Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1989, Blaðsíða 62
Efling sjálfstrausts
„Sá sem hefur heilbrigða sjálfs-
ímynd er sáttur við sjálfan sig, er
ánægður með getu sína og all-
raunsær á takmarkanir sínar.‘ll)
Þeir sem eiga við geðræn vanda-
mál að stríða eru oftast með sjálfs-
ímyndina í lágmarki og vanmeta
sig.
Þeir missa allan vilja til persónu-
legs hreinlætis og finna vanmátt
sinn í því sem þeir taka sér fyrir
hendur. Því þarf að hvetja þá til
sj álfshj álpar svo þeir séu færir um
að sinna sínum daglegu þörfum.
Rétt fæði er einnig mikilvægt, því
oft er næringarástand þessa fólks
ekki gott, sérstaklega ef það hefur
verið veikt um langan tíma og ekki
haft hugsun á að nærast.
Þetta fólk er oft mjög eirðarlaust
og þess vegna verðum við að reyna
að sjá til þess að það hafi eitthvað
fyrir stafni og getum byrjað á því að
fá það til að vinna létt verk. Við
verðum að varast að velja of erfið
verkefni heldur auka við þau smám
saman.
Á stofnunum fer þessi vinna fram
í iðjuþjálfun. Seinna meir geta
sumir farið að starfa á vernduðum
vinnustöðum og alltaf er einhver
hluti sem fer út á hinn almenna
vinnumarkað.
Líka þarf að aðstoða þá ef þeir
hafa engan samastað, að verða sér
úti um húsnæði, t. d. í sambýlum ef
þeir hafa ekki getu til að vera einir.
Það þarf að hjálpa þessu fólki til
að verða fjárhagslega sjálfstætt,
sem er einn liðurinn í að auka
sjálfstraust þeirra.
Koma þarf í veg fyrir að þeir ein-
angri sig, með því að reyna að
styrkja tengsl við fjölskyldu og vini.
Einnig er mikilvægt að fólk finni
sér tómstundir sem það hefur
áhuga á og veldur, því það eflir
sjálfstraust þeirra og veitir vellíð-
an.
En allt verður þetta að byrja
innan frá.
Því betur sem þeir taka sjálfan
sig í sátt, þeim mun betur sætta þeir
sig við lífið og tilveruna.
Lokaorð
Eftir að hafa unnið að þessari rit-
gerð teljum við okkur vera nokkru
nær um þau vandamál, sem þessir
einstaklingar eiga við að etja.
Það hefur vakið okkur til um-
hugsunar og kannski gert okkur
eitthvað hæfari til að skilja vanda
þeirra, að minnsta kosti hefur þetta
orðið til þess að dregið hefur úr
okkar fordómum.
Við höfum gert grein fyrir hug-
myndum okkar til að auðvelda
þeim lífið, en líklega eru til ótal
aðrir möguleikar sem mætti nýta.
Sérmenntaðir faghópar og aðrir
er vel þekkja til málefna geðsjúkra
þyrftu að taka höndum saman og
koma á skipulagðri fræðslu.
Það kæmi okkur öllum til góða,
ef allir þjóðfélagshópar gætu búið
og starfað við sem eðlilegastar
aðstæður.
HEIMILDASKRÁ
1. Fræðsluefni frá Vistheimilinu Vífils-
stöðum.
2. Fræðsluefni frá Sjúkraliðaskóla
fslands.
3. Þórunn Pálsdóttir: Almenn geðhjúkr-
un. Gefið út fyrir geðdeildir Landspítal-
ans.
Hjúkrunarfélag íslands
Ritstjórastarf
Staða ritstjóra tímarits Hjúkrunarfélags íslands
er laus til umsóknar frá 15. janúar 1990.
Hér er um 80% stöðu að ræða.
Umsóknarfrestur er til 31. desember 1989.
Allar nánari upplýsingar veitir Sigþrúður Ingimundardóttir
formaður Hjúkrunarfélags ísiands, sfmi 68 75 75.
56 HJÚKRUN1 2 3 4/fo-65. árgangur