NHS og Maríu Pétursdóttur skólastjóra NHS, skipuð 8 manna samstarfsnefnd NHS og námsbrautar í hjúkrunarfræði við Háskóla (slands. Verkefni þeirrar nefndar er flutningur á námi hjúkrunarfræð- inga sem stunda nám í Nýja hjúkrunarskólanum um áramót 1989/1990 yfir í Háskóla íslands. ( nefndinni sitja fyrir hönd Nýja hjúkrunarskólans: Birna G. Flygenring námsstjóri, Pálína Sigurjóns- dóttir sem á sæti í skólanefnd NHS, Sigríður Hall- dórsdóttir námsstjóri og Sigþrúður Ingimundar- dóttir skólanefndarformaður NHS. Fyrir hönd námsbrautar í hjúkrunarfræði sitja: Herdís Sveins- dóttir lektor, formaður námsbrautarstjórnar frá 1. nóvember 1989, Ingibjörg R. Magnúsdóttir náms- brautarstjóri, Margrét Gústafsdóttir dósent, for- maður námsbrautarstjórnar og Þórólfur Þórlinds- son prófessor. Nefnd þessi mun væntanlega skila áliti í byrjun árs 1990. Það er von okkar allra sem í nefndinni sitjum að þær breytingar sem framundan eru í menntunar- málum hjúkrunarfræðinga megi takast sem allra best og verða öllum þeim sem að þeim standa til sóma og til gæfu fyrir þá er þeirra munu njóta. Fyrir hönd samstarfsnefndar NHS og HÍ Herdís Sveinsdóttirog Sigríður Halldórsdóttir ICN 3M styrkurinn Styrkþegar eru frá Grikklandi, (srael og Puerto Rico. Þrjátíu sóttu um styrkinn sem hver er að upphæð 7.500 US dollarar. Það er Minnesota Mining and Manufacturing Company (3M) sem í samvinnu við Alþjóðasamband hjúkrunarfræðinga hefur veitt þessa styrki síðan 1970. Despina Sapaountzi, Grikklandi fær styrk til að Ijúka Master Degree í endurhæfingahjúkrun. Hún er hjúkrunarforstjóri við bæklunarlækningasjúkra- hús. Tamar Ben-Or, Israel fær styrk til að Ijúka Master Degree í hjúkrun. Hún er aðstoðarmaður heilbrigð- isráðherra í málefnum heilsugæslunnar. Gloria Ester Oritz Blanco frá Puerto Rico fær styrk til að Ijúka doktorsgráðu. Hún hefur unnið með háskólum og framhaldsskólum á Puerto Rico og nágrenni við að þróa námsskrá í hjúkrun. ICN 3M styrkþegar eru valdir út frá landfræðilegu sjónarmiði þannig að einn styrkur fer til Norður- Suður-Ameríku og eyjanna í Karabíska hafinu. Austur-Vestur Evrópa fær annan og sá þriðji fer til Asíu, Afríku og austurhluta Miðjarðarhafs. Hjúkrunarforstjóri Hjúkrunarforstjóri óskast að Heilsugæslustöðinni á Dalvík. Til Dalvíkurlæknishéraðs heyra Hrísey, Svarfaðardals- hreppur og Árskógsströnd. (búar eru um 2400 (þar af 1430 á Dalvlk). Æskilegt er að umsækjandi hafi sérnám í stjórnun eða heilsuvernd. Upplýsingar veita Þóra Ákadóttir hjúkrunarforstjóri í síma 96-61500 eða 96-61567 og Lína Gunnarsdóttir formaður stjórnar í síma 96-61500 eða 96-61365. Stjóm Heilsugæslustöövarinnar
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.