Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1989, Síða 59

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1989, Síða 59
um leið og ég nálgast gengur hann burt eins og hann hafi séð draug. Þegar ég sé hann fjarlægjast mig verð ég innilega sár og leið og bið um að vera keyrð inn á spítala aftur enda bæjarleyfið að verða útrunn- ið. Ég átti að mæta inn á deild aftur klukkan ellefu um kvöldið.“1 2 3 4 5 6 7) Þessi dæmi sýna okkur ýmsar hliðar, ekki satt? Hvað skyldi almenningur vita um Kleppsspítalann? Heldur fólk í raun og veru að þar sé eingöngu fólk í spennitreyjum, öskrandi eða æðandi um froðufellandi innan við rimlaglugga, eins og í ýktum bíó- myndum? Sumir halda að þeir sem þurfa á hjálp að halda frá Klepps- spítala séu lítið menntaðir og mest- megnis úr verkamannastétt. Þetta er svo mikil vanþekking og for- heimska sem mest getur verið. Það er fólk með sömu vandamálin, úr öllum stéttum þjóðfélagsins, sem kemur til meðferðar á Kleppsspít- ala og á aðrar geðdeildir Land- spítalans og Borgarspítalans. Áður fyrr var fólki með geðræn vandamál „komið fyrir“ á Kleppi, og þar fékk það að vera eins lengi og ættingjar eða sveitarfélag borg- aði fyrir að vera laust við ábyrgðina á því. í dag er reynt að endurhæfa þessa einstaklinga, hjálpa þeim að horfast í augu við sjúkdóm sinn og taka þátt í eigin lækningu, ef hún er möguleg, eða að minnsta kosti fá betri heilsu. Hver einstaklingur þarf að vita hvað hann sjálfur getur gert til að viðhalda heilbrigði og fyrirbyggja sjúkdóma, því það, að vera alltaf þiggjandi er niðurdrepandi fyrir sjálfstraust og sjálfsvirðingu. Félagsleg endurhæfing er kannski sá þáttur, sem mikilvægastur er til þess að koma í veg fyrir ævilanga fötlun. Það gengur hægt, það skyldu þó ekki vera til fordómar? Við skulum hlusta á orð sjúklings, sem fengið hafði bata. „Er það virkilega svona erfitt, „kerfið“? hafir þú ekki peninga eða klíku til að komast út í lífið þá ertu dauðadæmd. Eða er það ég sjálf sem skapa mér þessa erfiðleika með hugsunum? Þú ert oft það sem þú hugsar. Svo segir fólk aðþú hafir rangar hugmyndir. Ég finn fordóm- ana allt í kringum mig. Það er ekk- ert skrítið þótt maður reyni að ögra kerfinu? Þrátt fyrir ískaldan veru- leikann er leikaraskapurinn svo mikill sem fylgir því að vera „mann- eskja“. Passir þú ekki inn í „kerfið“ ertu stimpluð „GEÐVEIK“.“8) Hljómar þetta ekki eins og neyð- aróp? Mikið vantar á ennþá, að til séu nægir vinnustaðir til að veita þessum sjúklingum áframhaldandi þjálfun og atvinnu. Sannleikurinn um fordómana er líklega sá, að þeir verða til hjá okkur, þeim „heilbrigðu“, ef kalla má það fólk heilbrigt sem lætur Allt sem þér viljið að aðrir menn gjöri yður það skuluð þér og þeim gjöra svona nokkuð viðgangast. Erum við ekki að fela okkur á bak við for- dómana? Fela okkar eigin skömm yfir þeim vanmætti sem við finnum fyrir gagnvart geðrænum vanda- málum? Og þá er það stóra spurningin, hvað getum við gert til að breyta þessu? Getum við eytt fordómun- um? Nei, líklega verður þeim aldrei eytt að fullu. En við getum dregið úr þeim, og hvernig förum við að því? Fyrst og fremst verður að opna umræðu um þessi mál, og stórauka fræðslu sem getur breytt viðhorfunum og stuðlað að því, að geðsjúkir fái betri viðtökur úti í samfélaginu. Vitneskjan um orsakir á yfirleitt að gera fólki auðveldara um vik að lagfæra ágalla sína, því verður hver og einn að skoða eigin hug. Geð- sjúklingar eru alls staðar á meðal okkar í þjóðfélaginu, því með til- komu nýrra lyfja er hægt að halda ýmsum tegundum geðsjúkdóma niðri. Því geta margir, sem eiga við geðræn vandamál að stríða, lifað eðlilegu lífi með reglulegri lyfja- notkun og heilbrigðu líferni. Aukin fræðsla, opin umræða með kynningum t. d. í sjónvarpi, og meiri skilningur eru einu vopnin sem vinna á fordómum. Notum þau. Lokaorð Við erum öll sérstök, af því við erum einstaklingar, hvert með eigin hugsanir, skoðanir og önnur sér- kenni. Þess vegna er það hættulegt að heimfæra eigin reynslu og skoð- anir yfir á aðra. Og svo sérstakur er enginn, að hann eigi ekki eitthvað sameiginlegt með öðrum. Öll þörfn- umst við samskipta og tjáskipta við aðra. Og þó við búum á mismun- andi stöðum á landinu, vinnum margvísleg störf og séum mismun- andi á okkur komin andlega og lík- amlega, þá erum við fyrst og fremst manneskjur og okkur á ekki að vera sama hverju um annað. Okkur langar að láta þessu lokið með litlu ljóði sem við fundum á töflu einnar deildarinnar á Klepps- spítalanum og snart okkur djúpt. VEISTU: Að vonin er til hún vex inni í dimmu gili eigirðu leið þar um þá leitaðu í urðinni leitaðu á syllunum og sjáðu hvar þau sitja lítil og veikbyggð vetrarblómin lítil og veikbyggð eins og vonin. Höfundur Þuríður Guðmundsdóttir. HEIMILDASKRÁ 1. Þórunn Pálsdóttir -Almenn geðhjúkr- un. Bœklingurum Kleppsspítala 75 ára. 2. Helga Thorberg - Minna „engin venjulega mamma“ - Isafold - 1988. 3. Fræðsluþáttur frá Geðhjálp - Morgun- blaðið 5. febrúar 1983. 4. Helga Thorberg - Minna. ísafold - 1988-bls. 105. 5. Helga Thorberg - Minna. Isafold - 1988-bls. 107-108. 6. Helga Thorberg - Minna. Isafold - 1988-bls. 110-111. 7. Helga Thorberg - Minna. ísafold - 1988-bls. 113. 8. Helga Thorberg - Minna. ísafold - 1988-bls. 140. HJÚKRUN - 65. árgangur 53
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.