Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1989, Page 50

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1989, Page 50
Bandaríkjunum, Robert Tiffany frá Englandi, Helen Evans frá Kan- ada, Dr. Jean Grayson frá Trinitad og Tobago, Dr. Serara S. Kupe frá Botswana, Sophia Kyriakidou frá Kýpur, Durga J. Mehta frá Ind- landi, Dr. Hiroko Minami frá Japan og Ruth Quenzer frá Sviss. Sigþrúður Ingimundardóttir, Pálína Sigurjónsdóttir 19. Alþjóðaþing hjúkrunarfræð- inga var haldið í Seoul í Kóreu dag- ana 28. maí-2. júní en þessi þing eru haldin fjórða hvert ár. Milli 8000 og 9000 hjúkrunarfræðingar frá 71 landi sóttu þingið en alls eru aðildarfélögin í alþjóðasamvinnu hjúkrunarfræðinga (ICN) 101. Frá síðasta alþjóðaþingi hefur þeim fjölgað um fjögur með inngöngu hjúkrunarfélaganna í Bangladesh, Brunei, Möltu og Monaco. ís- lensku þátttakendurnir voru 8. Opnunarhátíðin var með mikl- um glæsibrag. Fulltrúar á þinginu gengu inn undir þjóðfána síns lands, margir í þjóðbúningum. Fráfarandi formaður, Nelly Gar- zon frá Columbíu flutti ávarp og talaði um kjörorð þingsins „Hjúkr- un - önnur á morgun" (Nursing - A New Tomorrow). í ræðu sinni hvatti hún hjúkrunarfræðinga um heim allan til að standa saman um félagsleg, mannúðleg og siðfræði- leg málefni. Forsætisráðherra ávarpaði þing- fulltrúa og sagði m.a.: „Ég er sann- færður um að þetta þing verður friðar- og vináttuhátíð fyrir hjúkr- unarfræðinga um allan heim og nær jafn góðum árangri í átt að mark- miðum sínum og Olympíuleikarn- ir.“ Opnunarhátíðinni lauk með stórglæsilegri kóreanskri danssýn- ingu. Níu málaflokkar voru teknir til umræðu á þinginu: - að tryggja réttlæti með mannúð- legri umönnun - (Ensuring just- ice through humanitarian care) - Siðfræðileg íhugunarefni fyrir 21. öldina-(Ethical Considerati- ons for the 21st century) - Breytt viðhorf í heilsugæslu - (The Changing Scene in health care) - að taka ákvarðanir um heilbrigð- isstefnu - (Health policy decisi- on-making) - Efnahagsmál: Hinir fjársterk- ustu lifa af á 21. öldinni. (Econo- mics: Survival of the fiscally fitt- est in the 21st century) - Tæknilegar framfarir: Áhrif á gæðahjúkrun (Technological advances: Impact on the delivery of quality nursing care) - Staðlar: Ferli til bættrar hjúkr- unar og menntunar (Standards: Pathways to quality in nursing practice and education) - Hjúkrunarkenning - áhrif hennar á starfsemi og menntun (Nursing theory - influencing practice and education) - Samvinna hjúkrunarfræðinga frá ólíkum menningarsvæðum - (Crosscultural cooperation among nurses) Undir þessum málaflokkum voru fluttir fjölmargir fyrirlestrar á þremur tungumálum, þ.e. ensku, frönsku og spænsku, en enska var opinbera málið. Á fundi fulltrúa (ICN) urðu miklar umræður um hvert opinbera málið skyldi vera og að lokum var samþykkt að málin þrjú skyldu hafa jafna stöðu frá árinu 1993. Kemur þetta til með að hafa mikinn kostn- aðarauka fyrir ICN í för með sér, m.a. þarf þá að þýða öll málskjöl á þrjú tungumál. Fyrirlestrum fækkaði verulega frá því sem upphaflega var tilkynnt en þrátt fyrir það var af nógu að taka og vandi að velja og hafna. Fyrirlestrar voru í gangi allan dag- inn frá morgni til kvölds og var fjallað um þrjá málaflokka á sama tíma. Flesta daga voru hringborðs- umræður um fjölmörg umræðu- efni. Of langt mál yrði að fj alla um alla þá fróðlegu fyrirlestra sem undir- rituð hlýddi á í Seoul en mig langar til að gera stutta grein fyrir nokkr- um þeirra. Youmiko Hayama, DN.Sc., sem starfar við heilbrigðis- og umhverfis- málaráðuneyti í Tokyo, talaði um mannréttindi geðsjúkra og álagið sem stafar af geðsjúklingi í fjöl- skyldu. Samkvæmt japanskri hefð hefur verið lögð meiri áhersla á að fjölskyldan annist sjúklinginn en samfélagið. Á síðustu áratugum hefur geðsjúkrahúsum í Japan fjölgað úr 506 árið 1960 í 1604 árið 1985. Enn er sjúkrarúmum að fjölga þar og meðaldvalartími (530 dagar) að lengjast, sem er öfugt við þá þróun sem hér hefur átt sér stað. Árið 1987 var heilbrigðislög- gjöfin í Japan endurskoðuð og áhersla lögð á að byggja skyldi upp félagslega aðstöðu fyrir geðsjúka og létta með því þungri byrði af fjölskyldum sem fá lítinn stuðning frá hinu opinbera. Fyrirlesarinn hvatti hjúkrunar- fræðinga til að styðja þessa stefnu og stuðla að því að dvöl á stofn- unum verði stytt og sjúklingarnir fái félagslega aðlögun sem stuðlar að því að þeir geti lifað eðlilegu lífi í samfélaginu. Tveir fyrirlestrar fjölluðu um heimilislausar fjölskyldur og ein- staklinga sem eru gífurlegt vanda- mál í stórborgum heimsins. Annar var um heimilislausa í Bandaríkj- unum en hinn í London. Fyrri fyrirlesturinn var eftir Mar- garet Rafferty og fleiri hjúkrunar- fræðinga er starfa við háskólasjúkra- húsið á Long Island, New York. í Bandaríkjunum er talið að 3 milljónir manna séu heimilislausar og þar af eru nálægt 30% einstæðar mæður og börn þeirra. Andlegar, félagslegar og líkamlegar þarfir þessara fjölskyldna eru gífurlegar en úrræði til að bæta úr þörfum þeirra er annað hvort ekki fyrir hendi eða sorglega ófullnægjandi. Þrátt fyrir skort á viðunandi úrræðum og oft léleg vinnuskilyrði, hafa hjúkrunarfræðingar verið meðal þeirra sem unnið hafa að því að veita heimilislausum fjölskyld- um aðstoð. Bandaríski fyrirlesarinn sagði frá nýjustu rannsóknum sem gerðar hafa verið á heimilislausum fjöl- skyldum og aðstæðum þeirra, að gerðum hjúkrunarfræðinga þeim til bjargar og öflugri pólitískri baráttu fyrir þeirra hönd. 44 HJÚKRUN - 65. árgangur

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.